Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Page 54
Fyrstu sýnishornin úr leikn-um God of War II hafa nú litið dagsins ljós en eftirvæntingin hefur verið mikil meðal leikja- unnenda. God of War sem kom út árið 2005 náði gríðarlegum vin- sældum og sópaði að sér verðlaun- um. Hann er jafnan talinn besti has- arleikur sem komið hefur út á PS2. Helstu kostir fyrri leiksins voru virkilega góð grafík, stórbrotið um- hverfi og góður söguþráður en hann gerist í Grikklandi til forna. Líkt og í fyrri leiknum er það hinn illvígi, helmassaði og grjótharði Kratos frá Spörtu sem er söguhetjan. Kratos, sem guðirnir höfðu yfirgefið, vann sér sæti á Ólympsfjallinu sem hinn nýi stríðsguð eftir að hafa sigrað þann fyrri, Ares. En seta hans á topnum var ekki varanleg. Í því sýnishorni sem gefið hefur verið út situr Kratos í hásæti sínu og fylgist með þegar samborgarar hans frá Spörtu leggja undir sig hverja borgina á fætur annarri. Gyðjan Aþ- ena er brjáluð af reiði vegna aðgerða Spartverja og biður Kratos um að binda enda á blóðbaðið. Kratos held- ur nú ekki og ákveður að fara sjálfur til jarðar og taka þátt í brjálæðinu. Kratos, sem er risastór í guðalíki, tek- ur út reiði sína á borginni Rhodes. Gyðjan Aþena er aldeilis ekki ánægð með það og refsar Kratos með því að breyta honum og minnka hann aftur í mannsmynd. Síðan gefur hún risa- vaxinni styttu líf sem Kratos þarf að kljást við. Svona er fyrsta sýnishornið af God of War II en leikurinn sjálfur er settur á 13. mars vestanhafs. Það var ákveð- ið snemma í vinnslu leiksins að ekki yrði beðið eftir PS3 heldur kæmi leik- urinn út á PS2 og sú verður raunin. Allir helstu eiginleikar God of War eru til staðar í framhaldinu og verð- ur spennandi að sjá hvaða nýjungar leikurinn hefur upp á að bjóða í heild sinni. asgeir@dv.is Sú ímynd sem Vesturlönd hafa dregið upp af ninjum er alveg ofsa- lega töff og spennandi. Hins veg- ar eru engar sögubækur sammála þessari ímynd. Ninjan var ekki al- klædd svörtu, ekki svo lævís að það jaðraði við galdra og bardagaíþrótt- in ninjutsu á sér heldur stutta sögu. Ninjur voru morðingjar og dónar. Þess vegna ráðlegg ég engum sagn- fræðingi að spila Shinobido: The Way of the Ninja. Leikmenn stíga inn í sagnaheim ninjunnar, sem þarf að vernda þorp sitt og gildi frá illum lénsherrum sem hafa eigin ninjur á sínum snærum, samúræja og aðra bardagakappa. Leikmenn geta valið á milli persóna, en best er að halda sig við eina, því með hverju verkefni bætir ninjan sig á ýmsum sviðum. Verkefnin eru mjög skemmtileg og verða enn skemmtilegri, því betur sem maður lærir á leikinn. Allt frá því að drepa einhvern einn eða ganga frá heilu hersingunum yfir í mannrán, rán, þjófnað eða skemmdarverk. Það er hrein- lega æðislegt að laumast á húsþaki, narra vörð í burtu með vel heppn- uðu steinvölukasti, læðast inn um bakdyr og snúa þar einhvern jap- anskan herra úr hálslið. Leikur- inn gengur eiginlega allur út á það að læðast og það er frábært. PSP er kjörinn til þess að spila þennan leik og eru stýringarnar þægilegar. Það eina sem ég hef í raun að setja út á Shinobido er það að sum verk- efnin geta verið aðeins of stremb- in og maður-á-mann bardagakerf- ið mætti vera betra. Annars hvet ég alla til að feta veg ninjunnar. Dóri DNA dóri dna segir: & U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s föstudagur 9. febrúar 200754 Helgarblað DV leikirtölvu Dan aykroyD í Ghostbusters-leik Hinn góðkunni og gamalreyndi leikari Dan Aykroyd sagði ný­lega í viðtali að hann myndi ljá væntanlegum Ghostbusters- tölvuleik rödd sína. Aykroyd, sem lék Dr. Raymond Stantz eftir- minnilega í myndunum, sagðist hafa staðfest þátttöku sína en vinnan hæfist ekki fyrr en á næsta ári. Ekki hefur komið fram hvaða fyrirtæki hannar leikinn eða framleiðir en hann mun koma út á Xbox360. syphon filter dark Mirror (PSP) sims 2 Open for business (PC) Chronicles of Narnia (GAMEBOY) shinobido: the way of the ninja (PSP) rogue trooper (Xbox) Kíkið á þessa Lævísi, Lénsherrar og háLsbrot H H H H H Shinobido: The Way of the Ninja PS2 Ævintýra-/ bardagaleikur stríðsGuðinn kratos mættur aftur TölvuleiKur god oF war ii Kemur út 13. mars 2007 TölvuleiKur spilaðu á Gítar á Ds Væntanlegur er gítarleikur á Nintendo DS. Með því að nota snertiskjáinn slær spilandinn á strengi og spilar þannig lag. Strengirnir birtast sem línur á svörtum bakgrunni. Hægt er að spila á allt að 16 strengi í einu en hægt er að velja úr 120 strengjum í leiknum. Einnig fylgja 20 lög leiknum sem hægt er hlusta á og spila eftir. Sýnishorn af leiknum God of War II lofar góðu en hann kemur út 13. mars. Fyrri leikurinn er að jafnaði talinn einn sá besti sem komið hefur út á PS2. Tónlistin úr icon komin út Væntanlegur eru leikurinn def Jam: Icon en það er þriðji leikurinn sem rappútgáfufyrirtækið sendir frá sér í samvinnu við electronic arts. Í leiknum þurfa spilarar að slást við frægustu rappara banda- ríkjanna, til þess auðvitað að stofna eigið útgáfufyrirtæki. Í vikunni gerði def Jam lagalista leiksins opinberan, en hann er með glæstara móti. Á meðal þeirra rappara sem eiga lög í leiknum eru fat Joe, Ludacris, M.O.P, Method Man & redman, Mike Jones, Nas, t.I og fleiri góðir. eru tölvuleikja- og tónlistarunnendur á sama máli og segja að sjaldan ef nokkurn tíma hafi tölvuleikur boðið upp á jafn sterka hljóðrás. Leikurinn kemur út á Xbox360. Glíman kemur á Wii Nú þegar þriðja kynslóð leikjatölva er að stimpla sig inn keppast fyrirtækin um að koma leikjum sínum á 360, Wii eða Ps3. Ljóst er að fjölbragðaglíman fær að fylgja með, en fyrirtækið tHQ hefur tilkynnt að samningar hafi náðst við Nintendo og sony og því séu WWe-leikir væntanlegir á Ps3, Nintendo Wii og Nintendo ds. enn hefur ekki verið tilkynnt hvort leikirnir sem koma út á Nintendo verði undir merkjum smackdown eða raw, en hingað til hefur tHQ skipt glímuleikjum sínum í tvennt með þeim hætti. „Ekki klifra upp tréð, hlauptu upp það,“ er fræg ninja-speki. NINjAN GOH ein af aðalpersónum leiksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.