Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1980, Page 34

Læknablaðið - 15.05.1980, Page 34
122 LÆKNABLAÐID meö þennan sjúkdóm, aö það réttlæti brott- nám ristils. Pegar um familial þolyþos er að ræða, breytist sá sjúkdómur uþþ til 100 % í (6, 1) illkynja sjúkdóm og ber því, strax og greiningin familial polyposis liggur fyrir, að nema brott ristil og endaþarm. Orsakir krabbameins í ristli og endaþarmi eru óþekktar. Með rannsóknum á erfðum, umhverfi og mataræði, virðast þó ýmsir þættir hafa stærri fylgni, þegar um er að ræða krabbamein í ristli og endaþarmi. Hvað erfð- um viðvíkur, virðast afkomendur fólks með krabbamein í ristli og endaþarmi fá kvillann helmingi oftar en fólk í fjölskyldum, þar sem ristilkrabbi er óþekktur og þar að auki virðist sem meðalaldur við greiningu sé um 40 ár eða jafnvel yngri. Mataræði og umhverfi virðast skipta tölu- verðu máli. Fólk sem neytir trefjaríkrar fæðu fær mjög sjaldan krabba í ristil og endaþarm. Ástæðan fyrir þessu er sennilega sú, að gegnumferðartími (þassage) er stuttur og að carcinogenefni í þarmainnihaldinu fá þar af leiðandi mun styttri exponeringstíma. Rann- sókn frá Tel Aviv bar saman mataræði hjá unt 200 sjúklingum með krabbamein í ristli og jafnstórs hóps frískra (8). Stærsti mismunur á fæði hjá þessum tveimur hópum var sá, að krabbameinshópurinn neytti mun minni trefja- ríkrar fæðu. Athyglisvert er, að við krabba- mein í endaþarmi fannst ekkert samband þarna á milli. Hill og samstarfsmenn hans hafa sýnt fram á, að fituríkur (8) matur eykur magn gallsýra í saur og jafnframt að sjúklingar með krabba- mein í ristli hafa mun meira af klebsiella og clostridia-bakteríum í ristli en frískir. Þessar bakteríur virðast geta brotið niður gallsýrur í stera. Virðist þetta geta minnkað mótstöðu- kraft slímhimnu. Það þykir því sannað að krabbamein í ristli er mun algengara hjá fólki, sem neytir fitu- ríkrar fæðru án trefja. Krabbamein í ristli virðist aukast því nær sem dregur anus. Nær öllum höfundum ber saman um, að staðsetning æxla í ristli og krabbameini sé mjög lík landfræðilega og milli ólíkra þjóða og fundum við engan teljandi mun, þegar gengið var gegnum rit í þessum efnum. I stuttu máli má segja, að um helmingur allra tilfella náist með fingri og rectoscopi, þ.e.a.s. staðsetning neðan 20 cm markanna frá anus. Hinn helmingurinn virðist dreifast milli coecum og sigmoideum, en flexulur og colon transversum virðist sleppa tiltölulega vel. Allir höfundar, sem skrifa um þessi mál, virðast nota Dukes greiningu í A, B, C og D stig, þar sem A-stig er nánast carcinoma in situ og einungis breytingar í slímhúð. Við B-stig er muskularis proþia gegnumvaxin og æxlið nær út í cerosa. Við C-stig er um að ræða lokal- nteinvörp í sogæðakirtlum og við D-stig hafa meinvörp náð fram til lifrar, lungna og annarra líffæra (dótturæxli). í Malmö-skýrslunni (1) voru flest æxli greind á B-stigi, eða um 38 %. Aðeins 17.2 % fundust á A-stigi og 23-24 % innan C-stigs. Fjarlæg dótturæxli (D-stig) var í 21 % tilfell- anna. Lengi hafa menn velt fyrir sér, hvernig dreifing getur átt sér stað á cancer-frumum og virðist sem um fimm möguleika sé að ræða. 1. Með beinum ífarandi vexti gegnum öll lög. 2. Sáning á frumum beint út 1 kviðarhol (peritonelcarcinosis). 3. Eftir lymfubrautum í kirtla. (Kannske það sem mestu máli skiptir). 4. í gegnum blóðstrauminn beint. 5. Svokölluð sáning æxlisfruma í sárum og við sauma í og við samskeyti. Einkenni Nokkur munur virðist vera á einkennum frá hægra og vinstra ristli. Krabbamein í hægra ristii virðist gefa minni einkenni og uppgötvast því oft seinna. Við fundum í athugun okkar í Orebro (2), að breytingar á hægðavenjum voru um fjórðungur einkenna, blæðingar frá endaþarmi einnig í um fjórðung einkenna og verkir í kviðarholi í fimmtung. Það sem vekur athygli er hversu mjög mismunandi einkennin eru hjá hinum ýmsu höfundum og eru margir þeirrar skoðunar, að verkir og óþægindi í kviðarholi sé það sem fyrst rekur sjúkling til læknis. I skrifum um þessi efni er alls staðar strikað undir þá staðreynd, að fyrstu einkennin eru oftast almenns eðlis, þreyta, blóðleysi, magnleysi og þyngdartaþ. Af þessum einkenn- um hafa sumir höfundar fundið krabbamein í ristli og endaþarmi í allt að helmingi sinna tilfella. Greining Óþarfi er að fjölyrða um greiningu þessa sjúkdóms, því það sem hér skiptir öllu máli er að muna eftir því, að sjúkdómurinn er til. Fingurþreifing í endaþarm, rectoscoþi og rist- ilmyndataka hafa lengi verið og eru enn þau

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.