Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 19

Læknablaðið - 15.05.1980, Blaðsíða 19
LÆKNABLADID beðnar að reyna að muna, í hvaða bekk þær voru við fyrstu tíðir, hvort þær hafi borið uppá sumar eða vetur, nálægt jólum, páskum, af- mælisdegi eða öðrum hátíðisdegi fjölskyld- unnar. Þannig var þeim hjálpað til þess að muna atburðinn. »Status quo«-aðferðin var notuð í þessari rannsókn, eins og henni var lýst af Finney (’47) (8) til þess að ákvarða meðalaldur við upphaf fyrstu tíða ásamt staðalskekkju meðaltalsins (S. e.), staðalfráviki (S. D.), til þess að ákvarða probitlínuna og til þess að gera Kí-kvaðrat (chi square test). Eftir að Schiots kynnti þessa aðferð í grein sinni um skólabörn í Osló (26), hefur hún almennt verið talin best og er mest notuð við útreikninga á þverskurðarúrtaki (12). NIÐURSTÖÐUR Tafla 1 sýnir, status quo, niðurstöður alls hópsins, 682 stúlkna, sem skipt var í hálfs árs hópa samkvæmt aldri stúlknanna á skoðunar- degi. Meðalaldur hópanna er gefinn ásamt fjölda stúlknanna í hverjum hópi, en jafnframt fjöldi og prósentutala þeirra stúlkna úr hverj- um hópi, er fengið hafa tíðir. Einnig birtir taflan meðalaldur við fyrstu tíðir hjá hverjum hópi um sig og viðkomandi probit. Engin stúlknanna í hálfsárs aldurshópnum með meðalaldur fyrir neðan 11.75 ár hafði haft tíðir. Á hinn bóginn höfðu allar stúlknanna í hópnum með meðalaldur fyrir ofan 15.75 ár haft tíðir að einni undanskilinni. Probit regres- sion línan (fig. 1) var Y = 0.8580 x X —6.2099, sem setur meðalaldurinn við upphaf fyrstu tíða 13.06 ±0.10 ár með S.D. 1.17 ár. Frávikin kringum regression línuna eru ekki marktæk; Kí-kvaðrat sýndi 0.85 með fjórum frígráðum, sem bendir til mikillar nákvæmmi. Samkvæmt upplýsingum stúlknanna (recall method) fékk sú fyrsta tíðir 9.83 ára, en sú elsta 15.17 ára. UMRÆÐA Þar sem íslendingar eru lítt frábrugðnir hver öðrum, bæði hvað snertir erfðir og fjárhags- aðstöðu (19), má væntanlega líta á hóp þann, er rannsókn þessi byggist á sem einkennandi fyrir landið í heild, ekki síður en fyrir skóla- stúlkur í Reykjavik. Flestir fræðimenn telja ísland hafa byggst fyrir um 1100 árum frá suðurhluta Noregs, frá Table 1. Percentage of menstruating girls at each six months interval in age. Mean age (years) Total number Number menstru- ating Percen- tage menstru- ating Probits 11.75 44 6 13.6 3.9031 12.25 36 7 19.4 4.1385 12.75 47 21 44.7 4.8665 13.25 32 17 53.1 5.0782 13.75 37 27 73.0 5.6116 14.25 43 36 83.7 5.9830 14.75 43 39 90.7 6.3225 15.25 51 51 100.0 10.0000 15.75 32 31 96.9 6.8631 Danmörku og Svíþjóð, einnig Bretlandi, en einkum af Norðmönnum eða fólki af norskum uppruna (11, 13). Því er samanburður á upphafi tíða hjá íslenskum stúlkum við upphaf tíða hjá stúlkum frá þessum löndum áhugaverður. Meðalaldurinn (13.06±0.10 ár) er svipaður og 13.23 ár í Osló 1970 (4), 13.20 ár í Kaupmannahöfn 1964 (1) og 13.16 ár i Finn- landi (33). Meðalaldurinn við upphaf fyrstu tíða, sem var í London 13.02 ár (30) og 13.23 í Osló (4) virðist hafa stöðvast á stefnu sinni til lækkaðs meðalaldurs. Ekki hefur verið sýnt fram á þessa stöðvun á hinum Norðurlöndunum, né flestum öðrum hlutum heims.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.