Læknablaðið - 15.05.1980, Side 43
LÆKNABLADIÐ
127
sér upp eigin valdapýramída án vitundar
stjórnar sveitarfélagsins, eða stofnunarinnar.
Vegna pessa voru árið 1978 settar í norsk lög
ákveðnar reglur um ábyrgð lækna, sérlega
hvað varðar geðhæli. Eru pessi lög hugsuð
sem vernd fyrir sjúklinga. Fær yfirlæknir
samkvæmt þessum lögum í sínar hendur öll
völd til ákvörðunar innan sjúkrastofnunar-
innar, en hver einstakur starfsmaður hefur pó
áfram faglega ábyrgð. H vað teymisvinnu snertír
er skylt að markmið hennar séu skýr og að
ákveðinn aðili fái vald til lokaákvarðana.
Til þess að ræða þessi mál komu á þingið 2
fyrirlesarar.
Herr Tömmerás, hjúkrunarfræðingur, sem
er yfirhjúkrunarfræðingur við sjúkrahús í Tele-
mark, lagði mikla áherzlu á hjúkrunarfræð-
ingsstarfið í sambandi við þetta. Ræddi hann
almennt um ábyrgð hjúkrunarfræðinga og
lagði mikla áherzlu á, að hjúkrunarfræðingar
vilja nú endurskilgreina sitt fag og fá meiri
tíma fyrir hvern sjúkling. Vegna þessa hafa
þeir skilið eftir göt í sínu eldra starfssviði, sem
sjúkraliðar hafa nú áhuga á að fylla, og eru
norskir hjúkrunarfræðingar ekki alls kostar
ásáttir um það, ekki sízt eftir að sjúkraliðar
fóru að tala um framhaldsnám á sínu starfssviði.
Steenfeldt Foss, yfirlæknir í heilbrigðisráðu-
neytinu, ræddi nokkuð um rétt yfirvalda til
að vita hvað fari fram á hverri sjúkrastofnun.
Vegna þessa sagði hann lögin sett um profes-
sion ansvar. Varð honum nokkuð tíðrætt um
geðræn fyrirbrigði, enda sjálfur geðlæknir.
Lagði hann mesta áherzlu á, að við hættum
að tala um lýðræði innan heilbrigðisþjón-
ustunnar.
LOKAORÐ
Þetta þing var mjög fróðlegt. Þarna komumst
við í kynni við unglækna frá hinum Norður-
löndunum og fengum vitneskju um þau mál,
sem þeir eru að fjalla um og skiptumst á
reynslu. Er ótrúlegt hve margt við eigum
sameiginlegt með þeirri.
Næsta þing verður haldið í Stokkhólmi 6.
júní 1980. Á þá að ræða um reglur varðandi
skipun lækna í embætti. Er full ástæða fyrir
okkur að taka áfram þátt í þessu samstarfi og
senda fulltrúa á þingið.
Svipmyndir frá móti unglækna í Osló í desember
1979. Á minni myndinni má sjá norsku fulltrúana
leggja á ráðin, en peirri stærri getur að líta hvar
sænsku fulltrúarnir eru í þungum pönkum.