Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Blaðsíða 2
Það var fimmta september í haust
sem sextán ára piltur var handtekinn
eftir að hafa stungið mann í bakið,
við Skautahöllina í Reykjavík. Engin
sjáanlega ástæða var fyrir ódæðinu.
Í yfirheyrslum sagði drengurinn að
hann vildi bara prófa að myrða mann.
Í dómsorði segir hann að hvatinn fyr-
ir ódæðinu hafi verið kvikmyndir og
ofbeldisfullir leikir sem hann spilaði
nær stanslaust samkvæmt
einstaklingi sem honum
var kunnugur.
Vildi verða múrari
Í fyrstu virðist pilturinn hinn eðli-
legasti. Hann var einrænn en hafði
áhuga á stelpum, hundum, tónlist
og Playboy eins og margir ungir pilt-
ar. Uppáhaldslitur hans var svartur
og besta mynd sem hann hafði séð
var 8 Mile, sem rapparinn Emin-
em lék aðalhlutverkið í. Hann segir
á einni heimasíðu að hann langi til
þess að verða múrari og hlusti mik-
ið á 50 Cent, rapparann sem er vin-
sæll á meðal unglinga. Þá talar hann
ágætlega um grunnskólann og var
virkur á spjallsvæðum á vefnum sem
tengdust tölvuleikjum.
Auðveldara að drepa samkyn-
hneigðan
Það var einmitt á netinu sem pilt-
urinn kynntist manninum. Þá þegar
hafði hann ákveðið að hann ætlaði að
bana honum. Hann taldi að auðveld-
ara væri að kynnast samkynhneigð-
um manni því það væri hægara að
hitta hann. Á netinu kallaði
hann sig DJ Saki og
hitti manninn á
heima-
síðunni
betra.net. Þar
áttu þeir í samskipt-
um þar til þeir ákváðu að hitt-
ast.
Pilturinn ætlaði að myrða mann-
inn í fyrsta skiptið sem þeir hittust.
Hann hafði þó ekki kjark til þess
þannig að þeir skiluðu sér báðir
heim, heilir á húfi. Í annað skiptið
sem pilturinn hitti manninn þá hafði
hann ráðgert að stinga hann í brjóst-
ið um leið og hann hitti manninnn.
Líkt og fyrr var það heigulsháttur
sem bjargaði lífi mannsins.
Stunginn í bakið
Það var ekki fyrr en þeir stað-
næmdust fyrir utan Skautahöllina
sem pilturinn taldi í sig kjark. Hann
var þá vopnaður vasahníf en blaðið
var tæplega tíu sentimetra langt.
Maðurinn sagðist þurfa að fara út
að pissa og fór út úr bílnum. Pilturinn
fór með honum og reykti sígarettu. Á
meðan maðurinn kastaði af sér vatni
fann hann bylmingsfast högg lenda
á bakinu. Í fyrstu hélt hann að
strákurinn hefði lam-
ið sig. Hann sneri
sér við og sá hann
hlaupa á brott.
Hann þreifaði þá
á bakinu og fann hnífinn standa þar
út. Honum tókst að hringja í vin sinn
sem síðar kom og ók honum á spítala
þar sem gert var að sárum hans.
Tölvuleikir og einelti
Í Héraðsdómi Reykjavíkur segir
pilturinn að kveikjan hafi verið tölvu-
leikir og bíómyndir. Einnig kom í ljós
að hann hafði verið lagður þó nokk-
uð í einelti í grunnskóla en hann sótti
nám í Hveragerði en býr nú í Reykja-
vík. Rannsóknir sálfræðinga leiddu
í ljós að hann er sakhæfur en jaðrar
við að heyra undir skilgreiningu um
að vera þroskaheftur. Hann mældist
afar lágt á greindarprófi og að auki
sýndi hann viðbrögð um einhverfu
þegar hann var yngri.
Viðmælandi DV sem gat ekki
komið fram undir nafni vegna við-
kvæmra tengsla við málið segir pilt-
inn með þroska á við ellefu ára gam-
alt barn. Hann segir dóminn þungan
og harðan. Hann gagnrýnir einnig
að pilturinn þurfi að sæta fangelsis-
vist því það er ljóst að hann er ekki í
stakk búinn til þess að vera vistaður
á meðal harðsvíraðra glæpamanna.
Í dag dvelur hann á meðferðarheim-
ilinu Stuðlum þar til annað verður
ákveðið.
Hann mun afplána fjögurra ára
fangelsisdóm og að auki þarf hann
að greiða fórnarlambi sínu 600 þús-
und krónur.
valur@dv.is
föstudagur 9. febrúar 20072 Fréttir DV
Á morgun, laugardaginn 10.
febrúar, klukkan 11 efnir Dagblaðið-
Vísir, nýtt útgáfufélag DV til göngu
um söguslóðir blaðsins í Reykjavík.
Vísir var fyrst gefið út árið 1910 og
er blaðið því elsta dagblað lands-
ins. Gengið verður undir leiðsögn
Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi
ritstjóra blaðsins. Jónas gjörþekkir
sögu DV og mun rekja hana á göng-
unni á meðan helstu sögustaðir
blaðsins verða heimsóttir. Jónas rit-
stýrði Vísi á árunum 1966 til 1975 og
Dagblaðinu á árunum 1975 til 1981.
Jónas var jafnframt fyrsti ritstjóri DV,
eftir samruna blaðanna árið 1981.
Gangan hefst við Síðumúla 12,
en langferðabifreið verður til stað-
ar, þar sem hluti leiðarinnar verður
ekinn. Auk Síðumúla verður komið
við í Þverholti og Skaftahlíð, þar sem
blaðið var áður til húsa. Ferðinni
lýkur í nýjum heimkynnum blaðsins
í Brautarholti 26 þar
sem boðið verð-
ur upp á hress-
ingu.
Ekki þarf
að taka frá
sæti í ferðina
en gestum er
bent á að mæta
tímanlega.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Sextán ára piltur var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Aðspurð-
ur af hverju hann framdi glæpinn svaraði hann því til að hann vildi bara prófa að drepa
manneskju. Hann er sagður með þroska á við ellefu ára barn.
Sextán ára piltur hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyr-
ir morðtilraun sem átti sér stað í september á síðasta ári. Piltur-
inn stakk samkynhneigðan mann í bakið því hann vildi prófa að
drepa. Í dómsorði kemur fram að pilturinn geti ekki lofað því að
hann endurtaki ekki leikinn. Einn viðmælenda blaðsins, sem gat
ekki komið fram undir nafni vegna persónulegra tengsla, segir
piltinn með þroska á við ellefu ára barn.
Jónas Kristjánsson stýrir göngu:
Gengið um söguslóðir DV
„Það má segja að ég hasli mér
völl þar sem baráttan verður
hörðust í kosningabaráttunni,“
segir Kristinn H. Gunnarsson
þingmaður, sem skipti í gær úr
Framsóknarflokknum í Frjáls-
lynda flokkinn. Hann segir nýja
flokkinn sinn verða að fá góða
kosningu til að ríkisstjórnin falli.
Kristinn sóttist eftir fyrsta sæti á
lista framsóknarmanna í Norð-
vesturkjördæmi en lenti í því
þriðja og fór þá að íhuga framtíð
sína. „Síðan kemur náttúrulega
til viðbótar að flokkurinn ákveð-
ur að ganga gegn sinni eigin
stefnu í málefnum Ríkisútvarps-
ins, breytir því í hlutafélag og
fellur frá því að setja inn í stjórn-
arskrá ákvæði um þjóðareign á
auðlindum sjávar.“ Hann tiltekur
stefnu frjálslyndra í auðlinda-
málum sem þætti sem hafi haft
áhrif á ákvörðun sína að ganga
til liðs við þá en segir ekkert
ákveðið í framboðsmálum.
Getur ekki lofað að
hætta morðtilraunum
„Hann var einrænn en
hafði áhuga á stelp-
um, hundum, tónlist og
Playboy eins og margir
aðrir ungir piltar“
Kristinn H.
frjálslyndur
„Ég býð hann velkominn,“
segir Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins.
„Kristinn er að mörgu leyti öfl-
ugur þingmaður.“
Guðjón Arnar segir ekkert til
í vangaveltum um að hann bjóði
fram annars staðar en í Norð-
vesturkjördæmi. „Þær hljóta að
vera komnar frá páfanum. Ég
veit ekki til þess að ég hafi dreift
þeim í þessu þjóðfélagi.“ Jón Sig-
urðsson, formaður Framsóknar-
flokksins segir ákvörðun Kristins
rökrétta. „Við óskum Kristni vel-
farnaðar persónulega í hans lífi.“
Öflugur maður
Karlmaður á þrítugsaldri, sem
handtekinn var í janúar, grunað-
ur um kynferðisbrot gegn ungum
stúlkum er grunaður um brot gegn
fleiri stúlkum í desember.
Björgvin Björgvinsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn, segir lögregl-
una hafa farið yfir eldri óupplýst
mál og fundið eitt sem beri sömu
einkenni og meint brot manns-
ins í janúar. Þau brot voru einnig
framin í Vogunum, beindust gegn
stúlkum á svipuðum aldri, 5 til 10
ára, sem gáfu svipaða lýsingu á
athæfi mannsins. Maðurinn var
í yfirheyrslum í allan gærdag og
taka lögregla og ákæruvald um það
ákvörðun í dag hvort frekara gæslu-
varðhalds verður krafist.
Grunaður um fleiri brot
Jóhann Hauksson, umsjónar-
maður Morgunhanans sem not-
ið hefur nokkurra vinsælda á Út-
varpi Sögu undanfarna mánuði,
fer í loftið með nýjan vikulegan
þátt á sunnudaginn klukkan 13.
Þátturinn hefur fengið nafnið
Kall tímans og verður viðtals-
þáttur að fyrirmynd breska út-
varpsins. Jóhann Hauksson segir
að meiningin sé að hafa einn
gest í hverjum þætti og auk hans
munu vel valdir spyrlar rekja
garnirnar úr gestunum. Fyrsti
gestur þáttarins er Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir.
Jóhann á
sunnudaga
Gæsluvarðhald rennur út í dag:
VAlur greTTiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Stuðlar Pilturinn ungi verður
vistaður á stuðlum þar til
annað verður ákveðið.