Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Síða 39
orð annars mætast er hlutunum ætlað að gerast. Það er mín trú.“ Ólafur Ólafsson hafði sjálfur unnið göfugt sjálfboðaliðastarf í Danmörku. Hann hafði hlúð að heimilislausum, eiturlyfjasjúklingum og alkóhólistum með samtökunum Himmel Express- en, Himnahraðlestinni. „Draumur Óla var að við færum af stað með slíka starfsemi hér á Íslandi, enda var þá ekkert líkt þessu starfi til á Íslandi,“ segir Kolbrún. „Við vorum komin svo langt í þeirri hugmyndavinnu þegar Óli veiktist, að við höfðum meira að segja fengið úthlutað húsnæði þar sem við ætl- uðum að vera með matarúthlutun tvisvar í viku. Þess vegna trúði ég því aldrei að Óli myndi fara; það var svo mikið verkefni fram undan. Eftir að við tókum ákvörðun um að hlúa að krabbameinssjúkum og búa til stað fyrir þá, stað fyrir fólk eins og Óla og Jón, breyttum við Bergmáli úr kór í líknar- og vinafélag.“ Sveitastelpa úr Flóanum Fjórtánda starfsár Bergmáls er að hefjast. Yfir 1.200 manns hafa notið orlofsvikna samtakanna sem haldn- ar eru tvisvar á ári. Þegar Kolbrún hóf að leita að húsnæði sem uppfyllti all- ar óskir hennar, leitaði hugur hennar fyrst í Hlíðardalsskóla. En húsnæðið hafði breyst. „Eftir að ég hafði fengið jákvætt svar frá skólanum um að við mættum hafa afnot af húsnæðinu tvær vikur að sumri, fórum við austur að skoða skólann. Hann var í niðurníðslu. En kraftaverkin streymdu að okkur. Þar sem Drottinn allsherjar gerði mig þannig úr garði að ég fékk í fingurna ýmislegt sem aðrir hafa ekki, hafði ég kennt föndur og postulínsmálun árum saman og auglýsti námskeið í Vestmannaeyjum. Þar safnaðist drjúg fjárhæð. Skömmu síðar fékk ég símtal frá konu sem sagðist hafa heitið því að fengi hún greidda skuld, sem hún hafði átt útistandandi árum saman, myndi hún gefa hluta upp- hæðarinnar til að endurbyggja Hlíð- ardalsskóla. Skuldin var greidd og hún stóð við orð sín. Þetta sumar, 1995, fór ég að heiman 18. júní og kom heim aftur í byrjun september! Það gekk allt upp. Þegar það eina sem vantaði var baðker fór ég í verslun sem hafði nýverið verið með útsölu á baðkerum, en þau reyndust öll uppseld. Sem ég var að kveðja kallaði sölumaður fram og sagði að einu baðkeri hefði verið skilað um morguninn, því það væri ekki í staðlaðri stærð. Það baðker smellpassaði í Hlíðardalsskóla,“ segir hún brosandi, en þá hafði hún líka sagt mér af hundrað lítrunum af málningu sem hún fékk að gjöf og ýmsu öðru sem þurfti til að endurgera húsnæðið. Úr Hlíðardalsskóla átti Kolbrún góðar minningar, en þangað hélt hún til náms þegar ljóst var að ekki væri óhætt að hún gengi tíu kílómetra leið til og frá skóla á unglingsaldri. „Ég er sveitastelpa úr Flóanum,“ segir hún til útskýringar. „Óskaplega mikil sveitakerling og náttúrubarn í eðli mínu og sennilega hefði ekki orðið neitt úr neinu sem ég er að gera, nema vegna þess að ég er svo sveitó!“ segir hún og skellihlær. „Eftir barnaskóla fór ég í skóla á Selfossi og ég er nú orðin svo gömul að það var ekkert til sem hét skólabílar í þá daga. Þegar ég varð næstum einu sinni úti í kolvitlausu veðri tók fjölskyldan í taumana og sendi mig á Hlíðardalsskóla. Það var mikið gæfuspor því þar kynntist ég því góða fólki sem stóð að stofnun Bergmáls.“ Það sem Kolbrúnu fundust kost- ir við að vera „sveitastelpa“ fundust henni skyndilega verða gallar þegar að því kom að breyta Bergmáli í líkn- ar- og vinafélag. „Mér fannst útilokað að ég, sveitastelpan, væri í stakk búin til að taka að mér í orlofsdvöl einhvern viðkvæmasta hóp samfélagsins, krabbameinssjúklinga. En síðan kom til sögunnar fullt af góðu fólki með sömu langanir og þrár og við; að hlúa að þeim sem eru ekki eins heppnir og við að vakna heilir heilsu að morgni. Það er hlutverk þeirra sem eru heilbrigðir að hjálpa þeim sjúku,“ segir hún með áherslu. „Ég er atvinnubetlari!“ En hún leggur líka áherslu á að Bergmál sé ekki verk hennar einnar. Í stjórnina hafi valist einstakt fólk sem leggur mikið af mörkum. „Það er einstakt fólk í stjórn Bergmáls líkt og þeir sem starfa með okkur,“ segir hún. „Inntökuskilyrði í samtökin eru þau að leggja fram vinnu í minnst eina viku á ári, en svo er líka hægt að vera styrktarfélagi og borga 1.500 krónur í árgjald. Í Bergmáli eru bara ein lög, faðmlög,“ segir hún, stendur skyndilega á fætur, gengur yfir að mér og faðmar mig. Mér sýnist svona á svip fólksins á barnum að það sé síður en svo vant því að sjá fólk faðmast upp úr þurru, en það fólk er greinilega bara ekki kunnugt Bergmáli! „Ef það er eitthvað sem okkur öll vantar í þessu lífi, þá er það hlýja,“ segir hún. „Mér finnst að við ættum að gera meira af því að sýna hvert öðru hlýju og samhygð. Svo er ég eini „professional“ betlarinn á Íslandi,“ bætir hún við brosandi. „Maðurinn minn segir að það muni standa á legsteininum mínum: „Hún var betlari allt sitt líf“! Ég get sagt þér það, að ég yrði bara mjög stolt af því! Ég er alls ófeimin við að biðja um hluti eða peninga að gjöf til að byggja upp Bergmál. Ég er svo heppin að hafa hugmyndaflug á við átján manns og það kemur til af því að í minni sveit var ekki hægt að hlaupa út í búð og kaupa það sem hugurinn girntist. Einu sinni bjó ég til dæmis til fjaðurjólatré eins og ég hafði séð á jólakorti frá Halldóru frænku í Ameríku. Ég litaði hænsnafjaðrir grænar og límdi þær með hveitilími á spýtu. Þetta var glæsilegt jólatré.“ Talar bara við herra Kron Eini atvinnubetlarinn á Íslandi, eins og Kolbrún kallar sig, hefur aldrei talað við neinn nema toppinn í við- komandi fyrirtæki. „Ég geri eins og sveitamaður- inn sem þurfti að ná tali af forstjóra Kaupfélags Reykjavíkur og nágrenn- is, KRON, og spurði hvort herra Kron væri við. Það sama geri ég. Ég geri aldrei boð á undan mér, mæti og bið um að fá að hitta herra Kron. En ég er ekki dýrbítur og leggst ekki á fólk ár eftir ár. Bergmál á sína góðu bak- hjarla og sem dæmi get ég nefnt að við höfum haldið tvær orlofsvikur á ári frá stofnun Bergmáls, tekið á móti 1.200 manns og fengið allan mat að gjöf frá fyrirtækjum og framleiðend- um. Og ég hef ekki talað við einn ein- asta bankastjóra!“ En eitt er að halda tvær orlofsvikur og bjóða hundrað og tuttugu manns, annað að ráðast í byggingu rúmlega fimm hundruð fermetra húss með besta aðbúnaði sem völ er á fyrir veika og fatlaða. „Þegar mér datt þetta fyrst í hug leit fólk á mig eins og ég væri gengin af göflunum,“ segir Kolbrún. „En Guð sér um sína. Við fengum leiguland til 99 ára, að Sólheimum í Grímsnesi, og húsið mun rísa milli kirkjunnar og Sesseljuhúss. Við höfum fengið gefnar allar fagteikningar, gröfuvinnu, möl og akstur með hana í grunninn, flutninga á gröfu austur og svona mætti lengi telja. Þá eigum við gjafabréf fyrir steypu, öllum gólfefnum, gleri, inni- hurðum, ofnum og rörum...“ Karlmenn óskast í sveit En innanstokksmuni, rúm og...? „Nei, við eigum bara skelina. Allt annað vantar. Við höfum verið dugleg í fjáröflun, seldum jólakort fyrir tvær og hálfa milljón, bökuðum níu þúsund smákökur og seldum fimm hundruð krukkur af sultu í Jólaþorpinu í Hafn- arfirði, enda var pottur á eldavélinni hjá mér frá því í ágúst fram í desem- ber! Auk innbúsins vantar enn stein- ull, gifs í veggina og einangrunarplöt- ur í loftið. Við erum þegar komin með 26 iðnaðarmenn á skrá, sem ætla að gefa vinnu sína einn dag hver – en ég auglýsi hér með eftir fleiri karlmönn- um! Iðnaðarmaður óskast í sveit! Hús- ið okkar verður hvíldarreitur fyrir fólk sem tilheyrir aðildarfélögum Öryrkja- bandalagsins; krabbameinssjúkir, blindir, MS-sjúklingar, lungnaveikir, nýrnaveikir, Alzheimer-sjúklingar, fólk með Parkinson-sjúkdóm, flogaveikir, heilaskaðaðir og sykursjúkir munu geta dreift huganum í þessum sælu- reit. Húsið verður sérútbúið þannig að allir geta haldið virðingu sinni og fengið þá aðstoð sem þeir þurfa. Það eru allir með sínar áhyggjur, sorgir og vonbrigði, og þetta fólk vantar stóran faðm. Fólk sem greinist með krabba- mein getur oft á tíðum ekki talað við sína nánustu, því þeir eru lika nið- urbrotnir og hryggir. Það er því með þennan stein í hjartanu ofan á sín veikindi. Við verðum með kvöldvök- ur eins og við höfum alltaf gert og það er varla til sá listamaður á Íslandi sem ekki hefur skemmt hjá okkur á kvöld- vöku og gefið vinnu sína.“ Kolbrún hefur í samtalinu nefnt ótal kraftaverk sem hafa gerst þegar henni finnast allar dyr lokast: árs- hátíðina þegar allir skemmtikraftar heltust úr lestinni á síðustu stundu... „...og ég var að vinna við útstill- ingar í Mjóddinni og ákvað að fá mér matarbita á kaffihúsinu í Nettó. Þar var bara eitt sæti laust, við hliðina á manni sem ég tjáði áhyggjur mín- ar. Hann gaf mér símanúmer hjá konu sem útvegaði skemmtiatriði og veislustjóra á hálftíma!“ ...kraftaverkið þegar hún sat í báti í Ekvador í nóvember, eftir að hafa fengið þær fréttir kvöldið áður en hún hélt í fríið að ekki væri hægt að halda áfram með byggingu hússins að Sólheimum nema hún fyndi byggingaverkfræðing... „...og maðurinn sem settist við hlið mér í bátnum var bygginga- verkfræðingur sem tók að sér verkið í sjálfboðavinnu!“ ...kraftaverkið þegar lyklarnir að gröfunni sem átti að grafa fyrir húsinu voru í Reykjavík... „...en aukalyklarnir voru í bíl kærustu sonar míns sem stóð við sumarbústað á Laugarvatni. Krafta- verk eru alltaf að gerast.“ Og kraftaverkið húsið að Sólheim- um er hún sannfærð um að verði að veruleika í sumar. „Húsið verður einingahús frá SG húsum á Selfossi sem verður reist í apríl og þar sem ég er sannfærð um að iðnaðarmenn muni flykkjast að til að rétta hjálparhönd verður þetta hús vígt fyrr en varir. Bergmál mun örugglega reisa skjöld með nöfnum þeirra sem staðið hafa við bakið á okkur í byggingarmálunum. Þarna verður til dæmis Jónshús, Ólafsvellir – og eins og staðan er núna sé ég ekki betur en þar verði Jóhannesarborg! Lífið hefur verið mér gott og það vil ég launa með því að hjálpa þeim sem hjálpar eru þurfi. Þetta verður hús fyrir langveika Íslendinga.“ Kolbrún kraftaverkakona má ekk- ert vera að því að sitja lengur á bar. Hún er að fara að veita viðtöku pen- ingastyrk til nýja hússins og sækja úr prentun jólakortin sem hún teiknaði fyrir næstu jól. „Maður fær bestu tilboðin í árs- byrjun,“ segir hún glaðhlakkalega. „Nú verður farið að pakka þeim inn áður en ég set upp skotthúfuna í apríl og byrja að betla mat fyrir orlofsvikurnar!“ annakristine@dv.is DV Helgarblað föstudagur 9. febrúar 2007 39 Kollu vantar karlmenn „Ég er sveitastelpa úr Flóanum. Óskaplega mikil sveitakerling og náttúrubarn í eðli mínu og sennilega hefði ekki orðið neitt úr neinu sem ég er að gera nema vegna þess að ég er svo sveitó!“ Draumur rætist „Þess vildi ég óska, Kolbrún mín, að það væri til staður á Íslandi eins og þessi fyrir menn eins og mig og Jón,“ sagði Ólafur heitinn, vinur Kolbrúnar, sem naut dvalar á heilsuhæli í danmörku. Kórnum bergmáli var breytt í líknar- og vinafélag eftir lát Ólafs. Fyrsta skóflustungan rannveig rist tók fyrstu skóflustunguna að húsinu sem allir langveikir munu njóta um ókomin ár. Við hlið hennar stendur Jón Hjörleifur Jónsson, „gamli“ söngstjórinn úr Hlíðardalsskóla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.