Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Síða 6
föstudagur 9. febrúar 20074 Fréttir DV InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Bloggið er blessun Mikið er Dagfari stoltur af þeim fjölmörgu Íslendingum sem stunda það að blogga. Alveg er með ólíkind- um að þjóðin hafi dafnað og eflst til þessa dags og það án þess að við viss- um hugarfar, skoðanir og meiningar hvert annars. Sennilega hafa fá þjóð- félög eins opinn og beinan aðgang að hugsunum hvert annars og við. Það getur bara ekki annað en aukið okkur yfirsýn, eflt huga okkar og gert okkur að betra fólki að geta lesið svo oft og svo mikið um hvað hvert okkar hinna er að hugsa. Þar sem þjóðinni komst að komast þangað sem hún núna er, og það án bloggsins, er alveg ljóst í huga Dagfara að fram undan er framfaraskeið mikið. Sumir, jafnvel mætustu þegnar okkar, hafa jafnvel gengið um göt- ur og torg fullir af alls kyns góðum hugsunum og tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að gera hér hið besta samfélag. Nú þarf ekki nokkur mað- ur, ekki nokkur maður, að lifa í kvöl eigin hugsana. Þær eru opnar öllum og nú getum við lesið heilu og hálfu dagana hugrenningar og skoðanir hvert annars. Þetta er allt annað líf, það er það. Bloggið er blessun, það verður að segjast alveg eins og er. Svo hef- ur blessaður Mogginn gengið þarfast skref allra ferða, hann birtir nú dag- lega valin blogg, ekki eitt eða tvö, nei Mogginn er ekki þannig. Hann birtir nokkur dag hvern, sem öll eiga það sameiginlegt að hafa birst áður á netinu, en bloggið og vísan eiga það sameiginlegt að sjaldan er gott blogg of oft birt og sjaldan er góð vísa of oft ort. Þar sem bloggið er bless- un er eins gott að veraldarvef- urinn hiksti ekki undan öllu farg- inu. Það er ekki leggjandi á þjóð- ina ef hin nýja þjóðargersemi, bloggið sjálft, verður eyðileggingu tæknivilla að bráð. Það má ekki henda, aldrei. Þess vegna er tímabært að hin mörgu framboð sem nú kvikna hvert af öðru, taki afstöðu og segi okkur aðdáend- um bloggins hvort ekki standi til að tryggja varðveislu bloggsins, ekki er mögulegt að treysta aðeins á það sem enginn sér, það er innra minni tölvunnar. Reyndar hefur Mogginn gengið framfyrir skjöldu og ákveð- ið að varðveita hluta af blogginu, en það er ekki nóg. Þar sem tækniheim- ar eru viðsjárverðir verður þjóðin að fá að vita fyrir víst, verður bloggið, sú mikla blessun, í öruggri geymslu til komandi kynslóða? Allt að fjögurra tíma bið Yfirmenn slysamóttökunnar í Fossvogi reyna nú að stytta bið- tíma þeirra sem leita sér lækn- inga þar. Fólk þarf nú að bíða allt að fjórar klukkustundir eftir læknisaðstoð. Þeim sem leita til slysamót- tökunnar hefur fjölgað úr 53.500 fyrir fáum árum í 60.000. „Þetta gerir okkur erfitt fyrir,“ seg- ir Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson yfirlæknir. „Við erum að vinna í þessu og ætlum að reyna að bæta þetta ástand með bættu verklagi.“ Nú á að reyna nýtt verklag að erlendri fyrirmynd. „Ef það virkar ekki prufum við eitthvað annað. Við erum að vinna okkur út úr þessu. 112 dagurinn Viðbragðsaðilar í björgun og almannavörnum efna til fjöl- breyttrar dagskrár um allt land á sunnudaginn, þegar 112 dagur- inn verður haldinn. Í ár verður dagurinn tileinkaður störfum sjálfboðaliða. Í tilefni dagsins verður ljósmyndasýningin Út- kall 2006 opnuð í Kringlunni í dag. Samstarfsaðilar 112 dagsins munu svo standa að sameig- inlegri dagskrá í Smáralind í hádeginu á sunnudag þar sem starfsemi sjálfboðaliðanna verð- ur kynnt með ýmsum hætti. Sýknaður af bátsbrennu Áramótabrennustjóri Ís- firðinga til áratuga var í gær sýknaður í Héraðsdómi Vest- fjarða af bótakröfu fyrir að hafa brennt bát á gamlárs- kvöld 2003 án þess að hafa fengið leyfi eigandans. Brota- vilji brennustjórans þótti ekki sannaður þar sem vitni báru að báturinn hafi verið „fúa- brak“ og handónýtur. Þá þótti sannað að eigandinn hafi ekki hirt um bátinn lengi vel þar sem hann hafi legið hálfsokk- inn í Ísafjarðarhöfn mánuðum saman. Perrar í barnaleikjum Aðstandendur leikjasíðunnar leikjaland.is hafa sent viðvörun til fjölmiðla þess efnis að full- orðnir menn hafi reynt að kom- ast í samband við börn í teikni- leiknum skissu. Börn á aldrinum 6 til 8 ára sækja helst í leikinn, þar sem þátttakendur skiptast á um að giska á hvað hinir eru að teikna. Á samtalsborði leikjarins hafa fullorðnir menn meðal ann- ars spurt eftir MSN-netföngum og reynt að komast í samband við börnin. Fjársvikasöfnun Óprúttnir aðilar hafa und- anfarna daga hringt í fólk og beðið um fjárstuðning til handa Mæðrastyrksnefnd. Fólk er varað við að gefa upp kred- itkortanúmer án þess að ráð- færa sig fyrst við viðkomandi stofnun og sannreyna að verið sé að safna fyrir gott málefni. Mæðrastyrksnefnd stendur ekki fyrir söfnunum eins og þessari, þar sem beðið er um kreditkortanúmer. Sektunum fjölgar ekki Engin sýnileg fjölgun hef- ur orðið á þeim ökumönnum sem höfuðborgarlögreglan hefur stöðvað fyrir hraðakst- ur. Í desember byrjaði lögregla að sekta ökumenn þegar bílar þeirra mældust 9 kílómetrum yfir hámarkshraða í stað 14 kíló- metra. „Ef eitthvað er teljum við að ástandið hafi batnað frá því sem var. Það er minni ofsaakst- ur,“ segir Guðbrandur Sigurðs- son aðalvarðstjóri. Guðbrand- ur segir margt spila inn í þetta. Eitt sé öflug löggæsla, annað sé áróður og þriðja umfjöllun í fjölmiðlum til að minna fólk á mikilvægi þess að fara varlega í umferðinni. Tíu borga tíu þúsund Tíu ökumenn voru sektaðir á höfuðborgarsvæðinu á einum sólarhring frá miðvikudegi til fimmtudags fyrir að hafa beltin ekki spennt í bílum sínum. Hver og einn ökumannanna þarf að greiða tíu þúsund krónur í sekt. Lögreglan leggur þennan mánuðinn sérstaka áherslu á eftirlit með að ökumenn og far- þegar noti öryggisbúnað bíla. Sérstaklega verður fylgst með því að fólk sé með beltin spennt og að börn séu með allan þann öryggisbúnað sem þykir nauð- synlegur, hvort sem er í bílstól- um eða með þar til gerða púða til að sitja á. Frumherji einokar bifreiðaskoðun Frumherji hf. nær einokunarstöðu í bifreiðaskoðun á Íslandi með því að kaupa allt hlutafé í eina samkeppnisaðilanum, Aðalskoðun hf. Sigtryggur JóhannSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Skoðunarfyrirtækið Frumherji hf. hefur keypt allt hlutafé í Aðalskoð- un hf., en fyrirtækin eru þau einu á landinu sem hafa leyfi til þess að stunda bifreiðaskoðun. Með þess- um viðskiptum nær Frumherji ein- okunarstöðu í bifreiðaskoðun hér á landi. Orri Vignir Hlöðversson, fram- kvæmdastjóri Frumherja, telur allar líkur á því að viðskiptin fái að ganga eftir. „Mér þykir það stórundarlegt ef mönnum leyfist að koma á einok- un í bifreiðaskoðun á Íslandi. Sam- keppniseftirlitið virðist einfaldlega ekki standa sig. Það eru engin rök að markaðurinn sé svo lítill að Sam- keppniseftirlitið telji þessi viðskipti fyrirtækjanna vera undir veltumörk- um,“ segir Hlynur Hallsson, vara- þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðaustur- kjördæmi. „Við gerum þessi kaup með fyrirvara um að Samkeppniseft- irlitið geri ekki athugasemdir. Við sendum Samkeppniseftir- litinu öll gögn sem þarf síðast- liðinn mánudag,“ segir Orri Vignir Hlöðversson, framkvæmda- stjóri Frumherja. Hann segir Frum- herja hafa leitað ráðgjafar áður en lagt var út í kaupin og allt bendi til þess að Samkeppniseftirlitið heimili kaupin. „Okkar niðurstaða var að þessi kaup væru í samræmi við samkeppnislög. Það byggist fyrst og fremst á því að við erum ekki yfir veltumörkum Sam- keppniseftirlitsins og erum því í raun ekki með tilkynningaskyldu til eftir- litsins,“ segir Orri. Frumherji hyggur á fjárfest- ingar á er- lendum mörkuðum og segir Orri að þetta muni styrkja fyrirtækið í þeim fyrirætlunum. Árið 2004 gerði Frum- herji tilraun til þess að kaupa danska bifreiðaeftirlitið og árið eftir gerði fyrirtækið tilraun til að kaupa finnska bifreiðaeftirlitið. Bifreiðaskoðun bifreiðaeftirlit á Íslandi telst ekki hafa næga veltu til þess að kaup og sölur á skoðunar- fyrirtækjum séu tilkynningaskyld til samkeppniseftirlitsins. orri Vignir hlöðversson segir mikla fjárfestingarmöguleika felast í bifreiðaeftirliti í nágranna- löndunum. Hann vill styrkja stöðu frumherja til útrásar með því að kaupa aðalskoðun hf. hlynur hallsson telur að samkeppniseftirlitið hafi brugðist skyldum sínum oftar en einu sinni og óttast að svo verði í þetta skiptið. dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.