Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Síða 43
„Mér er sagt að það séu ein-
tómir kakkalakkar þarna og
þess vegna sé þetta ekki sér-
lega góð íbúabyggð. Það væri
náttúrulega hægt að breyta
þessu bara í fangelsi fyr-
ir barnaperra, geyma þá alla
þarna á sama stað og búa til
Perrabæ. Mér sýnist vera allt of
mikið af þeim hvort eð er.“
JónasÖrnHelgasonnemi
Menningarþorp á útsöluverði
„Ég vil gera varnarsvæðið að alþjóðlegu
menningarsvæði, eiginlega bara að stóru
menningarþorpi. Þarna er öll aðstaða fyrir hendi,
bíósalir, leikhússalir og ég myndi vilja nota þá
aðstöðu til þess að veita listamönnum góða
þjónustu. Við eigum ekki að flokka svæðið fyrir
ákveðinn hóp heldur að gera það að algjörum
suðupunkti fyrir menningu í mjög breiðum
skilningi. Til þess að verða betra fólk þurfum við að
sinna listunum vel og þarna er upplagt tækifæri til
þess að búa til menningarþorp á heimsmælikvarða,
sem verður sameign allrar þjóðarinnar.“
ÁsaHauksdóttir,hjáHinuhúsinu
„Íbúðirnar á að selja ungu fólki á útsöluverði. Þarna
ætti að reyna að mynda þorp með torgi og tilheyr-
andi. Það reyndar yrði svolítið næðingssamt þar,
þótt kannski væri hægt að finna leið til að koma í
veg fyrir það.“
BryndísSchram
„Við eigum að hugsa stórt og nýta það tækifæri
sem brottför hersins hefur skapað okkur. Við
eigum að nýta aðstöðuna hérna til uppbyggingar
á menntunar- og þekkingarstarfsemi í tengslum
við alþjóðaflugvöllinn. Atvinnulífið, samfélagið
og framtíð okkar liggur í hinu alþjóðlega
þekkingarsamfélagi og þar eigum við að sækja
fram. Keflavík er frábær kostur til þess.“
RunólfurÁgústsson,lögfræðingur
ogfyrrverandirektor
„Ég tel sjálfsagt að nýta þetta fyrir landsmenn í
stað þess að láta bara valta yfir þetta. Það má ým-
islegt gera, bæði í heilbrigðis- og félagslegu til-
liti. Það væri hægt að koma upp einhvers konar
heilbrigðisaðstöðu þarna og svo væri hægt að
byggja upp einhvers konar ferðamannasvæði,
jafnvel minjasafn um herstöðina eða þess háttar.
Það þarf bara að skoða þetta ofan í kjölinn og sjá
hvað er hagkvæmast að gera.“
HalldórHermannssonskipstjóri
fösTudAgur 9. febrúAr 2007 43DV Helgarblað