Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Blaðsíða 31
„Aðalkeppnin skal hefjast eftir 15. júní. Í fyrstu
umferð aðalkeppni (24 liða úrslitum) skulu lið leika
á heimavelli, ef þau eru úr neðri deild, en liðið, sem
dregst á móti, annars ræður dráttur heimavelli. Öll
liðin 24 geta dregist saman, óháð röðun í deildir.“
Markverðir í yngri flokkuM
HK leggur einnig fram tillögu um að markverðir í 3.,
4., 5. og 6. flokki karla og kvenna fái heimild til að
leika sem útileikmenn með liðum af öðrum
styrkleika. Þannig fengi til dæmis markvörður í A-
liði heimild að leika sem útileikmaður í B-liði og
markvörður í B-liði heimild til að leika sem
útileikmaður í A-liði og svo framvegis.
Með þessari breytingu vilja HK-menn meina að
komið sé til móts við auknar kröfur um að
markverðir geti leikið sem öftustu varnarmenn án
þess að handleika knöttinn.
landsliðsþjálfarar
Ársþing KSÍ samþykkti að beina þeim tilmælum frá
Þór Akureyri til stjórnar KSÍ að landsliðsþjálfarar
sem ráðnir eru til sambandsins séu ekki þjálfarar
viðkomandi aldursflokka hjá félagsliði á sama tíma
og þeir eru í starfi sem landsliðsþjálfarar hjá KSÍ.
Þórsarar vilja meina að sé landsliðsþjálfari einnig
þjálfari sama aldursflokks hjá félagsliði sé auðvelt
að véfengja trúverðugleika hans, hætta sé á
hagsmunaárekstrum og viðbúið sé að leikmenn úr
hans félagsliði sem valdir eru njóti ekki sannmælis
annarra.
ferðasjóður íþróttafélaga
Menntamálaráðherra hefur skipað nefnd um
ferðasjóð íþróttafélaga en starf nefndarinnar er að
koma á laggirnar ferðasjóði íþróttafélaga, til að
auðvelda þeim að fjármagna ferðakostnað, sem
reynist mörgum íþróttafélögum þungur baggi,
ekki síst félögum af landsbyggðinni. Á ársþinginu
verður þessi ferðasjóður kynntur fyrir aðildarfélög-
um og í framhaldinu send áskorun á nefndina um að
koma þessum ferðasjóði á laggirnar sem allra fyrst.
DV Sport fÖStudAgur 9. feBrúAr 2007 31
FormannseFni kjör á formanni ksí fer fram á ársþingi sambandsins á morgun, 10. febrúar. þrír eru í framboði og dv hafði samband við þá í tilraun til að kynnast þeim örlítið betur.
geir þorsteinsson
Hver er geir þorsteinsson?
„Ég er 42 ára og er framkvæmdastjóri KSÍ. Ég er giftur Ingu Kristjáns-
dóttur og við eigum eina dóttur. Við búum á Seltjarnarnesi. Íslensk
knattspyrna er starf mitt og áhugamál.“
af Hverju býður þú þig fraM til forManns ksí?
„Ég hef mikinn metnað fyrir hönd íslenskrar knattspyrnu. Ég hef starf-
að innan knattspyrnuhreyfingarinnar í rúm 25 ár og tel mig hafa bæði
nauðsynlega reynslu og þekkingu til að leiða KSÍ.“
Ætlar þú að beita þér fyrir einHverjuM ákveðnuM
MáluM eða breytinguM ef þú keMst til valda?
„Ég vil vinna að eflingu íslenskrar knattspyrnu á mörgum sviðum, til
dæmis tryggja að knattspyrnufélög um land allt standi traustum fótum
og fái stuðning frá sveitarfélögum sínum í barna- og unglingastarf og
einnig vil ég efla stuðning KSÍ við barna- og unglingastarf. Ég vil vinna að
því að efla enn menntun þjálfara og dómara, standa fyrir átaki í fjölgun
dómara, standa fyrir útbreiðsluverkefnum með því að nýta sparkvelli
um land allt, ljúka endurskoðun regluverks KSÍ, vinna að uppbyggingu
fleiri knattspyrnuhúsa og gervigrasvalla. Auk þess vil ég efla starfsemi
í A-landsliðum, fjölga verkefnum og vinna að því að koma landsliði í
úrslitakeppni.“
af Hverju Ættu félögin að kjósa þig?
„Ég er í raun alinn upp í knattspyrnuhreyfingunni, sem hefur verið góður
skóli. Nú er ég reiðbúinn að leiða íslenska knattspyrnu inn í nýja tíma.“
Hver er bakgrunnur þinn í knattspyrnu?
„Ég lék fótbolta í yngri flokkum en 17 ára hóf ég að dæma og árið eftir
að þjálfa. Síðar tóku við ýmis konar forystustörf. Ég hóf störf á skrifstofu
KSÍ 1992 þar sem ég hef starfað síðan. Ég hef einnig sinnt störfum fyrir
uefA frá 1998 sem eftirlitsmaður og nefndarmaður.“
Hvert er þitt félag Hér á landi?
„Kr.“
Hver er bakgrunnur þinn í knattspyrnu?
„Ég æfði fótbolta allt frá því að ég vissi að hægt væri að æfa fótbolta, þá
voru að vísu eingöngu æfingar einu sinni í viku fyrir allar stelpur í bænum.
Ég hélt samt áfram þrátt fyrir að oft hafi verið erfitt að vera átta ára og æfa
með 15 ára gömlum stelpum. fótbolti hefur í raun fylgt mér alltaf, hvert
sem ég hef komið þá hef ég komið mér í fótbolta. Ég var að þjálfa fótbolta
í taílandi, í rúmeníu vann ég í því að byggja fótboltavöll og á Kúbu var
ég í fjölþjóðaliði sem keppti við heimamenn. Það má því segja að ég
þefi fótbolta uppi hvar sem ég kem. Ég sat einnig í stjórn Aftureldingar
á sínum tíma en ég held að fótbolti hafi komið næst mér sem almennum
knattspyrnuiðkanda. Í dag æfi ég ekki fótbolta en ég spila samt sem áður
fótbolta þrisvar í viku og það sem heillar mig mest við hann er hvað þetta
er landamæralaus leikur. fótbolti sameinar fólk, til dæmis á vinnustað.
tungumál skiptir ekki máli, stétt eða staða skiptir ekki máli og kyn á ekki
að skipta máli og ekki kynhneigð heldur.“
Hvert er þitt félag Hér á landi?
„Afturelding. Ég hef einnig spilað með Þrótti/Haukum, Leikni á
fáskrúðsfirði og fC Haslev í danmörku. Ég fylgist enn með þessum
félögum en hjartað slær með Aftureldingu.“
landsbankadeild kvenna Svo gæti farið
að liðin í Landsbankadeild kvenna verði níu
næsta sumar í stað átta eins og verið hefur.