Læknablaðið - 15.05.1980, Page 4
102
LÆKNABLAÐID
Nordisk symposium om ULCUSTERAPI
r
R ITDOMl TT% PATOFYSlOLOGYog MEDIKAMENTELL BEHANDLING ✓ JB-«- Lysebu 15. marz 1979
I J . 1
Mér barst nýlega í hendur bókin, Nordisk
symposium om ULCUSTERAPI, PATOFYSI-
OLOGI og MEDIKAMENTELL BEHAND-
LING, sem er gefin út eftir symposium sem
haldið var í Lysebu 15. marz 1979.
Bókin skiftist í fjóra kafla:
1. kafli. Patofysiologi og epidemiologi.
2. kafli. Árangur af antacida meðferð.
3. kafli. Verkunarmáti og meðferðarárangur
af trimipramini (Surmontil)
4. kafli. Paneldiskussion.
I hverjum kafla eru allmörg erindi, sem haldin
voru á ráðstefnunni, umræður fylgja hverju
erindi og einnig tilvitnanir, misjafnlega víðtæk-
ar.
Flestir höfundar eru frá Norðurlöndum en
sérstakur gestur ráðstefnunnar var Morton 1.
Grossman frá Los-Angeles og talaði hann um
patofysiologiu ulcus pepticum. Ræðir hann um
hina ýmsu mögulegu orsakapætti fyrir ulcus
pepticum, magasýru, mótstöðu slímhúðarinn-
ar, prostaglandin, erfðarpætti og umhverf-
ispætti. Pá bendir höfundur á að orsakir ulcus
pepticum séu ekki pekktar enn sem komið er.
í kaflanum er síðan rætt um epidemiologi,
motorik, sýrulækkandi áhrif antacida og áhrif
antacida á gastrinmyndun.
f 2. klafla er fjallað um notkun antacida við
meðferð á ulcus pepticum. Bent er á, að sýnt
hafi verið fram á að ekki sé staðfræðilegur
munur á árangri meðferðar með stórum
skömmtum af antacida og cimetidin meðferð.
Jafnframt að nota megi antacida og cimetidin
saman með góðum árangri.
í 3. kafla er fjallað um aðalefni ráðstefnunn-
ar, p.e.a.s. verkunarmáta og árangur af trimi-
pramin (Surmontil) meðferð við ulcus pepti-
cum. Bent er á, að trimipramin minnki sýru-
myndun með pví að minnka framleiðslu á
gastrini. Rætt er um áhrif trimipramins á
svonefndar maskeraðar depressionir og við
röntgen negatíva dyspepsiu.
Sagt er frá niðurstöðum rannsókna á áhrif-
um trimipramins á maga og skeifugarnasár og
talið að árangur af trimipramin meðferð sé
svipaður og cimetidin meðferð, en notaðir eru
skammtar á bilinu 50-75 mg að kvöldi. Þá er
einnig bent á möguleika á að nota trimipramin
og cimetidin saman í ulcus meðferð, en ekki
sagt frá niðurstöðum neinna rannsókna í
sambandi við pá meðferð.
Loks er stuttlega minnst á cimetidin meðferð
og recidiv tíðni eftir meðferð með cimetidini
og að lokum áhrif prostaglandin E2 á sýru-
myndun og mucinmyndun í maga.
Seinasti kafli bókarinnar er síðan panelum-
ræða og er hún á köflum skemmtileg og
fróðleg.
Mér sýnist pessi bók að mörgu leyti gagn-
leg, en er frekast skrifuð fyrir sérfræðinga í
greininni. Ekki fæst neitt tæmandi yfirlit en
stiklað er á stóru um petta efni. Hafi menn
aftur á móti sérstakan áhuga á efninu eru ýmis
atriði, sem minnst er á, gagnleg og fróðleg.
Einar Oddsson.