Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Blaðsíða 14
föstudagur 9. febrúar 200714 Fréttir DV „Þetta kemur manni gjörsam- lega í opna skjöldu,“ segir Guð- mundur Hallvarðsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, um Þórhall Hálfdánarson sem veitti uppeldis- heimilinu í Breiðuvík forstöðu frá 1964 til 1972. Í umfjöllun DV síð- asta föstudag var lýst dvöl pilta á heimilinu. Þeir segja hana hafa ver- ið helvíti á jörðu. Einn þeirra sagði Þórhall sadista og lýsti því þegar hann læsti piltana í myrkum kjall- ara og misþyrmdi þeim hrottalega með líkamlegu ofbeldi. Þórhallur Hálfdánarson fædd- ist árið 1916 í Stykkishólmi. Hann átti sjö bræður og var næstyngst- ur þeirra. Þar ólst hann upp til tólf ára aldurs. Hann flutti að Núpstúni í Hrunamannahreppi eftir það og dvaldi þar í nokkur ár. Þórhallur sótti nám í Stýri- mannaskólanum og lauk því árið 1949. Nokkrum árum áður hafði hann kynnst verðandi konu sinni, Guðmundu Halldórsdóttur, þau giftust árið 1942. Eftir að hann lauk námi við Stýri- mannaskólann stundaði Þórhallur sjómennsku í nokkur ár. Árið 1964 tók hann svo við uppeldisheimilinu í Breiðuvík. Heiðraður sjómaður „Leiðir okkar lágu saman í sjó- mannadagsráði árið 1986,“ segir Guðmundur Hallvarðsson, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, en saman gegndu þeir opinberum störfum á vegum nefndarinnar. Þá var Þórhallur virkur í félagslífi sjó- manna og var meðal annars gjald- keri sjómannadagsráðs. Hann var einnig í Skipstjóra- og stýrimanna- félaginu Kára í Hafnarfirði. Hann gegndi gjaldkerastöðu innan Kára í fjórtán ár. Að auki hlaut hann heið- ursmerki sjómannadagsins í Hafn- arfirði árið 1995. „Hann kom mér fyrir sjónir sem rólegur og yfirvegaður karl,“ segir Guðmundur og bætir við að honum hafi ávallt verið sýnt mikið traust í þeim verkum sem hann tók að sér. Hann segir umfjöllun um manninn undanfarna daga hafa komið sér verulega á óvart og hreinlega í opna skjöldu. Aðspurður segir Guð- mundur að Þórhallur hafi aldrei minnst á veru sína í Breiðuvík á meðan þeir störfuðu saman. Endaði hjá Halldóri Öllum ber saman um að Þór- hallur hafi verið þrekinn og mikill maður. Hann var ákveðinn í þeim nefndarstörfum sem hann stund- aði og að auki var hann sagður sér- lega talnaglöggur. Hann starfaði sem framkvæmdastjóri rannsókn- arnefndar sjóslysa og gegndi því starfi í þrettán ár. Samferðarmaður hans Ingvi R. Einarsson var með honum í Skip- stjóra- og stýrimannafélaginu Kára. „Ég hef allt gott um Þórhall að segja,“ segir Ingvi. Hann segir um- ræðu síðustu daga hafa komið sér gríðarlega á óvart og segist varla trúa að maðurinn geti hafa haft þá persónu að geyma sem gamlir vist- menn í Breiðuvík lýsa. Hann segir hann hafa verið dreng góðan. Samkvæmt Guðmundi Hall- varðssyni hóf Þórhallur störf hjá sjávarútvegsráðuneytinu þegar hann komst á ellilífeyrisaldur. Þá var Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra en Þórhallur starfaði þá aðallega við að sendast út um allan bæ að sögn Guðmundar. Hann hætti þar störfum nokkru síðar og bjó í Hafnarfirði þar til hann var bráðkvaddur á heimili sínu árið 2001 en þá var hann áttatíu og fimm ára gamall. Þá var kona hans, Guð- munda, nýlátin. Þórhallur var virtur á meðal jafningja í sjómannastéttinni á Íslandi. Allir þeir sem rætt var við og könnuðust við hann báru hon- um vel söguna. Voru allir sammála um að fregnir síðustu daga hefðu komið þeim verulega á óvart . Þeim sem rætt var við bar saman um að Þórhallur hefði aldrei minnst á veru sína í Breiðuvík. Trúnaðarmál þar til DV opnaði málið Þórhallur situr undir alvarleg- um ásökunum um misþyrmingar í Breiðuvík þegar hann veitti upp- eldisheimilinu forstöðu. Þegar DV reið á vaðið síðasta föstudag var dregin upp hrollvekjandi mynd af vistinni. Eftir þá umfjöllun hafa fleiri komið fram í Kastljósi og sagt vinnumenn og aðra hafa misnotað þá kynferðislega. Skýrsla sem Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur rit- aði árið 1975 rennir stoðum undir að ekki var allt með felldu á heim- ilinu. Nær öll börn sem komu frá Breiðuvík enduðu á því að brjóta af sér og þar af hefur meirihluti barn- anna orðið uppvís að alvarlegum afbrotum. Skýrslan var flokkuð sem trúnaðarmál en DV komst yfir hana fyrir rúmri viku. Alþingi hefur þegar látið málið til sín taka og hyggst stofna nefnd til þess að rannsaka þessar alvar- legu ásakanir. Þingmaðurinn Guðmundur Hallvarðsson segir að Þórhallur Hálfdánarson, sem var forstöðumaður í Breiðuvík og situr undir ásökunum um hrottaverk gagnvart börnum, hafi virst rólegur og yfirvegaður maður. Annar samferðarmaður Þór- halls segir hann aldrei hafa lagt hendur á nokkurn mann og hafa haft góða persónu að geyma. Ræddi aldRei um BReiðuvík „Síminn hefur ekki stansað síðan DV opnaði málið,“ segir Keran Óla- son, hótelstjóri á Breiðuvík, en hann ásamt konu sinni Birnu Mjöll Atla- dóttur rekur hótel þar sem hið al- ræmda uppeldisheimili var eitt sinn til húsa. Að sögn Kerans hafa þau fengið margar símhringingar undan- farið þar sem þeim hefur verið hótað öllu illu en einnig hafa margir velvilj- aðir haft samband. „Okkur brá rosalega þegar við fengum fréttirnar,“ segir Keran Ólafs- son hótelstjóri í Breiðuvík um um- fjöllun DV um börnin í Breiðuvík. Hann hefur rekið hótel þar sem upp- eldisheimilið var á árum áður. Hann segir marga hafa hringt og skiptir þeim í tvo hópa. Þeir sem eru nei- kvæðir og þeir sem eru forvitnir um staðinn. Hann segir að í einu tilfelli hafi maður hótað að kom vestur og ganga frá þeim öllum. Endurspeglar alvarleikan „Mér finnst þessi símtöl frekar vera til vitnis um alvarleika máls- ins,“ segir Keran um óhugnanlegar hótanir sem þau hjónin hafa verið að fá fyrir það eitt að starfrækja hótel þarna. Hann segir að oft á tíðum sé um misskilning þeirra sem hringja að ræða en sumir vilja meina að þau séu afkomendur Þórhalls Hálfdán- arsonar sem eitt sinn veitti heimil- inu forstöðu og situr undir þungum ásökunum um hrottalega meðferð á ungum piltum. Keran segist ekki vera skyldur manninum á nokkurn hátt heldur hafi þau hjónin keypt býlið árið 1999. Tók ekki eftir misþyrmingum Breiðavík er heimasveit Kerans en hann ólst upp á Geitagili í Örlygs- höfn, sem er spölkorn frá heimil- inu. Hann segir að nokkur samgang- ur hafi verið á milli bæjar fjölskyldu hans í æsku og uppeldisheimilisins. Hann þvertekur þó fyrir að hafa tekið eftir misþyrmingum gegn drengjun- um sem þar voru vistaðir. Hann man vel eftir Þórhalli og lýsir honum sem „hörðum nagla“. „Það gustaði af karlinum,“ seg- ir Keran þegar hann hugsar til baka. Sjálfur grunaði hann Þórhall aldrei um græsku og segir fréttir síðastlið- inna daga koma sér gríðarlega mik- ið á óvart. Breiðuvíkurbörnin í kaupbæti „Það var haft í flimtingum þegar ég keypti býlið að Breiðuvíkurbörn- in fylgdu með í kaupbæti,“ segir Ker- an en honum varð ljóst stuttu síðar hvað átt var við. Þá voru gamlir vist- menn að hringja í tíma og ótíma, yf- irleitt drukknir, til þess að gera upp óhugnanlega fortíð sína. Að sögn Kerans vingaðist hann við þessa menn og hlustaði á þá. Hann segir að tveir hafi meira að segja dvalið í Breiðuvík eftir þessi samtöl og það hafi gert þeim gott. Nokkrir vist- menn hafa vingast við þau hjónin og dóttir eins dvaldi hjá þeim á sumrin enda góður staður til þess að vera á segir Keran. Hann segir sögu Breiðuvíkur dá- lítið óhugnalega en brotunum hafi hann ekki púslað saman fyrir alvöru fyrr en undir síðustu helgi. Þangað til þá hafði hann oft afskrifað minning- ar mannanna sem drykkjuraus. Blásaklaus hótelhjón Hann ásamt konu sinni hafa stað- ið í hótelrekstri á þessum vestasta oddi landsins í sjö ár, „það er alveg ótrúlegt að einhver skuli búa hérna enn þá,“ segir Keran hlæjandi og bætir við að fólk hafi tekið staðnum ákaflega vel. Um tíu þúsund ferða- menn koma yfir sumartímann hvort sem það er til þess að gista eða fá sér kaffi. „Við lendum alveg blásaklaus í þessari umfjöllun,“ segir hann um símahringingar undanfarna daga. Hann segist vonast til að fólk blandi ekki saman dökkri fortíð Breiðuvík- urheimilisins og hótelsins, enda hafi engum liðið illa hjá þeim. Hótelhjónum í Breiðuvík hótað lífláti Hjón sem eiga hótel í Breiðuvík hafa feng- ið alvarlegar hótanir vegna umfjöllunar um Breiðuvíkurbörnin. Hótelstjórinn, Keran Ólafsson, segir símtölin bera merki um alvarleika málsins. Hótel Breiðavík Hjónin Keran Ólason og birna Mjöll atladóttir reka hótel í breiðuvík sem eitt sinn var alræmt uppeldisheimili drengja. Þórhallur Hálfdánarson flestir eru sammála um að fregnir undanfarna daga, um veru Þórhalls í breiðuvík, hafi komið þeim í opna skjöldu. Þórhallur var meðal annars heiðraður á sjómannadag., en hann naut virðingar meðal sjómanna. Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur. Litla-Hraun betra en Breiðavík Rannsókn Gísla H. Guðjóns- sonar réttarsálfræðings frá árinu 1975 á vistheimilinu í Breiðuvík leiddi í ljós að allt að 87 prósent drengjanna þar komust í kast við lögin eftir að vist þeirra lauk. Til samanburðar kemur að jafnaði helmingur refsifanga á Litla-Hrauni aftur í fangelsisvistun. Á þessum tíma virtist almennt talið að í Breiðuvík hefði náðst góð- ur árangur með vandræðadrengi. Þessi góði árangur varð kveikjan að rannsókn Gísla, þar sem annað kom á daginn. „Það sem Gísli gerði er að hann skoð- aði flesta drengina og fylgdi þeim eftir. Hann komst að því að lang- flestir þeirra komust í kast við lögin síðar á ævinni,“ segir Helgi Gunnlaugsson, af- brotafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Helgi segir að helmings endur- komutíðni fanga á Litla-Hrauni sé frekar há, en þó í samræmi við það sem gerist í öðrum löndum. „Við áttum jafnvel von á að endur- komutíðni í fangelsi á Íslandi væri minni en annars staðar, en svo virðist ekki vera.“ Breiðuvíkur- BöRnin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.