Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 25
Gísli bæjó Bæjarráðið á Akranesi samþykkti í síðustu viku að styrkja ÍA vegna stækkunar stúku við Akranesvöll og var samningur þar um undir- ritaður í Akra- neshöll síðasta laugardag. Þar voru á ferðinni Gísli Gísla- son, formaður stjórnar rekstr- arfélags meist- araflokks ÍA, og Gísli S. Einarsson bæjarstjóri. Gísli var um langt árabil bæjarstjóri og kallaður Gísli bæjó, heiti sem Gísli S. gæti líka borið. Var því mál manna að þarna væru Gísli bæjó 1 og Gísli bæjó 2. Skotið á Ólaf... Hvort sem auglýsingamenn SPRON gangast við því opinberlega eða ekki er ekki hægt að verjast því að ný auglýsingaherferð þeirra sé í og með skot á eigendur ann- arra banka. Í einni auglýs- ingu segir að þó að menn hafi ekki efni á að fá Elton John í af- mælið sitt geti þeir samt safn- að digrum sjóði með lífeyrissparn- aði. Ólafur Ólafsson gat hins vegar gert hvort tveggja og líka keypt Bún- aðarbankann. ...og Björgólf Það eru fleiri sem geta keypt banka en Ólafur Ólafsson. Það getur Björgólfur Thor Björgólfsson líka og þótt hann hafi ekki fengið Elton John til að spila í afmæl- inu sínu hef- ur hann keypt sér einkaþotu. Það er einmitt eitt af því sem SPRON-menn nefna í auglýs- ingu sinni, nefnilega að þó að fólk hafi ekki efni á að kaupa einkaþotu eða banka geti það komið sér upp digrum sjóði. Fjölmargir frjálslyndir Nú þegar ljóst er að Kristinn H. Gunnarsson gengur til liðs við Frjálslynda flokkinn er sú merki- lega staða kom- in upp að þegar varaþingmenn eru undanskild- ir hafa sex menn setið á þingi fyr- ir Frjálslynda flokkinn á þessu kjörtímabili. Samt hafa aðeins þrír setið á þingi fyrir flokkinn allt kjörtímabilið. Einn þingmaður yfirgaf flokkinn og tveir aðrir komu í staðinn. Hættur og farinn Ekki er nóg að ætla í framboð til að fara í framboð. Það sanna tvö fyr- irhuguð framboð eldri borgara sem tilkynnt voru sama daginn. Meðal aðstand- enda annars þeirra var Al- bert Jensson. Hann hefur nú kvatt félags- skapinn eftir sameiginlega fundi, sannfærður um að ekkert gott komi út úr framboðinu og hvetur fólk til að kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð, sem sennilega sinni þessum málaflokki best. KR, Valur eða Þróttur Þrír Reykvíkingar úr þremur reykvískum félögum berjast um formennskuna í Knattspyrnusam- bandi Íslands á ársþingi sem hefst á morgun. Reykvíkingar verða áber- andi í kosningunum því fimm af sjö frambjóðendum til aðalstjórnar eru Reykvíkingar, aðeins Björn Frið- þjófsson frá Dalvík og KA-maður- inn Vignir Már Þormóðsson koma utan af landi. DV Helgarblað sandkorn Fundur í miðborginni Á 3ju og 4ðu hæð Iðu-hússins eru tveir fallegir salir. Stærri salurinn tekur allt að 150 manns og minni salurinn 120 manns. Allur aðbúnaður og tæknibúnaður er fyrsta flokks; þráðlaus kerfi, nettengingar og aðstaða fyrir starfsfólk svo eitthvað sé nefnt. Lídó er glæsilegur salur á horni Ingólfsstræti og Hallveigarstíg. Salurinn tekur allt að 400 manns í sæti og hentar frábærlega fyrir funda- og ráðstefnu- hald. Veisluþjónusta okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar og spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fag- mönnum. Við leggjum áherslu á sveigjanleika, enda eru kjörorð okkar: Ykkar ánægja er okkar markmið. Kynntu þér þjónustu okkar á www.veislukompaniid.is eða hringdu í síma 517 5020 og við lögum okkur að þínum þörfum. Með kveðju, Hafsteinn Egilsson Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er ekki síður mikilvæg en fyrsta flokks aðbúnaður og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra staðsetningu í hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði og fyrirtaks veisluþjónustu. Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is F í t o n / S Í A M.H. skrifar: Mig undrar hversu sjaldan sorp er tekið frá íbúð- arhúsum í Kópavogi. Þess vegna gerist það ítrekað að dallar eru yfirfullir með þeim afleiðingum að sorpið fýkur um allt. Ég hef ekki gert samanburð á skatt- heimtu vegna sorphirðu milli einstakra sveitarfélaga en er viss um að ekki er minna innheimt í Kópavogi en í öðrum bæjum. Það er ekki hægt að horfa upp á fjúkandi rusl hvern dag sem hreyfir vind. Við sem búum í Kópavogi ætlumst til betri þjónustu og ef bæjarfélag- ið sem hælist um af sterkri fjár- hagsstöðu getur ekki bætt þjón- ustuna að óbreyttu er spurning hvort við sem viljum hafa hreint í okkar nágrenni verðum ekki að fara fram á að fá að borga meira. Sóma okkar og bæjarins vegna. Þuríður hringdi: Ég get ekki á heilli mér tekið eftir að hafa lesið um Breiðuvíkurbörnin. Þetta er þjóðarskömm og það verður að laga það sem miður hefur farið. Mér er brugðið við þá tilhugsun að hafa ekkert vitað meðan þau ósköp gengu á sem okkur eru nú ljós. Mikið óska ég þess að þetta hefði aldrei orðið og ekki síður þess að blessaðir mennirnir sem mest þurftu að þola nái að vinna sem mest og best úr sínum málum. Ekki veit ég hvernig er best að bregðast við, en það verður að finna leið til að rétta mönnunum hjálpar- hönd. Sorphirða í Kópavogi Þjóðarskömm lesendur Í frétt á sakamálasíðu DV í síðasta tölublaði urðu þau mistök að mynd birtist af hermanni sem ekki tengdist efni fréttarinnar á nokkurn hátt. Hlutaðeig- andi eru beðnir velvirðingar á þessu. Athugasemd lesendur Söguslóðir DV Laugardaginn 10. febrúar er boðið upp á ferð um söguslóðir DV undir leiðsögn Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi ritstjóra DV Ferðin hefst kl. 11 við Síðumúla 12 í Reykja- vík og verður ekið í langferðabifreið milli staða. Saga DV verður rakin og helstu sögu- staðir heimsóttir. Jónas Kristjánsson gjör- þekkir sögu blaðsins en hann var ritstjóri Vísis frá 1966 til 1975 og Dagblaðsins frá 1975 til 1981. Hann varð ritstjóri á sameinuðu blaði Dagblaðsins Vísis 1981 og gegndi því starfi með hléum til ársins 2006. Auk Síðumúla verður komið við í Þver- holti og Skaftahlíð en ferðinni lýkur í Brautar- holti 26, nýjum höfuðstöðvum DV, þar sem boðið verður upp á hressingu. Ekki er þörf á að taka frá sæti í ferðina en gestum er bent á að mæta tímanlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.