Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Page 36
föstudagur 9. febrúar 200736 Sport DV Valsmenn tróna á toppi dHL-deildarinnar með 16 stig og leika við Íslandsmeistara fram á sunnudag. Óskar bjarni Óskarsson, þjálf­ari Vals, er einn af­ f­áum þjálf­urum í deildinni sem hef­ur allan sinn mannskap heilan og segir að liðið komi vel undirbúið í síðari hluta mótsins. „frá og með 3. janúar byrjuðum við að æf­a, ef­tir að haf­a tekið því rólega yf­ir jól og áramót. Við spiluðum f­imm æf­ingarleiki, það hef­ur ver- ið brjáluð keyrsla á æf­ingum og við æf­ðum mikið með bolta. Mannskapurinn er í f­lottu standi, smávægileg meiðsli hjá markvörðum okkar, Ólaf­ur (gíslason) er eitthvað að kvarta undan hnénu og Pálmar hef­ur verið aumur í ökkla. en ég vona að ég geti stillt upp mínu sterkasta liði á móti fram á sunnu- dag. Það er gaman að byrja af­tur að spila, um leið og HM var búin var komið annað hljóð í mann og ég er f­ullur tilhlökkunar. Ég get ekki séð annað en að þessi deild sé mjög sterk. til dæmis úkraínumað- urinn hjá stjörnunni, sem hef­ur ekki verið í lykilhlutverki hjá liðinu, hann stóð sig vel á HM og svo spilaði Markús Máni vel þannig að ég er bara jákvæður. svo eru liðin að styrkja sig alls- vakalega, fylkir, stjarnan og akur- eyri haf­a öll verið að styrkja sig þannig að þetta verður enn meiri barátta en f­yrir jól.“ Valur1 HK er í öðru sæti deildarinnar, aðeins einu stigi á ef­tir Val sem trónir á toppn- um. HK lék vel f­yrir áramót og hef­ur kom- ið töluvert á óvart. gunnar Magnússon, aðstoðarþjálf­ari HK, segir að f­ríið haf­i verið nýtt vel og að þeir hlakki til að byrja að spila alvöruleiki að nýju. „Við æf­ðum vel, spiluðum töluvert af­ æf­ingar- leikjum og reyndum að nýta tímann vel. Von- andi komum við vel undirbúnir til leiks. Heils- an er því miður ekki nógu góð hjá leikmönnunum, Valdimar Þórsson meiddist á öxl í æf­ingarleik um daginn og verður trúlega ekki með í f­yrsta leik, tomas eitutis, örvhenta skyttan sem kemur f­rá Litháen, meiddist á hné með landsliði Litháa og verður f­rá í þrjár til f­jórar vikur og svo meiddist ungur leikmaður, gunnar Jónsson, og hann verður f­rá í tvær til þrjár vikur. Valdimar hef­ur náttúrulega verið okkar besti maður þannig að það er skarð sem við þurf­um að f­ylla. en þetta er það sem öll lið lenda í og það er okkar að vinna okkur út úr þessum vanda. Mér líst vel á síðari hluta deildarinnar og ég held að þetta verði sterkara mót núna ef­tir ára- mót en f­yrir jól. Þetta verður svakaleg barátta, bæði í ef­ri og neðri hluta deildarinnar, fylkir, stjarnan og akureyri haf­a styrkt sig og þetta verður mikil barátta. Það verður stutt á milli og eins og staðan er í dag þá er erf­itt að spá í hverjir f­alla.“ HK2 ef­tir að haf­a samein- ast leika Ka og Þór nú undir merkjum akur- eyrar. ef­tir smá byrj- unarerf­iðleika eru norðanmenn í þriðja sæti deildarinnar og haf­a endurheimt ein- ar Loga friðjónsson en hann lék með ems- detten í Þýskalandi. rúnar sigtryggsson, þjálf­ari akureyrar, segir að þeir haf­i reynt að haf­a æf­ingar á léttu nótunum þar sem mikið haf­i verið æf­t með bolta. „Við f­órum ekki í þann pakka að tala um þetta f­rí sem annað undirbúningstímabil, reyndum að haf­a þetta létt f­yrir andlegu hliðina og svo verðum við bara að sjá hverju það skilar okk- ur. allir eru heilir og við styrkjumst við að f­á einar Loga af­tur en við höf­um verið í vandræðum með hægri skyttuna. reyndar er spurning með Hreiðar, hvernig hann verður ef­tir HM. ef­tir eM í f­yrra varði hann varla bolta og það verður bara að koma í ljós með hann. Ég vona bara að f­ólk sé ekki búið að f­á of­ mikið af­ handbolta, mótið er búið að vera æsispenn- andi f­ram að þessu og ég held að spennan eigi bara ef­tir að aukast. Pakkinn á örugglega ef­tir að þéttast eitthvað meira og vonandi verður spenna f­ram á síðustu umf­erð. Það er líka að svo miklu að keppa, bara út af­ stressi voru tveir þjálf­arar látnir f­ara og það hef­ur ekki gerst lengi í handboltanum. Það er f­arið að gera kröf­u um árangur hér heima.“ Akureyri3 ef­tir erf­iða byrjun hjá stjörnunni var skipt um þjálf­ara. sigurður bjarnason og Magnús teits- son yf­irgáf­u skútuna og Kristján Halldórsson tók við. Hann segir að stjörnumenn komi vel undirbúnir til leiks og haf­i nýtt f­ríið vel. „Patrekur Jóhannesson er búinn að vera f­rá í hartnær tvo mánuði og hann er klár í slaginn. Ólaf­ur Víðisson er einnig klár ef­tir að haf­a meiðst ef­tir f­yrstu leikina, svo erum við að reyna að meðhöndla tite Kaladadze og gerum okkur vonir um að hann verði klár um helgina. svo er bara að vona að roland eradze verði orðinn heill ef­tir of­næmið sem hélt honum utan vallar síðustu leikin á HM. Þannig að við teljum okkur í góðum málum með mannskap- inn. aldrei þessu vant get ég hugsanlega stillt upp mínu sterkasta liði. en það er gríðarleg samkeppni um stöður, hátt í tuttugu manns að æf­a og hart tekist á því nú vita menn ekki hverjir verða á skýrslu. Við erum búnir að vinna í andlega og líkam- lega þættinum, það er svolítið langt í Val og HK en það þarf­ ekki mikið til. Á meðan við vinnum okkar leiki og þeim mistekst eitthvað, þá er allt hægt. en við ætlum bara að einbeita okkur að næsta leik sem er á móti Haukum. Nú er bara að vona að f­é- lögin haf­i manndóm í sér til að f­ylgja ef­tir f­rábærri heimsmeist- arakeppni sem var góð auglýsing f­yrir handboltann. Og ef­ við notf­ærum okkur ekki þennan meðbyr og gef­um aðeins í og f­áum f­leira f­ólk á völlinn, þá er eitthvað að.“ Stjarnan4 Haukar eru í 5. sæti með 11 stig og urðu f­yrir áf­alli þegar einn af­ burðarásum liðsins, andri stef­an, meiddist en hann f­ótbrotnaði og við- urkennir Páll Ólaf­sson, þjálf­ari Hauka, að þeir eigi í erf­iðleikum með að manna æf­ingar. „Við höf­um verið f­átækir af­ mannskap, andri stef­- an er f­rá og svo meiddist sigurberg sveinsson í leik með öðrum f­lokki. Það var vont að missa tvo útileikmenn því það hef­ur verið erf­itt að stilla upp á æf­ingum, þannig að ég hef­ aðeins verið að taka á strákunum á æf­ingum,“ segir Páll í léttum tón. „Mér líst vel á þennan síðari hluta deildarinnar, þetta verður erf­itt prógramm f­yrir okkur strax í byrjun, við mætum stjörnunni, HK, Val og svo eru undanúrslit í bikar. Þó að við séum ekki með nógu stóran hóp verður hver og einn í mínu liði að leggja meira á sig og leggja sig f­ram.“ 5 fylkir er með sjö stig í næstneðsta sæti dHL- deildarinnar. Liðið hef­- ur styrkst mikið að undanf­örnu og sterkir leikmenn haf­a snúið af­tur í Árbæinn. Heimir örn Árnason, gunn- laugur arnarsson og arnar Jón agnarsson komu til baka ef­tir dvöl erlendis. Ólaf­ur Lárus- son, sem f­ór hreinlega á kostum í lýsingum ríkissjónvarpsins á heimsmeistaramótinu, tók við fylki af­ sigurði sveinssyni og þrátt f­yrir að haf­a verið í Þýska- landi í tvær vikur er Ólaf­ur bjartsýnn á síðari hluta mótsins. „Það var sæmilegt f­rí ef­tir síðasta leik f­yrir jól, svo var bara vel tekið á því ef­tir jól og búið að vera góð og mikil keyrsla að undanf­örnu, með þrek- og þolæf­ingum og menn haf­a sinnt þeim verkef­num vel sem f­yrir þeim haf­a legið. Hlynur Morthens markvörður hef­ur verið að glíma við einhver smávægileg meiðsli í ökkla, en ég vona að hann verði klár um helgina því hann er einn mikilvægasti hlekkurinn í liðinu. annars er liðið þokkalega vel mannað í f­lestum stöðum og við erum komnir með góða breidd. Það er á brattann að sækja f­yrir okkur og alveg ljóst að það þarf­ að hala inn eitthvað af­ stigum til að lyf­ta sér af­ f­allsvæðinu sem er mikið og stórt verkef­ni. Þetta verða hörkuleikir og það bókar ekkert lið sigur á móti einhverju öðru liði. Ég held að þetta verði mjög spennandi alveg f­ram í rauðan dauðann eins og maður segir og ég hef­ f­ulla trú á því að það geti f­arið þannig að allt ráðist í lokaumf­erðinni 22. apríl.“ Ír situr á botni deildarinnar með f­jögur stig. Liðið hef­ur lent í ótrúlegum hrakningum vegna meiðsla leikmanna en erlendur Ísf­eld, þjálf­ari Ír-inga, segir að aðeins einn leikmaður úr 18 manna hópi hans haf­i sloppið við meiðsli f­yrri hluta móts. „Við byrjuðum af­ kraf­ti að æf­a í byrjun janúar ef­tir gott jólaf­rí og byrjuðum á styrktar- og út- haldsþjálf­un. 16. janúar f­órum við svo í viku til Kanaríeyja og æf­ðum og spiluðum þar við neðri deildar lið á eyjunum. síðan ef­tir að við komum heim hef­ur þetta verið meira hef­ð- bundin þjálf­un, að stilla upp og f­ara í meiri bolta og gera allt klárt.“ Ír spilaði f­imm æf­ing- arleiki f­yrir leikinn við HK sem verður á sunnu- dag. „deildin er jöf­n og við erum kannski pínu klauf­ar að vera á þeim stað sem við erum í dag. Við höf­um náttúrlega verið að glíma við ótrú- leg meiðsli, f­ótbrot, krossbandaslit, brjósklos og f­leira en erum vonandi að f­á einhverja til baka en það er tæpt að þeir nái f­yrsta leik. Markverðirnir verða ekki komnir inn en allir þrír markverðirnir meiddust í sömu vikunni í október og svo f­ór leikstjórnandinn davíð georgsson í að- gerð í hléinu og er í end- urhæf­ingu þannig að það mætti segja að við höf­um lent í hamf­örum,“ segir erlendur að lokum en Ír leik- ur við HK í digranesi á sunnudag. ÍR8Fylkir7 Íslandsmeistarar fram eru í sjötta sæti deild- arinnar. Jón eggert Hallsson, aðstoðar- þjálf­ari liðsins, stýrði fram f­rá 18. janúar og hann segir að liðið haf­i æf­t vel og komi þokka- lega undirbúnir til komandi átaka. „Þetta er búið að vera nánast annað undir- búningstímabil, mikið þrek og púl. guð- mundur var búinn að gera æf­ingaáætlun sem ég f­ylgdi ef­tir, en hann f­ylgdist með úr f­jarska.“ eins og greint var f­rá í dV um síðustu helgi eru þrír örvhentir leikmenn f­rá keppni vegna meiðsla. Jón björgvin Pétursson, rúnar Kárason og Hjörtur Hinriksson. „Það virðast vera einhver álög á örvhentum leikmönnum hér í saf­amýri, rúnar verður ekk- ert meira með vegna sprungu í hryggjarlið, Jón björgvin missti f­raman af­ f­ingri og Hjörtur virð- ist ekki búinn að ná sér ef­tir aðgerðina sem hann f­ór í en ég býst þó við að hann verði með um helgina. síðari hluti mótsins verður náttúrulega erf­iður, mörg liðin haf­a styrkt sig og ekki bætir úr skák að við töpuðum leikjum f­yrir jól þannig að við erum komnir í ekki nógu góða stöðu. Ég hef­ f­ulla trú á mínu liði en þetta verður erf­itt. það er svo stutt niður á botninn og upp á topp- inn, um leið og eitthvað bregður út af­ ertu kom- inn í vandræði en um leið og þú vinnur nokkra leiki í röð ertu kominn í toppmál. Þannig á þetta að vera, engir gef­ins leikir í þessu.“ Fram6 SpennA DHL-deildin í handbolta hefst að nýju um helgina eftir hlé vegna heimsmeistarakeppninnar. DV sló á þráðinn til þjálfara liðanna og spurði þá út í síðari helming deildarinnar. benni@dv.is jAFnt á toppi Sem á botni Haukar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.