Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 40
Menning föstudagur 9. febrúar 200740 Menning DV „Gjörningur Rúríar á Þingvöllum síðastliðið haust er tvímælalaust það sem mér kemur fyrst í hug,“ segir Hlín Agnarsdóttir leikstjóri um listviðburði vetrarins. „Í þeim gjörningi heiðraði Rúrí minningu þeirra átján kvenna sem hlutu þau grimmu örlög að vera drekkt fyrir þær sakir einar að verða þungaðar utan hjónabands. Þess- ir atburðir eru hluti íslenskrar sögu og lýsa vel þeirri grimmd sem að mörgu leyti einkenndi íslenskt rétt- arfar á fyrri öldum og óhugnanlegt til þess að hugsa hve stutt er síðan hér var beitt svipuðum refsingum gagnvart konum og enn er beitt í mörgum íslömskum samfélögum. Áhrifin af gjörningnum voru misk- unnarlaus og raunveruleg í senn, ekki síst vegna umhverfisins, því þetta var frekar napur haustdagur í rammíslenskri náttúru og Rúrí stóð í ísköldum hylnum og dró að landi, með aðstoð kafara, átján strigapoka sem hún hafði sökkt þar kvöldið áður. Þeir voru síðan lagðir á bör- ur og til að undirstrika þá mann- legu grimmd og þann harmleik sem vísað var til voru pokarnir opnað- ir og innhéldu kvenfatnað og skó.” Hlín segist ekki hafa vitað á hverju var von: „En ég dreif mig á Þingvelli og varð vitni að gjörningi sem er löngu tímabær skírskotun til stöðu kvenna í heiminum í dag. Sýning Wuppertal-dansleikhússins undir stjórn Pinu Bausch á verkinu Aqua á stóra sviði Borgarleikhússins í september síðastliðnum er einnig afar eftirminnileg. Pina Baush, sem er frumkvöðull og mikill áhrifavald- ur á dansleikhús í Evrópu, bauð upp á afar skemmtilega sýningu þar sem suðuramerísk tónlist og dansar voru í forgrunni en bakgrunnurinn var vídeóleikmynd sem sýndi Am- azon-svæðið í Brasilíu og gaf sýn- ingunni skemmtilegan blæ. Þessi útfærsla var skemmtileg og áhuga- verð og höfðaði mjög til mín.“ Á kvikmyndahátíð sá Hlín meðal annars sænsku kvikmyndina Fjalla- Eyvind. „Kvikmyndin sem er í leikstjórn Victors Sjöström er frá tíma þöglu kvikmyndanna, frá árinu 1917 nánar tiltekið, og fannst mér mjög vel til fundið að fá Benna Hemm Hemm ásamt stórsveit til að spila undir sýningunni. Það var hlýlegt afturhvarf til liðinnar tíðar.“ Annars er Hlín nýbúin að sjá Börn og Foreldra og finnst Ragnar Bragason leikstjóri eiga mikið hrós skilið. ,,Það er djarft að mínu mati að hafa kvikmyndina svart/hvíta og nýstárlegt að leyfa leikurum að hafa áhrif á framvindu og efnis- tök. Kvikmyndin er gott innlegg í þjóðfélagsumræðuna og vekur upp spurningar sem eiga fullan rétt á sér. Einnig finnst mér ánægjulegt að sjá kvikmynd sem vekur mig til umhugsunar á jákvæðan hátt og ég get notið án áreitis nútímakvik- myndatækni.” „Þótt Flagari í framsókn sé nú- tímaópera er hún ekki þung, því verkið einkennist af léttleika söng- leikjanna án þess þó að glata óp- erustílnum. Það er daðrað við dans í verkinu, en það er ekki síst vegna þess hve tónlistin er rytmísk, og samspil hinna ýmsu stíla nýt- ur sín vel því atburðarásin og fram- vinda verksins er hraðari en tíðkast í óperum,“ segir Hulda Björk Garð- arsdóttir sópran. „Sagan er harmsaga en túlkunin er kómísk og ekki kafað mjög djúpt, en að baki liggur sannleikurinn með öllum sínum þunga. Þetta er ekki bara stórkostlegt sjónarspil heldur er verkið veisla fyrir hvort tveggja augu og eyru. Þess utan er líka boð- skapur í verkinu og þegar upp er staðið situr fólk eftir með spurning- ar og vangaveltur og það er jú það sem fólk vill eftir sýningu. En þótt víða gæti skírskotunar í önnur form er Flagari í framsókn ópera fyrst og fremst,“ segir Hulda Björk. Halldór E. Laxness leikstjóri Flagarans segir verkið skrifað í ný- klassískum stíl. Þetta er eina ópera Stravinskys í fullri lengd og geysi- mikið skemmtiverk, fullt af alls konar skemmtilegheitum og var samin þegar Stravinsky bjó í Banda- ríkjunum. „Formið er klassískt í þremur þáttum og hann nýtir sér Mozart, söngleiki, negrasálma og djass. Í verkinu eru einnig tilvísan- ir í Elvis Presley og Marilyn Mon- roe til að koma temanu til skila, sem er óendanleg óskhyggja mannsins og draumurinn um að vera ríkur, frægur og hamingjusamur. Ég segi stundum að þetta sé ævisaga Elvis Presley, því þar var mikil gleði og glaumur en mikill harmur í lokin,“ segir Halldór Laxness. Óperan frumsýnir í kvöld Flagara í framsókn: alda harmleiksins bærist undir Requiem frumflutt Kammerkórinn Carmina mun flytja Requiem eða Sálumessu eftir spænska endurreisnartónskáldið Tomás Luis de Victoria í fyrsta sinn á Íslandi á tónleikum í Kristskirkju í næsta mánuði. Victoria var fremsta tónskáld Spánverja á 16. öld og sálumessan þykir hans merkasta verk. Hún var samin við andlát Maríu keisaraynju árið 1603, en de Victoria hafði verið hirðtónskáld hennar um áratuga skeið. Sálumessan er samin fyrir sex radda kór og þykir tónlistin sérlega áhrifamikil, enda hefur verkinu verið lýst sem einum af hápunktum endurreisnarinnar. Hlín agnarsdóttir mælir með Mein Kampf eftir george tabori sem sýnt er í borgarleikhúsinu og er sannfærð um að Leg eftir Hugleik dagsson, sem frumsýnt verður í Þjóðleikhúsinu þann 8. mars næstkomandi, verði sýning sem ekki megi missa af. Hlín mælir með Hlín AgnArsdóttir Hefur séð marga listviðburði í vetur og er viss um að margt er þess virði að sjá og heyra. Að venju er fjölbreytt úrval fyrir listunnendur og ljóst er að hver og einn á að finna eitthvað við sitt hæfi. Hlín Agnarsdóttir leikstjóri hefur séð margt og heyrt í vetur. Miskunnarlaus áhrifog í senn raunveruleg ÓPERA stundin að renna upp Hulda björk garðarsdóttir sópran segir flagara í framsókn veislu fyrir augu og eyru. Óperustjóri hættir í vor Bjarni Daníelsson óperustjóri Íslensku óperunnar tilkynnti í vikunni að hann myndi láta af störfum sem óperustjóri þegar núverandi starfsári lýkur, í byrjun júní. Bjarni hefur gegnt starfi óperustjóra frá árinu 1999 og mun hann nú hverfa á vit nýrra verkefna í listinni. Bjarni sagði við vefinn opera.is að sér hafi fundist árin í Óperunni afar skemmtileg, en átta ár í starfi sé mátulega langur tími. Brúðuleikhús í Gerðubergi Leikbrúðuland frumsýnir brúðuleikritið Vináttu í Gerðu- bergi um næstu helgi. Sýn- ingin samanstendur af fjórum ævintýrum, sem öll fjalla um vináttu á sinn hátt. Brúðuleik- ritin fjögur heita Vökudraumur, Regnbogafiskurinn, Risinn eig- ingjarni og Prinsessan og frosk- urinn. Örn Árnason sér um leikstjórn verksins ásamt því að semja vísur og söngtexta. Vin- átta verður sýnd í leikskólum, grunnskólum og sam- komu- húsum um allt land á næstu vik- um. ListiR Kjarvalsstaðir opna Að loknum endurbótum verða Kjarvalsstaðir opnaðir á morgun. ný kaffitería er í miðrými hússins, sem prýdd er húsgögnum Prologuss og guðrúnar lilju gunnlaugsdóttur. Þrjár ólíkar sýningar verða opnaðar af þessu tilefni en allar eiga þær það sameiginlegt að leiðarstef þeirra hvílir á tengslum náttúru og listar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.