Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 7
DV Fréttir föstudagur 9. febrúar 2007 7 Tveir fyrrverandi framsóknarmenn sem sögðu skilið við flokkinn og sátu á Alþingi fyrir aðra flokka áttu eftir að láta að sér kveða á öðrum vettvangi, nefnilega á Bessastöðum, eftir að hafa ver- ið kjörnir í embætti forseta. Ólafur ragnar grímsson stjórnmálafræðingur- inn frá ísafirði hóf stjórnmálaafskipti sín í framsóknarflokknum og átti sæti í miðstjórn og framkvæmdastjórn snemma á áttunda áratug síðustu aldar en skipti yfir í samtök frjálslyndra og vinstrimanna 1974 þar sem hann varð varaþingmaður. seinna gekk hann til liðs við alþýðubandalagið og var þingmaður frá 1978 til 1983 og aftur 1991 til 1996. í millitíðinni, 1987, var hann kjörinn formaður alþýðubandalagsins og var fjármálaráðherra 1988 til 1991. 1996 fór hann í forsetaframboð, var kosinn og hefur gegnt embættinu síðan. Úr Framsókn á Bessastaði Ásgeir Ásgeirsson Kaupmannssonurinn af mýrum var kosinn á þing fyrir framsóknar- flokkinn í Vestur- ísafjarðarsýslu árið 1923. Hann varð fjármálaráðherra og ári síðar fjármála- og forsætisráðherra auk þess að vera formaður framsóknarflokksins um skeið. Hann skildi við flokkinn 1934 og var utanflokka til 1937 þegar hann gekk til liðs við alþýðuflokkinn og sat á þingi fyrir hans hönd til 1952. Það ár var hann kosinn forseti, annar á eftir sveini Björnssyni og fyrstur til að vera kosinn í almennri kosningu. forsetaembættinu gegndi hann í sextán ár, eða allt til 1968. Kristinn H. gunnarsson hefur nú bæst í hóp þingmanna sem setið hafa á þingi fyrir þrenn stjórnmálasamtök. Þingmenn úr öllum flokkum hafa sagt skilið við sinn gamla flokk og gengið til liðs við aðra eða stofnað sín eig- in stjórnmálasamtök, ýmist einir eða í samfloti við aðra. alræmdir flokkaflakkarar og aðrir pólitískir ferðamenn Þrír flokkar þeirra fimm sem fengu þingmenn kjörna í síðustu kosningum hafa nú séð á bak einum þingmanni hver. Gunnar Örlygsson, Valdimar Leó Friðriksson og Krist- inn H. Gunnarsson hafa þar með fet- að í fótspor fjölda þingmanna sem hafa sagt skilið við þá flokka sem þeir hafa náð kjöri fyrir. Raunar má rekja flokkaflakkið marga áratugi aftur í tímann. Flokkaflakkið átti ekki síst við á fyrstu áratugum 20. aldar þeg- ar flokkakerfið var í mótun. Fram- an af voru flokkar óformlegri en nú er og var það ekki fyrr en 1916 þeg- ar Alþýðuflokkurinn var stofnaður sem flokkar urðu til sem fjöldahreyf- ingar frekar en misjafnlega lang- líf samflot þingmanna. Framsókn- arflokkurinn var stofnaður sama ár og Alþýðuflokkur, en var fyrstu árin þingmannaflokkur. Þingmenn hafa þó haldið áfram að skipta um flokka fram á okkar daga eins og dæmin sýna þótt misjafnlega mikið hafi ver- ið um það í gegnum tíðina. uppstokkun stjórnarandstöðunnar Þótt margir þingmenn hafi skipt um flokk á því kjörtímabili sem nú er að ljúka bliknar það í samanburði við kjörtímabilið 1995 til 1999. Segja má að enginn stjórnarandstöðu- þingmaður hafi klárað kjörtímabilið í sama flokki og hann hóf það. Það á þó frekar við um þingflokka stjórn- arandstöðu- flokk- anna en flokkana sjálfa. Þingflokkar Alþýðu- bandalags, Alþýðuflokks, Kvenna- lista og Þjóðvaka runnu saman í þingflokk jafnaðarmanna og þang- að fór drýgstur hluti þingmanna en ekki allir. Áður höfðu þrír þingmenn Þjóðvaka hafið samstarf með þing- flokki Alþýðuflokksins: Ágúst Einars- son, Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt- ir og Svanfríður Jónasdóttir. Þrír Alþýðubandalagsþingmenn: Guðrún Helgadóttir, Hjörleifur Gutt- ormsson og Steingrímur J. Sigfús- son auk Ögmundar Jónassonar, sem var kosinn á þing sem óháður fram- bjóðandi á lista Alþýðubandalags, mynduðu þingflokk óháðra ásamt Kristínu Ástgeirsdóttur og Kristínu Halldórsdóttur úr Kvennalista. Einn þingmaður stjórnarandstöðuflokk- anna gekk hins vegar til liðs við ann- an ríkisstjórnarflokkinn, Alþýðu- bandalagsþingmaðurinn Kristinn H. Gunnarsson munstraði sig í Fram- sóknarflokkinn. alræmdur flokkaflakkari Standi einhver undir titlinum alræmdur flokkaflakkari er það Hannibal Valdimarsson. Á nærri þriggja áratuga þingferli sínum sem hófst 1946 kusu Vestfirðingar og Reykvíkingar hann á þing und- ir merkjum þriggja flokka, Alþýðu- flokks, Alþýðubandalags og Sam- taka frjálslyndra og vinstrimanna. Ekki nóg með það heldur tók hann þátt í að stofna þá tvo síðari (Al- þýðubandalagið að vísu aðeins sem kosningabandalag) og var formaður allra þriggja. Undir lokin mun hann svo hafa skipulagt heimkomu sína í Alþýðuflokkinn við litlar vinsæld- ir félaga í Samtökum frjálslyndra og vinstrimanna. Þó varð aldrei af því að Hannibal færi aftur í framboð fyrir Alþýðuflokkinn. Björn Jónsson, sem var forseti Alþýðusambands Íslands um tíma rétt eins og Hannibal, fór öfuga leið. Hann var fyrst kosinn á þing fyrir Alþýðubandalagið 1956, síðan fyrir Samtök frjálslyndra og vinstrimanna og loks Alþýðuflokkinn 1978. Hann sat þó aldrei nema einn dag á þingi fyrir síðastnefnda flokkinn vegna erf- iðra veikinda. BrynjÓlfur ÞÓr guðmundsson blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is Standi einhver undir titlinum alræmdur flokkaflakkari er það Hannibal Valdimarsson. Á nærri þriggja áratuga þingferli sínum kusu Vestfirðingar og Reykvíkingar hann á þing undir merkjum þriggja flokka, Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Samtaka frjáls- lyndra og vinstrimanna. Kratarnir kljúfa Hannibal er fjarri því eini þing- maður Alþýðuflokksins sem klauf sig frá flokknum og stofnaði eða tók þátt í að stofna nýtt stjórnmálaafl. Héðinn Valdimarsson vildi samfylk- ingu Alþýðuflokks og kommúnista á fjórða áratug síðustu aldar og stofnaði Sósíalistaflokkinn með kommúnist- um þegar það gekk ekki eftir og hann var útskúfaður úr Alþýðuflokknum, seinna sneri hann þó baki við sósíal- istum vegna fylgispektar þeirra við Sovétmenn þegar þeir síðarnefndu réðust inn í Finnland. Vilmundur Gylfason stofnaði Bandalag jafnaðarmanna eftir að hafa tapað varaformannskjöri í Alþýðu- flokknum snemma á níunda ára- tugn- um. Jóhanna Sigurðardóttir stofnaði svo Þjóðvaka eftir að hafa tapað for- mannskjöri rúmum áratug síðar. Sá flokkur lifði tæpt kjörtímabil og rann svo inn í Samfylkinguna. í flokknum, gegn flokknum Gunnar Thoroddsen, Pálmi Jóns- son og Friðjón Þórðarson skiptu aldrei um flokk en þeir gerðu nokk- uð sem engir aðrir stjórnmálamenn hafa gert. Allir voru þeir ráðherr- ar í ríkisstjórn sem flokkur þeirra, Sjálfstæðisflokkurinn, var and- vígur. Þeir mynduðu þá ríkisstjórn með Framsóknarflokki og Alþýðu- bandalagi eftir langvinna stjórnar- kreppu 1980. Gunnar var forsæt- isráðherra á sama tíma og hann var vara- formaður stærsta stjórnarandstöðu- flokksins. Allir héldu þeir áfram í Sjálfstæðisflokknum og Pálmi og Friðjón voru báðir kjörnir á þing fyrir flokkinn eftir þetta. Fjórði sjálfstæðismaðurinn, Albert Guðmundsson, varði ríkisstjórnina lengi vel vantrausti og átti síðar eftir að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Það var árið 1987 eftir að hann varð að víkja af stóli fjármálaráðherra vegna skattahneyksl- is hjá fyrirtæki sínu. Albert tók sig þá til og stofnaði Borgaraflokkinn og fór í framboð. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þá sína verstu útkomu í sögunni. Tveir þingmenn Borgaraflokksins sátu á þingi undir nafni þriggja flokka á sama kjörtímabilinu. Hreggviður Jónsson og Ingi Björn Albertsson voru kjörnir á þing fyrir Borgaraflokkinn, stofnuðu síðan Frjálslynda hægriflokkinn og gengu svo til liðs við Sjálfstæðisflokk- inn. gunnar Örlygsson Þingmaður frjálslynda flokksins sem byrjaði þingferil sinn í afplánun gekk til liðs við sjálfstæðisflokkinn eftir að hafa tapað varaformanns- kjöri fyrir Magnúsi Þór Hafsteinssyni. Valdimar leó friðriksson Varaþingmaðurinn sem varð þingmaður þegar guðmundur Árni stefánsson varð sendiherra sagði sig úr samfylkingunni eftir tap í prófkjöri og gekk fljótlega til liðs við frjálslynda. Kristinn H. gunnarsson Maðurinn sem hóf þingmanns- ferilinn fyrir alþýðubandalagið sagði skilið við framsóknarflokk- inn eftir slæma niðurstöðu í próf- kjöri framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi. Hannibal Valdimarsson enginn hefur verið formaður fleiri stjórnmálaflokka en ólíkindatólið að vestan sem sat á þingi fyrir þrjá flokka og var formaður þeirra allra. Björn jónsson sat á þingi fyrir alla sömu flokka og Hannibal Valdimarsson. Hann fór þó hina leiðina, úr alþýðu- bandalagi í samtök frjálslyndra og vinstrimanna í alþýðuflokk. gunnar Thoroddsen Varaformaður sjálfstæðisflokksins sagði aldrei skilið við flokk sinn en myndaði stjórn gegn vilja hans með framsóknarflokki og alþýðubandalagi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.