Læknablaðið - 15.05.1980, Qupperneq 29
LÆKN ABLADIÐ
117
lyfseöla á eftirritunarskyld lyf fækkað um
rúmlega 40 %. Eflaust spyr margur hvort
eitthvað og þá hvað hafi komið í stað þeirra
lyfjakílóa sem horfið hafa úr sölu. Ekkert
bendir þó til að pað séu önnur vanabindandi
lyf .frá læknum, og í pví sambandi skal
sérstáklega bent á að sala benzódíazepínlyfja
á íslandi var árið 1978 um 20 % minni en árið
1976.
Erfitt er að gera sér grein fyrir breytingum á
neyslu annarra vímugjafa hérlendis. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Afengis- og tóbaks-
verslun ríkisins jókst sala áfengis þaðan lítið á
pessum árum. Var hún árið 1976 svarandi til
2,85 lítra, árið 1977 3,08 lítra og árið 1978 2,96
lítra af hreinum vínanda á hvern íbúa landsins.
Sala á tollfrjálsu áfengi mun vera svipuð frá
ári til árs. Rökstuddur grunur leikur á pví að
neysla heimabruggaðra vína og öls hafi aukist
stórlega á íslandi síðustu árin. Ástæða er til að
ætla, að margir neytendur noti sér róandi og
svæfandi verkun áfengisins.
Ekki er unnt að gera sér grein fyrir ólög-
legri sölu og neyslu fíkniefna og lyfja á íslandi,
en gera verður ráð fyrir nokkurri aukningu.
Neysla smyglaðra fíkniefna er vandamál sem
taka verður föstum tökum. íslensk yfirvöld
ættu að standa betur að vígi en yfirvöld
milljónapjóða til að hamla gegn pessum vá-
gesti vegna fámennis pjóðarinnar.
Hin mikla lækkun á sölu díazepams á
efalítið að mestum hluta rætur að rekja til pess
að 10 mg töflurnar voru teknar af skrá á árinu
1977. Einnig hefur verið fylgst með ávísunum
lækna á benzódíazepín-lyf á ákveðnum tíma-
bilum og hefur landlæknir ritað peim bréf ef
ábendingum um hámarksskammta hefur ekki
verið fylgt.
Margir álíta, að ávísað magn benzódíaze-
pín-lyfja sé enn of mikið á Islandi, og að
notkun peirra sé ekki alltaf studd læknisfræði-
legum rökum. Þeim fylgir ekki sú bráða eitr-
unarhætta sem af barbítúrlyfjum. Má benda
á, að barbítúreitranir, sem voru aðalorsök
innlagna vegna lyfjaeitrana hérlendis á árun-
um fyrir 1970, eru nú orðnar næsta fátíðar (5).
Önnur lyf, svo sem nítrazepam, hafa nú leyst
barbítúrlyfin af hólmi að miklu leyti. Pað er
flestum Ijóst nú, að benzódiazepín-lyfjum fylg-
ir einnig ávanahætta, og grunur leikur á, að
pau geti valdið fósturskemmdum. Landlæknir
hefur af pessum sökum lagt til, að þessi lyf
verði gerð eftirritunarskyld, til að komið verði
við stöðugu eftirliti með ávísunum á þau.
SUMMARY
During the years 1972-1976 drug prescriptions and
sales of drugs were surveyed in Iceland. Compared
with the other Nordic countries, except Denmark,
the sales of psychotropic drugs which may lead to
addiction were highest in lceland, as previously
reported. The efforts of the Icelandic Health Autho-
rities to reduce the legitimate consumption of
psychotropic drugs are explained. These efforts are
mainly directed towards doctors’ prescriptions to
out-patients.
A survey of prescriptions and sales of drugs in
lceland in 1976-1978 revealed following facts:
1. The number of individuals receiving drugs sub-
ject to reporting in Iceland has decreased by
40 % between 1976 and 1978.
2. The prescribed amount of hypnotics and sedati-
ves subject to reporting decreased by 40 %
between 1976 and 1978.
3. The prescribed amount of narcotic analgesics
decreased by 20 %.
4. The prescribed amount of amphetamine and
related drugs decreased by 40 %.
5. The amount sold of diazepam and related drugs
has decreased by 20 %.
The available data suggest that EDB-registration of
prescriptions subject to recording and feed-back to
doctors about their prescription habits contributes
to a reduction in the use of the drugs recorded.
HEIMILDIR
1. Almar Grímsson, J. Idánpaan-Heikkilá, P. K. M.
Lunde, Ólafur Ólafsson og B. Westerholm. För-
brukning av psykofarmaka i Finland, Island,
Norge och Sverige. Nordisk Medicin 1977: 92,
49-54.
2. Almar Grímsson og Ólafur Ólafsson: Drug
Prescription in lceland. Brit. J. Prev. Social Med.
1977:31,65-66.
3. Almar Grimsson og Ólafur Ólafsson: Lyfjaávís-
anir í Reykjavík. Tímarit um lyfjafræði 1975: 10
(1), 21-27.
4. Almar Grímsson og Ólafur Ólafsson: Lyfjanotk-
un í Reykjavík. Læknablaðið 1977:3-4, 69-72.
5. Guðmundur Oddsson: Lyfjaeitranir á lyflæknis-
deild Borgarspítala 1971-1975. Læknablaðið
1979: Fylgirit nr. 6, 120-125.
6. Landlæknisembættið. Dreifibréf 1975.
7. Nordisk Lákemedelstatistik 1975-1977. Del I.
Nordiska lákemedelsnámnden, Helsingfors 1979.
8. Ólafur Ólafsson og Almar Grímsson: Neysla
ávana- og fíkniefna og geðlyfja á Íslandi. Lækna-
blaðið 1977:3-4, 65-68.
9. Ólafur Ólafsson: Um eftirritunarskyld lyf, skrá-
ningu og eftirlit I. Læknablaðið 1979: 3, 155-156.
10. Stjórnartíðindi B nr. 230/1976.