Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Page 12
Með nokkrum rétti má segja að með því að létta skattbyrði af fyrirtækjum og efnafólki hafi stjórnar- flokkarnir dregið athygli kjósenda að því að alls ekki er sama hvernig skattkerfið er hugsað eða byggt upp. Á það að hvetja til aukinna fjárfestinga í atvinnulíf- inu? Er því ætlað að jafna kjör? Á það að stuðla að sparnaði? Bæta heilsu almennings? Er ósamþýðan- legt að láta skattkerfið vinna með fátæku og ríku fólki og á sama tíma? Á Norðurlöndum hafa skattar þótt háir bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Íþyngjandi skattar eru jafn- vel taldir hafa stuðlað að fjármagnsflótta úr atvinnu- lífinu. Umfangsmikil félagsleg þjónusta er á sama tíma talin hafa dregið úr hvata til vinnu og framtaks. Lítið af miklu er meira... Er þetta allskostar rétt? Norðurlöndin hafi spjar- að sig vel vegna þess að á löngum tíma hafi þau fjár- fest í mannauðnum; fjárfest í menntun, rannsókn- um, vísindum og öðrum innviðum hins þróaða lýðræðisþjóðfélags. „Þess vegna hefur þeim vegnað vel. Það er ekki þrátt fyrir velferðarríkið heldur bein- línis vegna þess,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson í lesbók Morgunblaðsins 14. apríl. Mona Sahlin, formaður sænska jafn- aðarmannaflokksins, undirstrikaði þetta rækilega í Silfri Egils degi síðar. Það er auðvitað engin ástæða til þess að láta vel- ferðarmálin sitja á hakanum þótt stjórnvöld telji mest um vert að blása lífi í efnahagslífið meðal ann- ars með skattalækkunum. Eitt helsta boðorð nýfrjálshyggjumanna er einmitt skattalækkun. Geir H. Haarde, leiðtogi Sjálfstæðis- flokksins, réttlætti skattalækkunarstefnu í setningar- ræðu á landsfundi flokksins um miðjan mánuðinn. Hann sagði eitthvað á þá leið að allir vissu, að „lítið af miklu væri meira en mikið af engu“. Og svo sam- þykkti flokkurinn að enn skyldi fetuð skattalækkun- arbrautin því þannig stækkuðu auðmennirnir þjóð- arkökuna og mokuðu fé í ríkissjóð. „Lítið af miklu er meira...“ og svo framvegis. Hva... eiga ekki allir báta? Kenneth Rogoff, hagfræðiprófessor við Har- vard-háskóla í Bandaríkjunum, sagði fyrir réttu ári í samtali við þýska tímaritið Spiegel, aldrei hafa ver- ið betra að vera ríkur í Bandaríkjunum en nú. Enda haldi Bush-stjórnin og fylgismenn hennar úr röð- um íhaldsmanna því fram, að með því að ívilna auð- mönnum, til dæmis með lækkun erfðaskatts, megi stækka þjóðarkökuna. Eigendur auðmagns gleðjist og flytji kjarabætur til allra með auknum fjárfesting- um og fjölgun tækifæra á vinnumarkaði. Afl þeirra verði sem aðfall sem lyftir öllum bátum. „Hamfarirnar í New Orleans færðu okkur heim bitran sannleikann um það hvað verður um fátækt fólk. Það á ekki báta. Frekari skattalækkun væri röng meðan ekki er til almennt sjúkratryggingakerfi fyrir börn. Slíkt væri svívirðilegt,“ segir Rogoff. Annar þekktur bandarískur hagfræðingur, Jeffrey Sachs hjá Columbia-háskóla, ritaði grein í Daily �imes fyrir réttu ári og hvatti til þess að betur yrði rannsakað hvað raunverulega kæmi að gagni því þá yrði minna rifist um hagstjórn. Sachs vitnaði í Friedrich von Hay- ek, guðföður frjálshyggjunnar: „Hayek taldi að vax- andi opinber umsvif væru ógnun við sjálft lýðræðið og vísaði Evrópulöndum leið til ánauðar. Engu að síð- ur hafa Norðurlöndin dafnað en ekki liðið fyrir rekstur umfangsmikilla velferðarkerfa, með minni spillingu í opinberri stjórnsýslu og miklu meiri kosningaþátt- töku en gerist í Bandaríkjunum.“ Hva... halli strax á næsta ári? Þetta er stórmerkilegt, vegna þess að bandarísk- ir íhaldsmenn halda fram, að mikil skattheimta, til þess að standa undir ríkisumsvifum, dragi úr skil- virkni hagkerfisins og auki líkur á stjórnunarmis- tökum og spillingu. En spilling og óskilvirkni fylg- ir einnig þjóðum sem lækkað hafa skatta verulega. Guðfinna Bjarnadóttir, frambjóðandi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn, hrópaði til að mynda ekki húrra fyr- ir sóun og óskilvirkni í bandarískri stjórnsýslu í áð- urgreindum útvarpsþætti. Hefur hún þó búið vestra og rekið þar fyrirtæki og ætti að vita hvað hún er að tala um. Sem er algerlega í takt við það sem Sachs hefur um þetta að segja: „Það er kaldhæðnislegt, að í Bandaríkjunum, þar sem lausnir einkamarkaðar- ins eru í fyrirrúmi, er kerfið svo óskilvirkt, að Banda- ríkjamenn greiða 14 prósent af þjóðartekjum sínum til heilbrigðismála en Norðurlöndin aðeins 11 pró- sent... Bandaríkin verja minna til opinberra umsvifa en Norðurlöndin. Skattar hafa einnig lækkað svo mikið að þeir hrökkva ekki lengur fyrir velferðarút- gjöldunum.“ Varla merkir þetta annað en hallarekst- ur á ríkissjóði Bandaríkjanna. Kannast einhver við hneigðirnar og mynstrið? Var einhver að spá halla á ríkissjóði íslenska lýðveldis- ins árið 2008? Verður árið 2008 hægt að greiða tann- lækningar fyrir börn að fullu úr sameiginlegum sjóð- um landsmanna óháð fjárhag og stéttarstöðu? fimmtudagur 26. apríl 200712 Umræða DV Margrét Ómarsdóttir, talsmaður Barnageðs, félags foreldra geð- fatlaðra, er móðir drengs sem um árabil hefur þjáðst af geðröskun. Hún segist fyrir löngu búin að gefast upp á kerfinu. „�il fjölda ára hefur fjölskylda mín verið í gíslingu kerfisins og við höfum staðið í áralangri baráttu við kerfið. Sem betur fer er sonur minn að ná þeim aldri að við erum að losna út úr því. Nýverið höfum við fundið aðra leið til að fá hjálp. Við vorum bara svo heppin að fá undanþágu ann- ars staðar þar sem viðkomandi aðila fannst ástandið einfaldlega óforsvaranlegt,“ segir Margrét í samtali við DV. „Það er bara ekki boðið upp á neinar lausnir. Ótrúlegt er að horfa upp á heilbrigðis- ráðherra lýsa því yfir að allir þeir sem þurfi á hjálp að halda fái hana. Skilaboðin til foreldranna eru líklega þau að hringja þá bara beint í Siv og láta hana standa við orð sín með aðstoðina.“ Þessi orð Margrétar eiga erindi til allra, ekki síst frambjóðenda til Alþingis. Það er ekki með nokkrum hætti að sættast við að þeim sem hafa sóst eftir völdum og fengið, láti ástand einsog Margrét Ómars- dóttir lýsir, viðgangast. Þeir sem hafa kost á að hafna Siv Friðleifs- óttur í komandi kosningum munu væntanlega gera það. Framganga hennar er óásættanleg og ekki er nokkur leið að kalla hana til frekari starfa fyrir fólkið í landinu, allavega ekki veika fólkið. „Margföldunaráhrifin af biðlistum geðdeildarinnar eru gífur- leg. Öll fjölskyldan er undirlögð og það fer hreinlega allt til fjand- ans,“ segir Sveinn Magnússon hjá Geðhjálp. „Einstaklingur, sem var hættulegur sér og öðrum, var lokaður af inni á salerni deildarinn- ar þar sem hættuleg efni var að finna. Erum við að bíða eftir því að fleiri svona dæmi komi upp eða ætlum við að leysa þennan vanda? Við skulum ekkert bíða. Kjósendum ber að leita svara hjá fram- bjóðendum. Vandann verður að leysa. „Móðir, sem ég þekki, hefur lengi þurft að glíma við bæði geðsjúkdóm og krabbamein hjá barni sínu. Um skeið var útlit fyrir rénun beggja sjúkdómanna en krabba- meinið tók sig upp aftur. Þó svo að það sé ljótt að hugsa þannig þá var hún nánast fegin því vegna þess að þá gat hún fengið aðstoð,“ segir Margrét. Heilbrigðisráðherrann, Siv Friðleifsdóttir, er upptekin af innan- flokksátökum þar sem verið er að koma vildarfélögum í Framsókn á bestu básana þar sem óvíst er um áframhaldandi völd flokksins. Á meðan dregur ekki úr vanda þess fólks sem hér hefur verið bent á. Frambjóðendur sem meina eitthvað með brölti sínu verða að lesa DV. Þar birtast sannar sögur af fólki sem eru þolendur aðgerðarleys- is stjórnmálamanna. Sigurjón M. Egilsson Leiðarvísir fyrir frambjóðendur Lyftir aðfallið öllum bátum? Kjallari JóHann Hauksson útvarpsmaður skrifar „Þetta er stórmerkilegt, vegna þess að bandarískir íhaldsmenn halda fram, að mikil skattheimta, til þess að standa undir ríkisum- svifum, dragi úr skilvirkni hag- kerfisins og auki líkur á stjórnun- armistökum og spillingu.“ ÚtgáfuféLag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn Loftsson framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson fuLLtrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir augLýSingaStjóri: auður Húnfjörð Fyrir Íslenskar aðstæður Jakki og buxur með Air-Tex öndun Kr. 19.500 Innifalið! Tvenn nærföt þunn rakadræg og fl ís. Athugið! Einnig fylgja með í kaupunum lúffur, húfa og trefi ll. North Ice Outdoor Finnskur útivistar fatnaður vatnsheldur með Air-Tex öndun. Jakki og buxur. Kr. 17.500,- Léttur og þægilegur fatnaður á frábæru verði. Athugið! Nú fylgja fl íspeysa, fl ísnærföt, húfa, vettlingar og snilldar bakpoki frítt með. Icefinwww.icefi n.is - Nóatúni 17 - 105 RVK. Vertu klár fyrir sumarið með útivistarfatnaði Icefin.indd 1 4/1/07 6:40:19 PM Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.