Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Qupperneq 42
föstudagur 9. febrúar 200742 Helgarblað DV
Menningarþorp á útsöluverði
„Mér fyndist tilvalið að nota aðstöðuna sem varn-
arliðið skilur eftir sig fyrir til dæmis menntamál. Þar
væri hægt að vera með kennsluaðstöðu fyrir út-
lendinga sem koma til landsins til lengri dvalar.“
TraustiValssonarkitekt
„Ég myndi vilja hafa sem fjölbreyttasta starfsemi þarna með öllu sem lýtur að nýsköpun. Mér skilst
að google og Microsoft séu að koma hingað, þannig að þetta væri fín aðstaða til að koma upp
hugbúnaðarfyrirtækjum, þau gætu meira að segja geymt einkaþoturnar sínar í flugskýlunum.
svo er auðvitað fullt af íbúðum þarna þannig að þetta væri kjörið fyrir skólastarf af einhverju tagi. Ég
held að það ætti líka að virkja íbúana til þess að koma með hugmyndir að skipulagningu og vinna að
öllu sem heitir nýsköpun á sviði atvinnu og menningarlífs. ríkisstjórnin mætti gjarnan setja peninga í
þetta og bjóða fólki ókeypis aðstöðu og smá fjármagn með, samt ekki eins og í byrginu, það verður að
vera eitthvað eftirlit með þessu.“
SigríðurDóraSverrisdóttirmenningarviti
„fyrsta skrefið er að hreinsa svæðið og ég held að
það sé talsverð vinna fyrir hendi í því. annars held ég
að það verði enginn hörgull á fyrirtækjum sem vilja
fara þarna inn, enda mjög stutt í alþjóðaflugvöllinn.
annars eru flest söfn í verulegri klemmu með
geymsluhúsnæði, þarna væri hægt að koma upp
alhliða geymsluaðstöðu fyrir söfn landsins.“
StefánPálsson,sagnfræðingur
ogherstöðvaandstæðingur
„Þetta væri náttúrulega gríð-
arlega flott kvikmyndaver, en
það sem hamlar því er senni-
lega nálægð við flugvöllinn,
þótt það væri vissulega flott.
Það væri líka hægt að skipta
á Keflavík og varnarsvæð-
inu, flytja alla Keflvíkinga yfir
og nota bæinn sjálfan sem
kvikmyndaver. Þar væri hægt
að gera stríðsmyndir og líka
myndir sem gerast í ljótu rúss-
nesku sjávarplássi, Keflavík
minnir dálítið á það.“
SigurjónKjartanssongrínari
„Þetta er ekki fyrrverand varnarsvæði
heldur herstöð. Þarna á að skilja eft-
ir eitthvað lítilræði til minningar um
niðurlægingu íslensku þjóðarinnar.
öllu öðru á að moka burt!“
BirnaÞórðardóttir
herstöðvaandstæðingur
Varnarsvæðið á Miðnesheiði stendur nú autt og yfir-
gefið. Fjölmargar byggingar bíða þess að fá nýtt hlut-
verk og þjóðin veltir vöngum yfir því hvað eigi að gera
við þær. DV spjallaði við nokkra Íslendinga og fékk
þeirra álit á því hvað ætti að gera við varnarsvæðið.