Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.05.1980, Qupperneq 13

Læknablaðið - 15.05.1980, Qupperneq 13
LÆKNABLADID 107 mg./dl. meðal 46-49 ára karla, en virðast síðan heldur fara lækkandi (4). Af þeim 5 % fólks, sem samkvæmt ofannefndri skilgreiningu hafa hækkað kólesterol, þá virðist sem einn af hverjum tuttugu þeirra hafi arfbundna hyper- kólesterolemiu (F. H.), sem hér er til umræðu (12). Hún er pví aðeins lítill hluti af heildarhópi peirra einstaklinga, sem hafa hyperkólesterol- emiu samkvæmt ofannefndri skilgreiningu, en engu að síður afdrifarík fyrir pessa einstak- linga. Rannsókn í Seattle í Bandaríkjunum leiddi í Ijós, að í hópi þeirra, sem fengið höfðu kransæðastíflu fyrir 60 ára aldur hafði einn af hverjum tuttugu arfbundna hyperkólesterol- emiu (F. H.) (12). Tvisvar til þrisvar sinnum fleiri af pessum kransæðasjúklingum höfðu »familial combined hyperlipidemiu« og ámóta margir »sporadiska« og/eða polygenic hyper- kólesterolemiu« (12, 26). Meðferð Þar sem flestir álíta að þessum hópi einstak- linga með F. H. sé hættara við æðakölkun en öðrum vegna hækkaðrar péttni á LDL- kóle- steroli í blóði peirra, hefur verið reynt að lækka péttni pess með ýmsu móti. Breytt mataræði (minnkuð neysla á mett- aðri dýrafitu og fleira) eitt sér gagnar að öllu jafnaði mun verr í þessum hópi en öðrum með hækkað kólesterol, enda þótt vert sé að reyna pað í öllum tilvikum þar sem sumir peirra, einkum peir yngri, svara pó nokkuð (10-15 %). En til þess að ná LDL-kólesterolpéttni niður í æskileg gildi parf í mörgum tilvikum að grípa til lyfjameðferðar. Clofibrate (Atromid-S) eitt sér verkar yfirleitt fremur lítið til lækkunar á LDL-kólesteroli í pessum hópi sjúklinga en einstaka peirra svara þeirri meðferð pó allvel (15). Þau lyf, sem verka best í þessari tegund hyperkólesterolemiu eru gallsýrubindandi re- sin, sem hindra endurupptöku gallsýranna í ileum terminale (rjúfa enterohepatic circulatio peirra) og auka pannig útskilnað kólesterols í formi gallsalta (15). Cholestyramine (Que- stran) hefur lengi verið notað í skömmtum 16- 32 gr./dag og veldur allt að 25-35 % lækkun á LDL-kólesteroli (21). Lyfjatakan veldur pó stundum verulegum aukaverkunum, einkan- lega hægðatregðu og meltingaróþægindum, getur m.a. ýft upp gamalt magasár og getur truflað upptöku annarra lyfja. Annað gallsýru- bindandi lyf, sem hefur komið á markað erlendis á síðustu árum, er Colestid (Colestipol hydrochloride). Þetta lyf, í skömmtum 15-30 Table 1. Effect of Colestid therapy, 10 Gx 3/day for 2-3 months. Subject Total serum cholesterol mg/ml LDL-cholesterol mg/dl Control Therapy Control Therapy G.G .... 459 322 321 227 S. M .... 440 268 281 158 H.S .... 351 233 243 134 B. G .... 435 249 278 149 V. G .... 559 400 375 251 L. K .... 371 238 241 129 Mean ±S. D. 453 285 290 175 ±82 • ± 65 ±51 ±51 LDL var einangrað með hraðskilvindu (Tilraunastöð HÍ að Keldum). Kólesterólmæglingar voru gerðar í Rannsókn- arstöð Hjartaverndar. Höfundur kann pessum aðilum bestu pakkir. gr./dag, lækkar LDL-kólesterol svipað og Cholestyramine (7) (sbr. töflu 1, sem sýnir nær 40 % lækkun), en er talið valda heldur síður aukaverkunum en Cholestyramine. Full verk- un þessara lyfja er komin eftir um 4-6 vikur. Þessi gallsýrubindandi resin lækka eingöngu LDL-kólesteroI, en hafa óveruleg áhrif á HDL en hækka stöku sinnum VLDL. Verkunarmáti Colestid á niðurbrot lipoproteinanna er nú til rannsóknar, en niðurstöður hennar verða bir- tar annars staðar. Aukaverkanir pessara resi- na eru pó háðar skammti og með minni skömmtum má oft forðast pær, í skömmtum t.d. 12-15 gr./dag, en gefa jafnframt Atromid-S í skömmtum 1-2 gr./dag eða pá Nicotinic sýru, sem lækkar kólesterol með pví að minnka framleiðslu pess í lifrinni (15). Gallsýrubind- andi lyf verka á svipaðan hátt og brottnám á terminal ileum (eða »partial ileal by-pass«) par sem endurupptaka gallsýra á sér stað (6). Þessi aðgerð hefur verið notuð sums staðar til lækkunar á kólesteroli í F. H. par sem hún Iækkar kólesterol enn meir en lyfjameðferð (6, 21), enda pótt hún hafi oft talsverða aukakvilla. Rannsókn fer nú fram í Bandaríkjunum til að meta gildi pessarar aðgerðar til hindrunar æðakölkunar í F. H. Með áðurnefndum lyfjum og matarráðgjöf má í flestum tilvikum af arfblendinni F. H. lækka kólesterol niður undir paö sem flestir aðrir hafa og xanthelasmata palpebrarum hafa minnkað við meðferð og jafnvel xanthomata á sinum. Hins vegar er ekki fyllilega sannað hvort pað sé nóg að hefja meðferð pegar fullorðinsaldri er náð til að hindra myndun

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.