Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Blaðsíða 35
DV Sport föstudagur 9. febrúar 2007 35 Einar Þorvarðarson, fram- kvæmdastjóri HSÍ, stóð í ströngu bak við tjöldin á Heimsmeistaramót- inu í Þýskalandi. Einar var fararstjóri landsliðsins, auk þess sem eftirspurn eftir miðum hefur sjaldan eða aldrei verið meiri hér heima. „Við fundum fyrir gríðarlegum áhuga strax eftir Svíaleikinn og um leið og var búið að draga í riðla- keppnina fór að rigna inn fyrirspurn- um. Það var miklu meira af fólki sem sótti mótið frá Íslandi en áður hefur þekkst. Við hér á HSÍ fórum þá á fullt að aðstoða fólk við að ná í miða og miðað við uppsetningu mótsins sett- um við allan þungann í að ná í miða fyrir fólk á Magdeburgarleikina. Það tókst og við útveguðum Íslending- um um 350 miða. Síðan eftir riðilinn var fullt af fólki sem ætlaði að fylgja liðinu áfram og það gekk vel að fá miða í Halle en þegar við spiluðum við Þjóðverja áttum við í erfiðleikum með það. Álagið í kringum þetta var mikið en við vorum ánægðir með stuðn- ingsmennina, það fór gott orð af Ís- lendingunum og við höfum ekki feng- ið eina einustu kvörtun vegna þeirra. Stuðningur þeirra var ótrúlega mikill og ég hef ekki séð jafn mikið af fólki í kringum liðið.“ Einar er ein af hetjum Íslands frá því 1989 þegar íslenska liðið vann B-heimsmeistarakeppnina og lagði það pólska í ótrúlegum úrslitaleik. Þá flykktust Íslendingar til Frakklands þar sem úrslitaleikurinn fór fram. Einar vill nánast ekki hugsa þá hugs- un til enda hefði íslenska liðið komist alla leið í úrslitaleikinn. „Hefðum við unnið Danina þá hefði þjóðfélagið hér heima væntan- lega farið á annan endann,“ segir Ein- ar og hlær. „Gallinn var að það var eiginlega enga miða að fá, það var mikil eftir- spurn eftir miðum og það seldist hratt upp á alla leiki. Miðavandamálið sem við lentum í var fyrst og fremst í Hamborg og Alþjóðahandknattleiks- sambandið þarf nauðsynlega að búa til einhverjar reglur um að það séu eyrnamerktir miðar fyrir liðin. Við þurftum að stoppa fullt af fólki sem ætlaði að koma af því við einfaldlega gátum ekki hjálpað því.“ Stemmingin á móti Frökkum einstök Íslenska liðið lék tíu leiki á HM, vann fjóra og tapaði sex. Einar var í eldlínunni úti í Þýskalandi og hann fékk stemminguna beint í æð. „Eftir Úkraínuleikinn vorum við á þröskuldnum að detta út úr keppn- inni, en það var stórkostlegt að vinna Frakka. Ég vil meina það að stemm- ingin í húsinu í Magdeburg á móti Frökkum hafi verið einstök. Allir Þjóðverjarnir sem héldu með okkur – og ég er nokkuð viss að það hafi verið hátt í 500 Íslendingar á þessum leik. Þetta var ógleymanleg stund og hef ég nú farið á þá nokkra handbolta- leikina. Leikurinn við Frakka sýndi okkur að þetta lið getur gert ýmislegt og ég vil meina að þetta hafi verið besti leikur liðsins í keppninni. Varn- arlega og sóknarlega.“ Aðspurður um hvernig honum hafi litist á milliriðilinn, þar sem ís- lenska liðið mætti Slóveníu, Póllandi, Túnis og Þýskalandi, segir Einar að hann hafi haft það á tilfinningunni að íslenska liðið hefði getað unnið alla en líka tapað fyrir öllum. „Við komumst í gegnum Túnis með góðum síðari hálfleik, Pólverja- leikurinn var í járnum allan tímann og hefði getað dottið hvorum megin sem var, það er kannski helst í þeim leik sem hægt er að gagnrýna dóm- gæsluna. Frábært dómarapar sem dæmdi leikinn en átti alveg skelfi- legan dag. Síðan á móti Slóveníu langaði okkur einfaldlega meira en þá að komast í átta liða úrslit. Það var þægilegt að við vorum búnir að tryggja okkur í átta liða úrslit þegar við mættum Þjóðverjum. Í leiknum á móti þeim sá ég að þeir myndu fara langt. Að það væri ekkert lið sem gæti klárað það lið.“ Höfum ekki nógu jafnan mannskap Íslenska liðið endaði í áttunda sæti, árangur sem er vissulega við- unandi hjá lítilli þjóð, en að sama skapi höfum við tvo af bestu hand- boltamönnum heims innan okkar vébanda í sjö manna liði. Einnig hafa heyrst raddir um að árangurinn sé ekkert til að hrópa húrra yfir. „Ef maður greinir þetta mót, þá er þetta lengsta mót sem við höf- um tekið þátt í. Tíu leikir á tveim- ur vikum. Fyrir mótið sagði ég að við myndum eiga í erfiðleikum eftir áttunda leik við að halda uppi styrk okkar. Einfaldlega vegna þess að við höfum ekki nógu jafnan mann- skap, það voru menn sem náðu ekki að toppa í Þýskalandi og fyrir vikið þurfti Alfreð að keyra á burðarás- um í öllum okkar leikjum. Ég hefði viljað sjá mann eins og Fúsa (Sigfús Sigurðsson) miklu öflugri, hann er kominn með það mikla reynslu og er það mikilvægur fyrir liðið í vörn en hann náði sér í raun aldrei á það flug sem maður vildi. Arnór (Atlason) átti erfitt uppdráttar og þetta var ekki hans keppni, en hann er ung- ur og þetta fer í reynslubankann hjá honum. Þegar mótið er svona langt verður mjög erfitt að spila alltaf á sama mannskapnum. Ég sá þetta líka á EM í Svíþjóð, það þurfa fleiri að taka upp hanskann. Við þurfum að hafa alla 16 leikmenn heila til að allt gangi upp. Það sem maður sér líka eftir mót- ið, er að íslenska vörnin spilaði ekki nógu vel. Íslenska liðið er það geysi- lega sterkt hraðaupphlaupslið og ef við eigum að geta nýtt hámarksgetu liðsins þá þurfum við að geta var- ist betur. Varnarleikurinn varð aldrei eins og ég vildi sjá hann, við fengum á okkur töluvert mikið af mörkum og þarna segi ég að við hefðum getað bætt okkur. Við vorum að spila frá- bæran sóknarleik allt mótið.“ Framhaldið Búið er að draga í undankeppni fyrir Evrópumótið í Noregi sem fram fer í janúar á næsta ári. Íslending- ar voru óheppnir í drættinum en við mætum Serbíu í tveimur leikjum. Einar segir að verkefni landsliðsins séu klár og þar ber hæst spennandi fjögurra landa mót í Frakklandi um páskana. „Íslenska liðið leikur á alþjóð- legu móti í Frakklandi um páskana þar sem við komum til með að spila á fjögurra landa móti ásamt heima- mönnum, Túnisum og Pólverjum. Það er fyrsta verkefnið síðan á HM. Deildirnar stoppa og landsliðið verð- ur saman í viku og við ætlum að nýta tímann vel. Svo kemur landsliðið aft- ur saman 3. júní og spilum við tvo vináttuleiki við Tékka í Tékklandi. Æfum svo annað hvort í Þýskalandi eða Tékklandi og förum þaðan til Serbíu og spilum þar 10. júní. Síð- ari leikurinn er síðan þjóðhátíðar- daginn 17. júní. Þarna er undir sæti á EM í Noregi sem verður í janúar.“ Að- spurður um getu Serbíu svarar Ein- ar að Serbar séu sýnd veiði en ekki gefin. „Það er fullt af góðum serbnesk- um handboltaleikmönnum sem hafa kannski ekki verið að spila mik- ið með landsliði Serbíu/Svartfjalla- lands. Ég held að fyrrverandi þjálf- ari Serbíu/Svartfjallalands hafi valið fleiri Svartfellinga í liðið af því hann var Svartfellingur. En margir leik- menn Serbíu spila með bestu liðum heims, til dæmis Ilic sem er hjá Alfreð í Gummersbach og fleirum. Þannig að þeir eru sýnd veiði en ekki gefin.“ Alfreð Gíslason lét hafa eftir sér í viðtölum eftir HM að hann hygðist hætta með landsliðið. En Einar segir að hann sé með samning við HSÍ til 1. júlí 2007 og HSÍ hefur ekki í hyggju að rifta þeim samningi. „Við erum með þessi verkefni til að komast inn á EM, Alfreð er frábær þjálfari og menn hugsa ýmislegt eftir stórmót. Menn eru þreyttir og þurfa að fara í gegnum ýmsa hluti en ég vona að hann verði tilbúinn og verði með okkur í gegnum þetta allt til loka. Alfreð stendur reyndar ekkert einn í þessu það eru margir sem koma að íslenska landsliðinu. Það er heilmik- ið batterí á bak við tjöldin, leikgrein- ingarmaður eins og Gunnar Magn- ússon, sjúkranuddarinn Ingibjörg Magnúsdóttir, læknirinn Brynjólfur Jónsson og Björgvin Eyjólfsson sem sér um ýmsa aðra þætti og allt þetta fólk á svo sannarlega hrós skilið því það er að vinna frábært starf.“ Gæði hér heima DHL-deildin hér heima hefur verið í mikilli uppsveiflu. Deildin er jöfn og spennandi og fyrirkomulagið sem HSÍ setti á laggirnar virðist vera að bera árangur. „Ég er alveg á því að deildin hér heima er nokkuð góð. Með þessum breytingum verður töluverð söfnun í betri liðin en gæðin hafa klárlega aukist. Stóra vandamálið er að með- alaldurinn er lágur. Og leikmenn sem eru kannski 26–27 ára gamlir eru farnir að hætta og einbeita sér að vinnunni. Ef þeir eru ekki orðnir at- vinnumenn og eiga ekki möguleika á að komast í landsliðið þá virðist vera að menn einfaldlega hætti í íþrótt- inni. En það er mikið af efnilegum strákum hér heima og Markús Máni Michaelsson sýndi til dæmis í leikn- um við Þjóðverja hversu sterkur leik- maður hann er orðinn, sem og Rol- and Eradze. Við erum ekki að komast í gegn- um norsk eða dönsk lið í Evrópu- keppni, en þar er líka orðin meiri at- vinnumennska en hér á Íslandi. Handbolti á Íslandi er afreksíþrótt, það er alveg hægt að segja það mjög ákveðið. Það er ekki verið að reka þetta hér heima, sérstaklega í efstu deildunum, sem einhverja afþrey- ingaríþrótt. Þótt við séum auðvitað með utandeild og svo framvegis.“ Framtíðin björt Undanfarin ár hefur HSÍ rekið af- reksstefnu, tekið inn stráka á aldrin- um 13–14 ára og sett þá í handbolta- skóla og 15–16 ára gamlir strákar eru valdir í landsliðshóp. Einar Hólm- geirsson hafði til dæmis spilað fjöl- marga unglingalandsleiki áður en hann varð A-landsliðsmaður. „Það er unnið mjög gott starf með unga leikmenn,“ segir Einar. „Unn- ið að því að búa til framtíðarlands- liðsmenn Íslands og þeir fá mikið af verkefnum þessir strákar og það mætti segja að við séum að horfa á kynslóð 16–17 ára stráka sem lofar virkilega góðu. Tökum sem dæmi þriðja flokk FH sem hefur náð frá- bærum árangri á erlendri grund. Framtíðin er nokkuð björt, við sjáum fram á að fá mikið af gæðaleikmönn- um upp en það er líka hægt að benda á, það sem við innan HSÍ höfum haft töluverðar áhyggjur af, sem er hæð og líkamlegt atgervi leikmanna sem er ekki jafn gott og hjá öðrum þjóð- um. Það er eitthvað sem við þurf- um að vinna vel að til að geta keppt áfram við þessar þjóðir til framtíð- ar. Markmið okkar er að vera áfram í topp 10 í heiminum. Iðkendum hefur fjölgað um 300 á ári undanfarin ár og við erum fjórða stærsta sérsambandið eins og staðan er í dag. Og það er hægt að segja að það sé unnið mikið og gott starf hjá félögunum. Það eru færir og góð- ir þjálfarar hér á Íslandi, það er ekki spurning.“ Þróun til hins betra Handbolti hefur þróast mjög mikið á undanförnum árum og er það mikið því að þakka að lið geta nú tekið hraða miðju. Ef horft er á hinn margfræga úrslitaleik frá 1989 er hægt að sjá breytinguna mjög greinilega. Sumir vilja meira að segja ganga svo langt að kalla þetta nánast aðra íþrótt. „Það eru lið eins og Pólverjar sem keyra hraða miðju og spila ákveðið kerfi beint út úr þessari hröðu miðju. Íþróttin er orðin miklu hraðari og maður sér miklu minna af grófum leikbrotum eins og voru hér áður. Ég held að það sé ekki spurning að þetta sé orðin miklu skemmtilegra fyrir áhorfendur, þetta er mjög góð þróun því þetta er svo skemmtileg íþrótt,“ segir Einar að lokum. benni@dv.is að taka upp hanskann Þurfa fleiri Stemming á móti Frökkum Einar hefur farið á margan handboltaleikinn og viðurkennir að stemmingin í Magdeburg á móti Frökkum hafi verið einstök. „Það sem maður sér líka eftir mótið, er að íslenska vörn- in spilaði ekki nógu vel. Íslenska liðið er það geysilega sterkt hraðaupphlaupslið og ef við eigum að geta nýtt hámarks- getu liðsins þá þurf- um við að geta varist betur.“ „Ég er alveg á því að deildin hér heima er nokkuð góð. Með þessum breytingum verð- ur töluverð söfnun í betri liðin en gæðin hafa klárlega aukist. Stóra vandamálið er að með- alaldurinn er lágur. Og leikmenn sem eru kannski 26–27 ára gamlir eru farnir að hætta og einbeita sér að vinnunni.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.