Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Qupperneq 28
föstudagur 9. febrúar 200728 Sport DV
Þýska úrvalsdeildin í handbolta fer af stað í dag eftir rúmlega mánaðarhlé vegna HM. DV
tók tali íslensku þjálfarana í deildinni, þá Alfreð Gíslason og Róbert Sighvatsson, og
ræddi við þá um lið þeirra og deildina.
Ekki hægt að bóka
nEitt í þEssari dEild
13 íSlenSkiR leikmenn
Þrettán íslenskir leikmenn leika í
þýsku úrvalsdeildinni í handbolta og í
engu þýsku liði eru fleiri íslenskir
leikmenn en í gummersbach.
guðjón Valur sigurðsson (gummers-
bach), sverre andreas Jakobsson
(gummersbach), róbert gunnarsson
(gummersbach), Logi geirsson
(Lemgo)
Ásgeir örn Hallgrímsson (Lemgo),
alexander Petersson (grosswallstadt),
einar Hólmgeirsson (grosswallstadt),
einar örn Jónsson (Minden), snorri
steinn guðjónsson (Minden), Jaliesky
garcia (göppingen), gylfi gylfason
(Wilhelmshavener), Þórir Ólafsson
(Lübbecke), birkir Ívar guðmundsson
(Lübbecke).
Guðjón þRiðji mARkAhæStuR
guðjón Valur sigurðsson, leikmaður
gummersbach, er í þriðja sæti yfir
markahæstu leikmenn þýsku
deildarinnar. guðjón Valur hefur
skorað 115 mörk en Kóreumaðurinn
Kyung-shin Yoon, leikmaður
Hamburg, er markahæstur með 136
mörk. Yoon setti markamet í þýsku
úrvalsdeildinni fyrr í vetur þegar hann
skoraði 18 mörk í einum leik. snorri
steinn guðjónsson, leikmaður
Minden, er í 22. sæti yfir markahæstu
menn deildarinnar með 85 mörk
skoruð.
leikiR helGARinnAR
9. febrúar
gummersbach – Wilhelmshavener
10. febrúar
Kiel – Hamburg
Lemgo – düsseldorf
göppingen – Minden
Melsungen – flensburg
11. febrúar
Lübbecke – Magdeburg
Wetzlar – grosswallstadt
Nordhorn – balingen
14. febrúar
Kronau/östringen – Hildesheim
StAðAn í deildinni
lið leikir Stig
1. Kiel 18 31
2. flensburg 18 31
3. Hamburg 18 29
4. gummersbach 18 29
5. Magdeburg 17 28
6. Nordhorn 18 26
7. Lemgo 18 21
8. göppingen 18 21
9. Kronau/öst. 18 19
10. grosswalls. 18 18
11. Wilhelmsh. 18 16
12. Minden 18 10
13. Lübbecke 18 8
14. Melsungen 18 8
15. düsseldorf 18 8
16. ballingen 18 8
17. Wetzlar 18 7
18. Hildesheim 17 4
Þjóðverjar eru nýkrýndir heims-
meistarar í handbolta og efsta deild-
in þar í landi er af mörgum talin sú
sterkasta í heiminum. Þrettán íslensk-
ir leikmenn spila í þýsku úrvalsdeild-
inni og auk þeirra eru tveir íslenskir
þjálfarar, Alfreð Gíslason hjá Gumm-
ersbach og Róbert Sighvatsson hjá
Wetzlar. Gengi þessara tveggja liða
hefur verið misgott það sem af er
leiktíðar en Gummersbach er í fjórða
sæti, tveimur stigum frá efstu liðun-
um, á meðan Wetzlar er í næstneðsta
sæti og berst fyrir lífi sínu í deildinni.
Sex leikmenn Gummersbach tóku
þátt í HM og Alfreð Gíslason, þjálfari
liðsins, sagði að þeir leikmenn væru
augljóslega þreyttir eftir mótið.
„Þessir leikmenn eru greini-
lega þreyttir. Við byrjuðum að æfa
á þriðjudaginn og ég gaf þeim frí og
þeir koma ekkert fyrr en á síðustu æf-
ingu fyrir leik. Það er ákveðin áhætta
fólgin í því en það er ekkert annað
hægt að gera. Þessir leikmenn voru
það eftir sig og það þýddi ekkert að
kvelja þá meira,“ sagði Alfreð og bætti
við að Gummersbach sé ekki með
stóran leikmannahóp.
hléið kom sér vel
„Ég er með frekar lítinn hóp en
það er ekkert við því að gera, það
hefur verið þannig allt tímabilið. Ég
læt einn leikmann fara í fríinu, Mil-
an Vucicevic sem fór til Wetzlar, en í
staðinn er kominn inn Denis Zakhar-
ov sem sleit hásin í ágúst og að öðru
leyti er þetta óbreytt hjá okkur,” sagði
Alfreð en hann telur að þýska deildin
hefði mátt byrja viku síðar.
Alfreð var vitanlega upptekinn við
að stýra íslenska landsliðinu á HM
en þeir leikmenn sem ekki tóku þátt
í því móti hafa æft stíft í fjarveru þjálf-
arans.
„Þeir byrjuðu að æfa 9. janúar og
fóru þá eftir kraftprógrammi þar sem
ég skrifaði upp nánast hverja mín-
útu fyrir sig og þjálfarateymið sá um
það fyrir mig. Það var engin hand-
boltaæfing hjá liðinu en þetta hlé
eftir áramótin kom sér mjög vel fyrir
okkur. Momir Ilic, vinstri skyttan hjá
mér, handarbrotnaði rétt fyrir áramót
og einnig tognaði Alvanos, Grikkinn
hjá mér, illa þannig að það var gott
að þeir fengu þetta frí til að jafna sig.
Þeir virðast báðir vera komnir í gott
stand.”
klárar samninginn við hSí
Alfreð sagði að ef til vill mætti
lengja stórmót eins og HM og hafa
lengra frí á milli leikja. „Þetta mætti
kannski vera aðeins lengra en það
þarf bara að hafa svo stóran leik-
mannahóp til að klára þetta. Þetta var
að öðru leyti mjög gott mót,“ sagði Al-
freð og bætti við að hann myndi klára
sinn samning hjá HSÍ og stýra íslenska
liðinu fram yfir leikina gegn Serbíu í
sumar. „Ég hugsa að ég klári Serbal-
eikina. Ég er með samning fram í júlí
og ég uppfylli hann.“
Gummersbach mætir Wilhelm-
havener í fyrsta leik 19. umferðar í dag
og leikurinn er í beinni útsendingu á
sjónvarpsstöðinni Sýn.
„Mér líst bara vel á þennan leik.
Þetta verður alls ekki auðveldur leik-
ur, sérstaklega í ljósi þess að við fáum
bara eina æfingu með liðinu fyrir leik-
inn. Sem betur fer er þetta heimaleik-
ur og við einfaldlega verðum að vinna
þennan leik.
Það er mjög lítill getumunur á efstu
liðum deildarinnar og það eru sex lið
í deildinni sem eru mjög svipuð að
getu. Að vísu er þýska deildin einfald-
lega þannig að það er ekki hægt að
bóka neitt gegn neinum, sérstaklega
ekki á útivelli. Það er alveg hægt að
tapa fyrir botnliðunum,“ sagði Alfreð.
Wetzlar
Róbert Sighvatsson, þjálfari HSG
Wetzlar, sagði að lið sitt mæti vel und-
irbúið til leiks eftir hléið sem gert var
vegna HM. „Við byrjuðum að æfa 10.
janúar og það hafa bara verið stífar
æfingar síðan þá. Við spiluðum æf-
ingaleiki við þau landslið sem voru í
æfingabúðum hér í Wetzlar fyrir HM
og tókum einnig þátt í æfingamót-
um þannig að það hefur verið alveg
nóg að gera hjá okkur,“ sagði Róbert
en Wetzlar var með einn leikmann á
HM, Þjóðverjann Lars Kaufmann.
Fékk nýjan leikmann í janúar
Wetzlar mætir Grosswallstadt á
sunnudaginn í 19. umferð þýsku úr-
valsdeildarinnar. „Við eigum að vera
vel undirbúnir fyrir leikinn á sunnu-
daginn og það er bara vonandi að við
náum að koma okkur upp úr þeim
dal sem við erum í núna. Við feng-
um einnig nýjan leikmann til liðs við
okkur í janúar. Milan Vucicevic heit-
ir hann, kom frá Gummersbach, og
það er bara vonandi að hann gera
góða hluti fyrir okkur,“ sagði Róbert
en Wetzlar er í næstneðsta sæti deild-
arinnar með sjö stig og því óhætt að
segja að leikurinn á sunnudaginn sé
mjög þýðingarmikill.
„Við getum unnið hvaða leik sem
er núna eftir HM en það er ekki fyrr en
í maí sem að við mætum þessum lið-
um sem eru í neðri hlutanum. Fram
að því þurfum við að reyna hvað við
getum til að ná okkur í stig og ef að
það gengur upp þá er bara bjart yfir
þessu og við ættum að halda okkur
uppi,“ sagði Róbert, en Grosswalls-
tadt er í tíunda sæti með 18 stig og
með liðinu leika íslensku landsliðs-
mennirnir Alexander Petersson og
Einar Hólmgeirsson.
Strákarnir bera mikla virðingu
fyrir mér
Róbert tók við þjálfun Wetzlar-liðs-
ins í október eftir að félagið rak Drag-
an Markovic úr starfi og Róbert sagð-
ist kunna vel við sig í því hlutverki.
„Þetta er auðvitað mikil vinna. Það
er töluvert stökk að fara úr því að vera
leikmaður og gerast þjálfari. Það er
samt sem áður ekkert slæmt. Þetta
hefur verið ósköp þægilegt, strákarnir
bera mikla virðingu fyrir mér og þeir
líta ekkert á mig sem leikmann í dag.
Þegar ég tók við vorum við ekki
með eitt einasta stig. Síðan þá höfum
við náð í sjö stig en það hefði verið
gott að vera allavega kominn með níu
stig. Þetta er barátta og við verðum að
koma grimmir til leiks og vinna þenn-
an leik gegn Grosswallstadt,“ sagði
Róbert og bætti því við að það þyrfti
í kringum 20 stig til að bjarga liði frá
falli í þýsku úrvalsdeildinni.
“Á þessu tímabili þarf lið á bilinu
16 til 20 stig til að bjarga sér frá falli.
Deildin hefur breyst töluvert á síð-
ustu árum. Þau lið sem eru í efri hluta
deildarinnar eru mun betri en þau
sem eru í neðri hlutanum og það ligg-
ur við að komnar séu tvær deildir í úr-
valsdeildinni. Það er mikið bil á milli
liða.
Þetta er hörð barátta og þeir sem
ná bestu byrjuninni eftir áramót
bjarga sér frá falli. Við eigum töluvert
stífa dagskrá í byrjun en við eigum níu
heimaleiki eftir af mótinu og það á
eftir að hjálpa okkur,“ sagði Róbert en
hann hefur ekkert leikið með Wetzlar
á tímabilinu vegna meiðsla.
er hættur að spila
„Eins og staðan er í dag þá er ég
alveg hættur að spila. Hnéð á mér er
alveg ónýtt. Ég hef farið í marga upp-
skurði og það virðist ekkert vera hægt
að gera í því.“
Áhuginn á handbolta er gríðarlega
mikill í Þýskalandi en Róbert sagði
að hann hafi aukist mikið frá því að
Þýskaland tryggði sér heimsmeist-
aratitilinn.
„Það er talað um handbolta í öll-
um sjónvarps- og viðtalsþáttum þar
sem leikmenn liðsins eru í viðtölum.
Stóru fyrirtækin eru að bjóða leik-
mönnum samninga þannig að þessi
umfjöllun er bara mjög góð.
Það er mjög gott fyrir handboltann
í heiminum að Þýskaland skyldi rísa
svona upp, af því að ef handboltinn
stækkar í Þýskalandi þá stækkar hann
um allan heim,“ sagði Róbert og hann
hrósaði einnig framkvæmd mótsins.
„Það var einn riðill leikinn hér
í Wetzlar og það var uppselt á alla
leiki þrátt fyrir að það hafi verið riðill
sem innihélt Túnis, Slóveníu, Græn-
land og Kúveit. Það voru kannski ekki
glæsilegir leikir en það var uppselt
alla daga og þrátt fyrir að illa gangi
hjá okkur þá er uppselt á alla leiki, um
fimm þúsund manns. Þannig að það
er mikill áhugi hér í Wetzlar og allt í
kring,“ sagði Róbert að lokum.
dagur@dv.is
Þýskir
handbolta
molar
líflegur á bekknum
alfreð gíslason, þjálfari gummersbach, er
líflegur á bekknum eins og sást á HM í
handbolta.
logi Geirsson Leikur með Lemgo ásamt
Ásgeiri erni Hallgrímssyni en þeir félagar
unnu evrópubikar með félaginu á
síðustu leiktíð.
Róbert Sighvatsson tók við þjálfun
Wetzlar í október en liðið er í harðri
fallbaráttu í þýsku úrvalsdeildinni.
meistarar meistaranna Hamburg
sigraði bikarkeppnina í Þýskalandi og
síðastliðið vor vann liðið Kiel í leik
meistara meistaranna.