Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 30
Fráfarandi formaður Eggert Magnússon lætur af starfi formanns KSÍ á ársþingi sambandsins á morgun. Það verður ekki eingöngu kosið um formann KSÍ á ársþingi sambandsins því einnig liggja fyrir nokkrar athyglisverðar tillögur um breytingar á reglum og fyrirkomulagi á mótum innan KSÍ. Áður hefur verið fjallað um tillögu þess efnis að fjölga skuli liðum í efstu deild karla og kvenna og einnig í 2. deild karla. Varalið í íslandsmót HK hefur lagt inn tillögu sem tekin verður fyrir á ársþingi KSÍ. Tillagan hljóðar upp á að heimila félögum að senda varalið til keppni á Íslandsmót- um í meistaraflokki karla og einnig að hvert félag í Landsbankadeild kvenna fái rétt til að senda B-lið til keppni í 1. deild kvenna. Tillagan er svohljóðandi fyrir meistaraflokk karla. „Hvert félag hefur rétt til þess að senda tvö lið í deildakeppni Íslandsmótsins. B-liðið hefur keppni í neðstu deild og getur aðeins leikið í 2. og 3. deild, alltaf þó minnst einni deild neðar en A-lið sama félags. Hlutgengir með B-liði eru allir þeir leikmenn viðkomandi félags, sem ekki tóku þátt í næsta leik A-liðs á undan, á Íslandsmóti eða í bikarkeppni KSÍ.“ Þá hljóðar tillaga HK um meistaraflokk kvenna á þennan veg. „Hvert félag í Landsbankadeild kvenna hefur rétt til að senda B-lið sitt til keppni í 1. deild. Það getur ekki unnið sig upp um deild og ef það endar í fyrsta eða öðru sæti síns riðils, fara tvö efstu liðin sem ekki eru B-lið í úrslitakeppnina. Hlutgengir með B-liði eru allir þeir leikmenn viðkomandi félags sem ekki tóku þátt í næsta leik A-liðs á undan, á Íslandsmóti eða í bikarkeppni KSÍ.“ Bikarkeppni karla KFS hefur lagt fram eftirfarandi tillögu að breytingu á bikarkeppni karla. „Í undankeppni taka þátt öll lið nema þau sem taka þátt í Evrópukeppni það árið, auk 12 efstu annarra liða árið áður og keppni liðanna hagað svo, að 12 lið komist áfram í aðalkeppnina (24 liða úrslit). Þar bætast við 12 efstu félögin, fyrir utan félögin í Evrópukeppni, frá árinu áður. Í næstu umferð á eftir (16 liða úrslit) bætast svo við félögin 4, sem taka þátt í Evrópukeppni það árið. Skal undankeppni lokið eigi síðar en 15. júní,“ en samkvæmt núverandi fyrirkomulagi koma liðin í Landsbankadeild karla inn í bikarkeppnina í 16 liða úrslitum og aðeins sex neðri deildarlið komast áfram í aðalkeppnina. Einnig leggur KFS fram tillögu sem er svohljóðandi: FöSTudAgur 9. FEBrúAr 200730 Sport DV FormannseFni JaFet ÓlaFsson halla gunnarsdÓttir HVer er JaFet ólaFsson? „Ég er viðskiptafræðingur og hef mest starfað í fjármálageiranum. Ég hef verið framkvæmdastjóri Stöðvar 2 og framkvæmdastjóri Verðbréfa- stofunnar, VBS, undanfarin tíu ár. Ég lét af því starfi í lok síðasta árs en ég sit í stjórn fyrirtækisins. Það má segja að ég sé sjálfstætt starfandi fjármálaráðgjafi núna.“ aF HVerJu Býður þú þig Fram til Formanns ksí? „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum og spilaði mikið fótbolta sjálfur þegar ég var að alast upp, í liðunum hér í reykjavík. Ég hef töluvert starfað innan íþróttahreyfingarinnar, sérstaklega tengt badminton. Ég var formaður badmintonsambandsins um nokkurra ára skeið þannig að ég þekki töluvert til reksturs innan íþróttahreyfingarinnar. Mér finnst starf formanns KSÍ vera mjög spennandi og ögrandi starf. Knattspyrnan hefur verið í mikilli sókn og mig langar til að leggja mitt af mörkum til að efla hana enn frekar.“ Ætlar þú að Beita þér Fyrir einHVerJum ákVeðnum málum eða Breytingum eF þú kemst til Valda? „Það verður nú engin bylting af því að það hefur verið unnið gott starf innan KSÍ og hjá knattspyrnufélögunum almennt í landinu. Það hefur verið mikil gróska og ég held að KSÍ þurfi að hlúa betur að grasrótinni. Það er ekkert sjálfgefið að góðir knattspyrnumenn fæðist hjá stóru félögunum þannig að við þurfum að huga líka að þeim litlu og veita þeim sem hafa ekki sömu möguleika og stóru félögin betri aðstoð.“ aF HVerJu Ættu Félögin að kJósa þig? „Ég hef fram að færa mjög víðtæka reynslu og þekkingu á íslensku viðskiptalífi. Ég horfi á KSÍ sem fyrirtæki sem þarf að reka vel og eigendur þess eru félögin í landinu. KSÍ er aldrei sterkara en knattspyrnufélögin vítt og breitt um landið. Aðalástæðan er reynslan og þekkingin og einnig tel ég mig vera kröftugan stjórnanda. Ég er tilbúinn til að leggja krafta mína í þetta starf en ég tek það fram að ég er ekki að fara í þetta til að verða starfandi stjórnarformaður.“ HVer er Bakgrunnur þinn í knattspyrnu? „Ég lék knattspyrnu með Val, reyndar handbolta líka, og ég fór í keppnisferðir með því ágæta félagi til útlanda. Ég spilaði einnig í mörg ár með mjög efnilegu knattspyrnuliði úr verslunarskólanum. Við spiluðum á skólamótum í ein sex ár.“ HVert er þitt Félag Hér á landi? „Mitt félag hefur alltaf verið Valur en ég tek það alveg skýrt fram að ég er ekki að fara fram í formannskjör á vegum þess félags. Ég yrði frekar félagslaus ef ske kynni að ég yrði formaður en af því að þú spyrð að þessu þá er það einnig rauði liturinn á Englandi, Manchester united. Ég er búinn að fylgja því ágæta félagi frá árinu 1965.“ HVer er Halla gunnarsdóttir? „Ég er blaðamaður á Morgunblaðinu. Kennaramenntuð og í meistara- námi í alþjóðasamskiptum. Fótboltastelpa, hagyrðingur í þjálfun og hef ferðast töluvert.“ aF HVerJu Býður þú þig Fram til Formanns ksí? „Ég held að ég sé með ákveðnar áherslur sem væru góðar fyrir KSÍ. Ég held að ég hafi heilmikið fram að færa í þetta formannsembætti og tel að ég geti látið gott af mér leiða.“ Ætlar þú að Beita þér Fyrir einHVerJum ákVeðnum málum eða Breytingum eF þú kemst til Valda? „Ég vil leggja áherslu á hinn almenna knattspyrnuiðkanda og efla þann þátt KSÍ, sem er að efla knattspyrnu í landinu. Kvennaboltinn stendur mér nærri, enda þekki ég hann vel af eigin reynslu.“ aF HVerJu Ættu Félögin að kJósa þig? „Ég lít fyrst og fremst á formanninn sem andlit KSÍ út á við og sem talsmann knattspyrnunnar. Ég hef það mikla ástríðu fyrir fótbolta að ég tel mig geta verið mjög góðan talsmann fyrir knattspyrnuna. Það sem ég myndi einnig leggja áherslu á er gagnsæ stjórnsýsla, hafa sem mest uppi á yfirborðinu og vera í góðu samráði við félögin í landinu. Ég myndi leggja mig fram um að það yrði alltaf rætt við félögin reglulega, ekki ráðist í neinar breytingar nema að undangengnum ákveðnum viðræðum.“ Félög víðsvegar að af landinu hafa sent inn tillögur sem teknar verða fyrir á 61. ársþingi KSÍ, sem haldið verður á Hótel Loftleiðum á morgun.tillögur á ársþingi KsÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.