Læknablaðið - 15.05.1980, Qupperneq 44
128
LÆKNABLADID
AÐALFUNDUR LÆKNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR 1980
Aðalfundur Læknafélags Reykjavíkur 1980
var háldinn í Domus Medica miðvikudaginn
12. marz kl. 20.30.
Formaður setti fundinn og bauð fundar-
menn velkomna. Að því loknu tilnefndi hann
fundarstjóra Viðar Hjartarson.
Fyrsta mál á dagskrá var skýrsla stjórnar,
sem formaður flutti. Skýrslan var lögð fram á
fundinum fjölrituð.
Formaður minntist þriggja látinna félaga,
þeirra Björns L.. Jónssonar, f. 04.02.1904, d.
14.09.1979, Karls Jónssonar, f. 06.11.1896, d.
02.01.1980 og Ólafs Ólafssonar, f. 01.12.1899, d.
13.10.1979.
Sú nýbreytni var tekin upp á árinu að fella
niður árgjald til L. R., en innheimta aðeins eitt
árgjald fyrir L.Í., en síðan fær L. R. hluta af
peirri greiðslu eins og önnur svæðafélög.
Prír almennir fundir voru haldnir á árinu á
vegum L. R. Aðalstjórn hélt 38 fundi, fundir
með meðstjórn voru 9 og sameiginlegir fundir
stjórna L. R. og L. í. voru einnig 9.
Á árinu átti L. R. 70 ára afmæli, en pað var
stofnað 18. október 1909. Af pví tilefni efndi L.
R. til afmælishófs að loknu Læknapingi pann
28. september með pátttöku fulltrúa frá öðrum
svæðafélögum.
Af peim málum, sem komu til umfjöllunar
hjá stjórn L. R. á árinu, voru pessi helzt:
Siðanefndarmál
Á fyrra ári hafði komið til ágreinings innan
félagsins varðandi ákvæði í grein 10 í samningi
um sérfræðilæknishjálp eins og getið er um í
síðustu ársskýrslu L. R. Að afloknum fundi
pann 25. október 1978 var málinu vísað til
Siðanefndar Læknafélags íslands. Siðanefnd
kvað upp úrskurð 23. nóvember 1979, sem
birtur er í heild í desemberhefti Læknablaðs-
ins, en úrskurðurinn er í stuttu máli á pá leið,
að ákvæði greinar 10 brjóti ekki í bága við
siðareglur lækna.
Skipuð var nefnd til að endurskoða grein 10,
og voru í henni Þorvaldur Veigar Guðmunds-
son, Grétar Ólafsson og Magnús Karl Péturs-
son, og hefur sú nefnd skilað áliti, sem
væntanlega verður lagt til grundvallar við
næstu samninga.
Gerdardómsmál
Á árinu reis upp ágreiningur milli L. R. og
Tryggingastofnunar ríkisins um túlkun á 12.
grein samnings um sérfræðilæknishjálp. Nokkr-
ir læknar höfðu sagt sig undan samningnum
með pað fyrir augum að losna undan samningn-
um frá 1. júlí 1979, en af hálfu T. R. var pví
haldið fram, að ekki væri unnt að segja sig
undan samningnum, fyrr en hann væri útrunn-
inn 31. október 1979. Málinu var vísað til
Gerðarðóms. Meiri-hluti Gerðardóms úrskurð-
aði, að læknar væru bundnir af samningnum
til 31. október 1979. Minni hluti Gerðardóms
skilaði sératkvæði á pá lund, að umræddar
uppsagnir hefðu tekið gildi 1. júlí 1979.
Kópavogsmál
í ágúst 1979 barst stjórn L. R. bréf frá
Sjúkrasamlagi Kópavogs, par sem óskað er
eftir samningsviðræðum við félagið um vinnu
heimilislækna í Kópavogi og kvöld- og helgi-
dagapjónustu, auk pess um aðstöðu lækna við
væntanlega heilsugæzlustöð í Kópavogi. Þá
barst L. R. bréf frá heimilislæknum í Kópavogi-
sem upplýstu, að peir hefðu verið boðaðir á
fund með stjórn Heilsuverndarstöðvar Kópa-
vogs til að semja um aðstöðugjald af hendi
lækna til stöðvarinnar. Læknarnir óskuðu
eftir, að L. R. annaðist pennan samning fyrir
þeirra hönd. Svipuð beiðni barst skömmu
síðar frá læknum í Hafnarfirði af svipuðu
tilefni.
Stjórn L. R. skipaði samninganefnd, sem
annast skyldi pessa samninga fyrir Kópavog
og Hafnarfjörð, og voru í henni Guðmundur
H. Þórðarson, Gunnsteinn Gunnarsson, Leifur
Dungal og Guðmundur Elíasson.
í lok október var fundur haldinn með stjórn
Heilsuverndarstöðvar Kópavogs, par sem
læknar neituðu að greiða aðstöðugjald, en
buðu upp á samninga á grundvelli gildandi
laga um heilbrigðispjónustu. Auk pess átti