Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Blaðsíða 7
„Okkur er ekki einu sinni boðið
neitt í staðinn, bara sagt að við eigum
að pilla okkur í burtu,“ segir Þórður
sem vill ekkert frekar en halda áfram
að hlúa að tónlistarmönnum þjóð-
arinnar með rekstri staðarins. Hing-
að til hefur hann lagt áherslu á djass
og blús. Þórður segir útskriftarnema
FÍH oft haldið þar tónleika og aðr-
ir sem spili ekki endilega popp fyrir
fjöldann.
Framtíðin óráðin
Þórður fundaði með starfsfólki
sínu á Litla ljóta andarunganum í
gær. Hann segir alla starfsmenn hafa
fengið vinnu á ný enda frábært starfs-
fólk á ferð.
„Við erum bara öll á félagsleg-
um bömmer eftir eldsvoðann,“ seg-
ir Þórður að lokum um þá erfiðu
reynslu sem hann og starfsfólk á
öllum stöðunum gengur í gegnum
þessa dagana.
Eldsvoðinn er enn í rannsókn hjá
Lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Þá
má búast við úttekt frá brunamála-
stjóra í byrjun næsta mánaðar.
Samtök atvinnulífsins segja yfirlýs-
ingar þess efnis að fjölgun erlendra
starfsmanna hér á landi undanfar-
in ár hafi leitt til lækkunar launa úr
lausi lofti gripnar. Þess í stað halda
samtökin því fram að laun verka-
fólks, þar sem erlendir starfsmenn
eru hvað fjölmennastir, hafi hækkað
tveimur prósentum meira en með-
altalið. Enn frekar benda samtök-
in á að laun hafi hækkað meira hér
á landi en í nágrannalöndunum.
Þannig hækkuðu laun á almenn-
um vinnumarkaði um 17 prósent að
meðaltali frá upphafi ársins 2005 til
loka ársins 2006 en laun verkafólks
um 19 prósent.
Kristján Gunnarsson, formað-
ur Starfsgreinasambands Íslands, er
ekki hissa á þessum staðhæfingum
Samtaka atvinnulífsins. Hann segir
þetta gamalkunna formúlu frá þeim.
„Í þessum útreikningum á við lög-
málið að hinir ríku verða ríkari og
hinir fátæku fátækari. Ég óttast það
því miður að þeir sem eru neðst í
taxtakerfinu skynji ekki þessa aukn-
ingu og því er myndin villandi. Með-
altalið sýnir ekki ástandið á botn-
unum því það dugar ekki að blanda
einfaldlega saman 100 gráða heitu
vatni og hundrað gráða köldu vatni
og benda á að meðaltalið þar á milli
sé gott,“ segir Kristján.
Augljósir hagsmunir
Magnús Þór Hafsteinsson, vara-
formaður Frjálslynda flokksins, tek-
ur undir og segir ljóst að launaþró-
un erlendra verkamanna hafi ekki
verið í samræmi. Hann telur ekki
eðlilegt að miða við meðaltalsút-
reikninga. „Laun í byggingariðnaði
og verslun og þjónustu hafa ekki
fylgt almennri launaþróun ann-
arra starfstétta. Við höfum verið að
benda á það lengi og þar er kjarni
málsins. Þessar fullyrðingar stang-
ast algjörlega á við allar aðrar töl-
ur sem við höfum séð. Við stöndum
algjörlega við okkar málflutning um
að ákveðnar stéttir hafa orðið eftir í
launaþróuninni,“ segir Magnús Þór.
„Ég átta mig ekki á þeim forsendum
sem þeir styðjast við. Hagsmunir
Samtaka atvinnulífsins eru of aug-
ljósir í því að halda áfram innflutn-
ingi vinnuafls til að tryggja nægj-
anlegt framboð. Þannig ná þeir
að halda niðri launum og berjast
þannig fyrir sínum hagsmunum.
Þeir kokka því upp þær tölur sem
þeim hentar og þetta útspil kemur
mér ekkert á óvart hjá þeim.“
Fagna niðurstöðunni
Guðlaugur Stefánsson, hagfræð-
ingur hjá Samtökum atvinnulífsins,
segir þessar niðurstöður sýna end-
anlega fram á að erlent verkafólk hafi
ekki slæm áhrif á launaþróunina hér
á landi. Hann segir það einfaldlega
bábylju að halda öðru fram.
„Það er einföldun á málinu og
beinlínis rangt að halda því fram
að erlendir starfsmenn haldi laun-
um niðri hér á landi. Í ljósi háværr-
ar umræðu eru niðurstöður okkar
mjög ánægjulegar og sýna að þessi
mál eru í lagi. Vandinn var mun
meiri þegar starfsmannaleigurnar
voru með þessi mál á sinni hendi
og án efa hefur það orðið til mikilla
bóta varðandi jöfnuð starfskjara,“
segir Guðlaugur. „Við fögnum þess-
um niðurstöðum. Um tíma voru
ásakanir um lægri laun vegna er-
lendra verkamanna ekki að ástæðu-
lausu en sú staða hefur breyst. Nú
eru menn ráðnir beint á samning
hjá íslenskum fyrirtækjum. Launin
hér á landi hafa óneitanlega hækk-
að meira en í nágrannalöndun-
um og frá sjónarhóli verkafólksins
er staðan hér betri en víða annars
staðar.“
Gamlir kunningjar
Aðspurður segist Kristján sann-
færður um að fjöldi erlendra verka-
manna hafi það ekki nógu gott hér á
landi. Hann bendir á að fullyrðing-
ar Samtaka atvinnulífsins séu kunn-
uglegar. „Þetta er hluti af varnarbar-
áttunni fyrir því að útlendingar hafi
komið hingað inn á sömu kjörum en
sú barátta er ekki unnin. Því er ekki
að leyna að þeir eru ráðnir inn mjög
neðarlega í taxtakerfinu. Með þessu
er ekki verið að brjóta lög beinlínis
en útlendingarnir eru keyrðir nið-
ur frá markaðslaunakerfinu. Margir
hafa haft það gott en því miður eru
ansi margir sem hafa það skítt, er-
lendir verkamenn eru þar stórt hlut-
fall,“ segir Kristján. „Þessar fullyrð-
ingar samtakanna eru einfaldlega
aðdragandi kjarasamninga. Ég hef
mörgum sinnum séð þessi útspil frá
þeim enda um gamla kunningja að
ræða. Í mínum huga virðist þetta eft-
ir bókinni og baráttan er greinilega
byrjuð.“
DV Fréttir fimmtudagur 26. apríl 2007 7
Formaður Dýraverndarsambands Íslands um fuglaförgun Landbúnaðarstofnunar:
Afskaplega óviðkunnanlegt
Tvö þúsund og fimm hundruð
fuglum var fargað á viðbragðsæf-
ingu Landbúnaðarstofnunar vegna
fuglaflensufaraldurs, sem haldin var
á Selfossi í gær. Sigríður Ásgeirsdótt-
ir, formaður Dýraverndarsambands
Íslands, segir samtökin ekki hrifin af
slíkum aðgerðum.
„Við getum svo sem ekki séð að
þarna hafi verið framin brot á dýra-
verndunarlögum,“ segir Sigríður.
„Þetta virðist allt hafa farið fram með
mannúðlegum hætti, þetta eru fuglar
sem átti að farga og þarna voru bæði
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir og
Sigurður Sigurðarson, sem eru menn
sem við berum virðingu fyrir. Þeir
staðhæfa við okkur að farið hafi verið
að öllum reglum um skjóta og sárs-
aukalausa mannúðlega aflífun. Við
vorum þó ekki á staðnum og lásum
aðeins um málið í fjölmiðlum,“ segir
hún. „Mér finnst þetta óskaplega óvið-
kunnanlegt og þetta kemur við mann á
einhvern hátt. Þetta er mjög undarlegt
mál, þessu er slegið upp í fréttum sem
fjöldamorði á fuglum í æfingaskyni,
það eru skrýtnar æfingar,“ segir hún.
Sigríður gagnrýnir einnig frétta-
flutninginn af æfingunni. „Það sem er
villandi í fréttaflutningnum af atburð-
inum er að fuglarnir voru urðaðir að af-
lífun lokinni. Ef þeir hefðu verið sýktir
af fuglaflensu hefði ekki mátt urða þá,
heldur hefði þeim verið fargað.“
Hún segir förgunina minna að
nokkru leyti á förgun fugla í Fjölskyldu-
og húsdýragarðinum fyrir nokkru. Þar
var hænsnum fargað svo uppi varð fót-
ur og fit. „Þeir höfðu tekið sýni mörg-
um mánuðum áður og hefðu fuglarnir
verið sýktir hefðu þeir fyrir löngu verið
búnir að smita alla í kringum sig og allt
í einu förguðu þeir fuglunum.“
Sigríður Ásgeirsdóttir „mér finnst
þetta óskaplega óviðkunnanlegt og
þetta kemur við mann á einhvern hátt.“
Eðlileg laun Samtök
atvinnulífsins segja laun
erlendra verkamanna
hafa fylgt launaþróun og
gott betur síðustu tvö ár.
Samtök atvinnulífsins benda á að laun erlendra verkamanna hafi hækkað umfram með-
altal síðustu tveggja ára og umfram það sem gerist í nágrannalöndunum. Kristján Gunn-
arsson, formaður Starfsgreinasambandsins, hefur heyrt þessar fullyrðingar áður sem
lið í aðdraganda kjarasamninga.
TrAuSTi hAFSTEinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.isSTARFSFÓLK Í ÓVISSU EN
TROMMUSETTIÐ BJARGAÐIST
Stórbruni pravda, Café rosenberg
og Café Ópera eyðilögðust í
eldsvoðanum. tugir manna misstu
vinnuna í kjölfarið.
Starfsfólk rosenbergs Horfir
vanmáttugt á gamla vinnustaðinn sinn
brenna til kaldra kola.
BARÁTTAN ER BYRJUÐ
Drepnir í æfingaskyni 2.500 fuglum
var fargað á æfingu gegn fuglaflensu.