Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Side 8
fimmtudagur 26. apríl 20078 Fréttir DV
Boris Jeltsín, sem borinn var til grafar
í gær réði árið 1992 til sín fjölda ungra
hagfræðinga til að móta landinu
nýja stefnu sem átti fyrst og fremst
að byggjast á frjálsræði í viðskipt-
um. Í kjölfarið var verðmyndun gefin
frjáls og markaðurinn opnaður fyrir
samkeppni. Rússland hafði búið við
haftabúskap í áratugi og lítil sem eng-
in viðskipti áttu sér stað milli borga,
bæja og svæða. Harðar refsingar lágu
við viðskiptum með gjaldeyri. Frjáls
verðmyndun leiddi til skyndilegrar
verðbólgu sem gagnaðist ekkert hin-
um fátækari og eignalausu, en versl-
unar- og fjármagnseigendur græddu
á tá og fingri. Upphafið gaf strax í
skyn hvað verða vildi með frjálsræð-
ishugsjónum Jeltsíns.
Einkavæðing
Jeltsín trúði á markaðinn og van-
treysti miðstýringu í efnahagsmál-
um sem um árabil hafði haldið rúss-
neska hagkerfinu í heljargreipum.
Óumflýjanlega leiddu hugsjónir
hans til þess að ríkið seldi eigur sínar
til sjálfstæðra atvinnurekenda. Sem
fyrr var hugmyndin góð en fram-
kvæmdin illa skipulögð. Rússland er
auðugt af náttúruauðlindum, land-
svæði er mikið og nægt vinnuafl til
staðar. Við hrun Sovétríkjanna átti
ríkið nokkurn veginn allt sem var
einhvers virði í landinu. Þegar ljóst
var að Jeltsín stefndi að sölu ríkis-
eigna tíndust úlfarnir úr skógunum
og röðuðu sér í kringum forsetahöll-
ina. Sem dæmi þá fór fram uppboð
á vegum ríkisins á Surgutneftegaz
í síberísku borginni Surgut. Valda-
menn á staðnum sáu til þess að þeir
sætu einir til borðs við uppboðið og
var eina flugvelli svæðisins lokað og
öllum vegum sem lágu inn í borgina
sömuleiðis. Nýir eigendur fengu fyr-
irtækið á um milljarði króna, á nú-
virði, undir væntingarverði ríkisins.
Háttsettir flokksmenn í komm-
únistaflokknum breyttust á stuttum
tíma úr skúrkum gamla kerfisins í
viðskiptajöfra nýja kerfisins. Gas-
fyrirtæki, olíufyrirtæki, þungiðnað-
urinn og þjónustufyrirtæki lentu í
höndum á þeim sem þekktu kerfið
áður en það hrundi. Þeir vissu við
hverja átti að tala og hverjum átti að
múta. Mafíur náðu fljótlega undir-
tökunum í viðskiptalífinu og urðu
strax illviðráðanlegar vegna gríð-
arlegra auðæfa sem þeim tókst að
safna á stuttum tíma. Jeltsín hafði
breytt kommúnistum í viðskipta-
jöfra og þar með viðhaldið spillingu
gamla kerfisins. Tími viðskiptabar-
ónanna, ólígarkanna, var hafinn.
Ólígarkarnir
„Rússland er risastór skógarbjörn
sem þér finnst sætur. Þú heldur að
hann sé að leika listir sínar fyrir þig
en í raun er hann að leika sér að þér,“
segir rússneskt orðtak sem gæti lýst
því hvernig ólígarkarnir starfa. Fljót-
lega eftir efnahagsumbætur sínar
áttaði Jeltsín sig á því að ríkið skorti
fjármagn til að halda breytingunum
til streitu án þess að skella skuldinni
á neytendur. Bilið milli ríkra og fá-
tækra jókst hratt og hinir verr settu
sneru sér enn á ný til kommúnista
sem óx fiskur um hrygg á stuttum
tíma. Fyrir forsetakosningarnar árið
1996 stóð Jeltsín frammi fyrir því
að missa völd til kommúnista sem
hefði bundið endi á hinar frjáls-
lyndu efnahagsumbætur sem hann
stóð fyrir. Jeltsín neyddist því til að
snúa sér til ólígarkanna til að fjár-
magna framhald umbótanna gegn
rausnarlegu gjaldi. Jeltsín varð því
strax háður ólígörkunum um lánsfé
og var þeim hægt um vik að aðstoða
manninn sem færði þeim auðæfi á
silfurfati. Ólígarkarnir voru aðallega
bankamenn og lánuðu þeir ríkinu
gríðarlegar fjárhæðir gegn því að
fá hlutafé í olíu- og stáliðnaðinum
í staðinn. Fljótlega sölsuðu banka-
mennirnir undir sig mörg af verð-
mætustu fyrirtækjum landsins og
urðu því eins konar stjórnvald við
hliðina á stjórnvöldum. Í dag eru
mörg af þessum fyrirtækjum meðal
þeirra stærstu í heiminum, sérstak-
lega í ljósi hækkandi verðs á olíu
og gasi á heimsmarkaði og aukinni
orkuþörf Evrópuríkja.
Bankamaðurinn
Khodorkovsky
Mikhail Khodorkovsky fyrr-
verandi eigandi Yukos-olíurisans
og fyrrum ríkasti maður Rússland
hóf feril sinn sem dyggur meðlim-
ur í Kommúnistaflokknum. Árið
1987, fjórum árum fyrir fall Sovét-
ríkjanna, stofnaði hann Menatep-
bankann. Khodorkovsky varð fyrst
ríkur á því að kaupa stóra hluti í
stórum fyrirtækjum fyrir slikk, þeg-
ar einkavæðing Jeltsíns hófst. Síð-
ar keypti hann Yukos fyrir rúm-
lega 22 milljarða króna á núvirði.
Khodorkovsky varð ekki milljarða-
mæringur með heppnina eina að
vopni. Árið 1998 stefndi hann að
því að gera Menatep að einum
Boris Jeltsín keyrði í gegn breytingar á hag-
kerfi Rússlands. Eignir ríkisins voru seldar á
vafasaman hátt til bankajöfra sem nefndir hafa
verið ólígarkar. Fljótlega varð Jeltsín háður
ólígörkunum sem urðu stjórnvald við hlið
stjórnvalda. Jeltsín missti völdin, hinir ríku
urðu ríkari og hinir fátæku fátækari.
Bjó til Billjónamæringana
Boris Jeltsín Efnahagsum-
bætur hans stóðu ekki undir
sér og hann varð háður
billjónamæringunum.
Í upphafi kom í ljós
hvað verða vildi
með frjálsræðishug-
sjónum Jeltsíns.
blaðamaður skrifar: skorri@dv.is
SKorri GíSlaSon
Ólígarkar roman
abramovich og
mikhail Khodorkovski
þekktu Jeltsín vel.
Eftirsjá um helmingur
rússa telur Jeltsín hafa
lagt grunninn að sterkari
efnahag landsins.