Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Side 53
DV Helgarblað föstudagur 9. febrúar 2007 53
Lífið eftir vinnu
Föstudagur
Laugardagur
ÚThverfin
Hinn heimsfrægi Sander Klein-
enberg spilar á Broadway á föstu-
dagskvöld og er löngu uppselt í
forsölu á kappann. Íslendingar
hafa verið duglegir við að fá til sín
færustu plötusnúða og tónlistar-
menn heims á sviði danstónlistar
og er Kleinenberg svo sannarlega
í þeim hópi.
Kleinenberg hefur unnið með
stjörnum á borð við Justin nokk-
urn Timberlake og Janet Jack-
son. Auk þess hefur hann verið
verðlaunaður fyrir hæfni sína sem
skífuskankur og This is-kvöldin
sín.
Enn er hægt að nálgast miða
á herlegheitin en miðasalan á
Broadway opnar klukkan 20 í
kvöld og er miðaverðið 3000
krónur. Það eru íslensku plötu-
snúðarnir Exos og DJ Eyvi sem
hita upp. Húsið er opnað klukk-
an 23 og opið til 5.30. Það verður
nýtt hljóðkerfi og nýtt ljósakerfi á
staðnum. Einnig verður sérstök
DVD-sýning á vegum Kleinen-
bergs á fimm tjöldum víðs vegar
um Broadway.
Kleinenberg
á Broadway
SixTieS helgi
Það er stuðbandið og reynslu-
boltarnir í sixties sem sjá um að
halda borgarbúum við efnið um
helgina og leika fyrir dansi bæði
föstudags- og laugardagskvöld á
Kringlukránni.
greifarnir
á PlayerS
Jafnvel þótt greifarnir séu búnir að
fara í klippingu og endurnýja
fataskápinn frá því þessi mynd var
tekin, eru þeir samt funheitir og
troða upp á Players á föstudag. Það
er svo hljómsveitin spútnik sem sér
um laugardaginn.
Blautt malBik á Prikinu
Franz og kristó, betur
þekktir sem Friskó, taka
kvöldið snemma á Prikinu
og spila dúnmjúka tónlist
fyrir gesti. á miðnætti eru
það svo rapphundarnir úr
Blautu malbiki sem mæta
og trylla alla á staðnum.
Dj Daði á Oliver
Daði skífuþeytir kallar ekki
allt ömmu sína og hefur
rotað menn með þéttu
prógrammi á græjunum.
Það verða víst flugfreyjur
sem þjóna til borðs því
heyrst hefur að allt
þotuliðið verði á Oliver á laugardaginn.
Óvænt á Barnum!
Benni B-ruff bókstaflega
kastar skífum á neðri hæðinni
á Barnum. á efri hæðinni er
hins vega óvæntur glaðningur
fyrir gesti og gangandi. Það er
nefnilega leyndó hvað er í gangi á efri
hæðinni. Spennandi.BarcODe á Barnum
Það er Barcode á Barnum í kvöld.
Þeir jónfri, rikki, tryggvi og Óli
Ofur eru algjörlega klár í þetta.
ekki er verra að það er frítt inn.
eintóm gleði á Barnum og allir
velkomnir.
Dj SteF á HveBBanum
Dj Stef er með stærri typpi
en flestir en er þrátt fyrir
það alltaf til í gott teiti.
Heyrst hefur að Stef ætli
að vatnsgreiða afróið um
helgina á Hverfis og
henda sér úr að ofan. ef þú ert ekki að
fíla það geturðu bara verið heima.
velkOmin Heim, anna
loksins er anna rakel mætt
aftur á heimavöllinn og með
Hjalta með sér. anna og Hjalti
hafa verið að spila saman á
vegamótum undanfarið en
spila nú í fyrsta skipti saman á
Prikinu. Það er Dj Peter Parker sem hitar upp
og það er Flashback-kvöld. B-ruFF á kaFFiBarnum
Duglegasti Dj
reykjavíkur býður
djammþyrstum
borgarbúum upp á
fyrsta flokks hip-
hop latte á
kaffibarnum. ef þú
ert ekki að fíla það þarftu ekki
örvænta því Benni er með alls
kyns gúmmulaði í pokahorninu.
Brynjar Og rikki á SÓlOn
Brynjar már mætir aftur
til leiks á laugardaginn og
á hann yfirleitt sín
sterkari kvöld þegar líða
tekur á helgina. ekki
skemmir fyrir að hafa
mann eins og rikka g á neðri hæðinni til
að senda fólkið funheitt upp.
lucky á caFé PariS
Dj ingvar, betur
þekktur sem lucky, sér
um að skemmta
gestum í kvöld. Það
fylgir því engin
óheppni að skella sér á
café Paris og taka þátt
í Soulsugar nights þar á bæ. reggí,
soul og fönk er í hávegum haft.
alFOnS X á kaFFiBarnum
árni e er þekktur sem
alfons X þegar hann lætur
á sig heyrnartólin og
flýgur inn í nóttina. X-
arinn sér um að kokka
fyrsta flokks stemningu
ofan í gesti kaffibarsins á
föstudagskvöld.
HáSkÓlakvölD á PravDa
Háskólanemar taka
kvöldið snemma í kvöld
því það er Háskólakvöld í
boði tuborg á Pravda.
Húsið er opnað klukkan
19 og mun bjórinn flæða
líkt og vín eins og félagarnir í Dumb and
Dumber orðuðu það svo vel.
Dj SmørreBrøD á Oliver
Það verða danskir hattar og
húllumhæ þegar Dj Smørrebrød
hristir upp í lýðnum á Oliver. um
er að ræða eðaltónlistarsmurn-
ingu og ef þú mætir í óþægilegu
skónum skaltu bara dansa á
táslunum.
Brynjar már á SÓlOn
Útvarpsmaðurinn og plötusnúðurinn
Brynjar már er á Sólon um helgina.
Brynjar er ekki bara reynslubolti þegar
kemur að því að þeyta skífum því hann
er líka stuðbolti. Því er stemningin vís.
Börkur á caFé PariS
Það er Börkur úr jagúar
sem sér um soulsugar-
stemninguna á café Paris.
Heyrst hefur að Börkur
spili reggí, soul, fönk og
fyrsta flokks r&b. aldrei
að vita nema hann grípi í
gítarinn og klóri hann aðeins.
kvikinDið á QBar
Dj raggi kvikindi verður
með algjöran skepnuskap
á Qbar á laugardag. Hann
er þó ljúfur inn við beinið
drengurinn og bítur víst
engan. engu að síður er
hann fyrst og fremst stemningskvikindi
og andrúmsloftið eftir því.
anna Brá á QBar
Þokkadísin anna Brá
heldur uppi stemning-
unni á Qbar á föstudags-
kvöld. Hún veit hvað
strákarnir vilja heyra en
spilar það sem stelpurnar
vilja heyra. eimtómt gúmmulaði.