Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2007, Síða 62
FÖSTUDAGUR 9. FebRúAR62 Helgarblað DV
að lokum
Toppur hverfis
101
Ferska smárétti
að japönskum
hætti úr hrá-
um fiski fæ ég
á Maru í aldna
Ísafoldarhúsinu í
Aðalstræti. Annars
staðar í borginni eru
þeir forsniðnir og geymdir, sigla á
færibandi klukkustundum sam-
an í Iðu. Stílhreinn naumhyggju-
salurinn hefur verið í rúmlega
sex ár í Aðalstræti, síðustu þrjú
árin undir heitinu Maru. Í tilefni
löggildingar sem gamlingja bauð
konan mér á þennan alvörusal
að japönskum hætti. Fyrst miso
sojasúpa, síðan nokkur eintök af
sashimi hráfiski, af sushi (nigiri)
hráfiski á hrísgrjónum og af maki
hrognum í þangrúllum. Þetta er
toppurinn á hverfi 101.
Hláturs er von
Héraðsdómur hefur sýknað
útlending, sem fannst með þýfið
í bíl sömu nótt og innbrotin voru
framin í Reykjavík og
á Selfossi. Mað-
urinn sást líka á
eftirlitsmynd-
um á innbrots-
stað. Á sér hafði
hann uppdrátt
af staðnum. Hann
neitaði hins vegar
öllu, sagðist til dæmis aldrei hafa
komið til Selfoss. Neitaði meira
að segja að gefa upp heimilisfang.
Því virðist löggan ekki hafa vitað,
hver maðurinn var, og ekki getað
leitað heima hjá honum. Það eru
tröllheimskar löggur, sem klúðra
svona einföldu dómsmáli. Maður-
inn er auðvitað enn að hlæja. Að
vísu án herfangsins.
Burt með
krónuna
Við þurfum
fremur að losna
við krónuna en
að fá evruna.
Við tölum stíft
um evru, af því
að mikið af út-
flutningi greiðist í evr-
um. En við þurfum frjálsa notkun
alls gjaldmiðils. Fyrirtæki geta
nú haft bókhald í erlendri mynt
og eiga að greiða starfsmönnum
laun í sömu mynt. Þannig fáum
við kosti traustra gjaldmiðla án
þess að binda okkur við evru. En
stórmarkaðir eiga að taka við evr-
um á daggengi til jafns við krónur.
Smám saman skiljum við, að það
er afnám krónunnar, sem skiptir
mestu. Hagkerfi, sem vill vera ríkt,
notar ekki gjald-
miðil, sem
skekst í and-
vara. Betra
er að hafa
engan.
jonas@hestur.is
veðrið um Helgina ritstjorn@dv.is
Laugardagur
3
5
2
2
5 Sunnudagur
Vetrarkuldi í kjölfar veðurfarsskýrslu
Vill Jónas krónuna burt, ekki
mína einu, takk fyrir!
„Veðurfar og spár um heimshita
næstu öld hafa verið á hvers manns
vörum í vikunni. Það er nokkuð skond-
ið að þessi ágæta skýrsla IPCC um
hlýnun lofthjúps sé í umræðu manna í
millum og í fjölmiðlum á sama tíma og
beggja vegna Atlantshafs er sannkallað
vetrarríki. Fimbulkuldi í Finnlandi og
Quebeq í Kanada og síðan hér á landi
þar sem frostið hefur farið í 20°C inn til
landsins,“ segir Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur.
Um horfurnar segir Einar útlit fyr-
ir ágætasta veður um mest allt land
um helgina.
„Þó mun hvessa af austri með
suðurströndinni og þar er jafnframt
gert ráð fyrir að muni rigna á sunnu-
dag. Svipað verður uppi á teningnum
suðaustanlands og á Austfjörðum.“
Einar segir að vægt frost verði
annars staðar, úrkomulaust og sums
staðar skýjað af háskýjum.
„Í höfuðborginni verður úrkomu-
laust, meinlítið veður og líkast til hiti
rétt ofan frostmarks þegar líður á
helgina. Á Vestfjörðum og vestan til
á Norðurlandi er hins vegar útlit fyrir
að sólin skíni glatt fram á mánudag.
Þar verður því fyrirtaks skíðaveður.
Næsta vika gæti boðið upp á hláku
með rigningu fyrst framan af og síð-
an aftur kólnandi. Sú spá er þó meira
í ætt við getsakir,” segir Einar Svein-
björnsson.
3
0
1
5 6
1
0
3
3 15
1
1
3
3
4
5
5
5 3
8
3
5
5
18
7
8
10
8
15
10
5 5
13
23
...ragnheiði Eiríksdóttur að hafa
verið í hljómsveitinni unun.
Heiða á það sameiginlegt með...
...Jóni Jósepi Snæbjörnssyni að
syngja í Söngvakeppni Sjónvarps-
ins. Jónsi á það sameiginlegt með...
...Birgittu Haukdal að hafa tekið
þátt í Eurovision. Birgitta á það
sameiginlegt með...
...arnari Björnssyni að vera frá
Húsavík. arnar á það sameigin-
legt með...
...Þorkeli Mána Péturssyni að
halda með Leeds. Þorkell Máni á
það sameiginlegt með...
...Ingu Lind Karlsdóttur að búa í
garðabæ. Inga Lind á það
sameiginlegt með...
...Steinunni Camillu að vera með
eldri manni. Steinunn á það
sameiginlegt með...
...Klöru Ósk Elíasdóttur að vera í
stúlknasveitinni nylon. Klara á
það sameiginlegt með...
...dr. gunna að hafa spilað á
tónleikum á Wembley-leikvang-
inum.
Tengsl
dr. gunni
á það sameiginlegt með ...
Hugmyndin kviknaði hjá Guðjóni
Sigurðssyni, formanni MND-félags-
ins, þegar hann hitti mongólskan
MND-sjúkling á ráðstefnu í Japan.
Gríðarlegur skortur er á hjálpar-
tækjum í Mongólíu, en MND-sjúk-
lingar komast illa af án hjálpar-
tækja. „Ég skil varla hvernig þeir fara
að í Mongólíu, þeir hafa fæstir einu
sinni hjólastóla. Með þennan sjúk-
dóm þarf fólk mjög fljótt á hjólastól
að halda,“ segir Kristín Einarsdótt-
ir, yfiriðjuþjálfi á Landspítalanum,
sem hefur liðsinnt Guðjóni við
skipulagninguna. „MND er tauga-
hrörnunarsjúkdómur sem leggst á
hreyfitaugunga og dregur fólk yfir-
leitt til dauða á einu til sex árum. Því
miður er engin lækning til við hon-
um en það eru miklar rannsóknir í
gangi.“
Tollstjórinn í steininn
Gámurinn er á leið út til Mong-
ólíu og kemur til höfuðborgarinnar
Ulan Bataar í byrjun mars. „Við för-
um þangað strax í vikunni á eftir til
að taka úr gámnum og kenna fólki á
hjálpartækin,“ segir Kristín en bætir
við að skipulagningin hafi ekki geng-
ið snurðulaust fyrir sig. „Við þurftum
að vera í sambandi við svissneska
hjálparstofnun til þess að koma
gámnum inn í landið og leysa hann
út úr tollinum. Þetta er allt orðið svo
miklu flóknara á síðustu vikum, eft-
ir að nýr tollstjóri tók við. Þeim síð-
asta var nefnilega stungið inn vegna
spillingar.“ Þá hefur reynst þraut-
in þyngri að fá vegabréfsáritanir og
hefði varla náðst, nema fyrir tilstilli
dyggra bakhjarla.
annað tímaskyn
Samskiptin hafa líka gengið hæg-
ar fyrir sig en Íslendingar eru vanir.
„Við erum svo vön því að það ger-
ist allt helst í gær. Mongólarnir eru
með nettengingu og tölvupóst en
það er meira verið að kíkja á tölvu-
póstinn kannski einu sinni í viku,“
segir Kristín. „Við reynum samt að
passa að missa ekki sjónar á mark-
miðinu, sem er að bæta hag MND-
sjúklinganna. Það hefur líka verið
mjög lærdómsríkt og spennandi að
takast á við þessar óvæntu hindr-
anir og hjálpa til við að byggja upp
heilbrigðisþjónustuna.”
Kristín Einarsdóttir, yfiriðjuþjálfi á Landspítalanum, og Guðjón
Sigurðsson, formaður MND-félagsins, eru að flytja fullan gám af
hjálpartækjum til MND-sjúklinga í Mongólíu. Þörfin er mikil í
Asíulandinu en spilltir tollstjórar og vegabréfavandræði hafa
ekki auðveldað verkið.
„við þurftum að vera í
sambandi við svissneska
hjálparstofnun til þess
að koma gámnum inn í
landið og leysa hann út
úr tollinum.“
Heill GámUR
Senda hjálpartæki til Mongólíu
Gámurinn var sendur af stað í janúar.
Kristín og Guðjón hafa þurft að
yfirvinna ýmsar hindranir til að hann
komist alla leið til mongólíu.
AF HJálpARTæKJUm