Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Side 16
fimmtudagur 26. apríl 200716 Sport DV
Joe Cole skoraði eina mark Chelsea sem vann 1-0 sigur á Liverpool í fyrri undanúrslita viðureign liðanna. Það
kemur í ljós í næstu viku hvort liðið kemst áfram en þá verða seinni leikir undanúrslitanna.
Chelsea vann Liverpool 1-0 í gær í fyrri við-
ureign þessara ensku liða í undanúrslitum
Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn fór fram á
Stamford Bridge, heimavelli Chelsea, en síð-
ari leikurinn verður á Anfield næsta þriðju-
dag. Það getur allt gerst í þeim leik og spurn-
ing hversu langt þetta eina mark á heimavelli
mun fleyta Chelsea. Allavega er ljóst að þeir
bláklæddu geta ekki byrjað að fagna strax.
„Ég er ánægður með frammistöðu míns
liðs. Spilamennskan í fyrri hálfleik var til fyrir-
myndar og við fengum fimm eða sex góð færi
til að skora. Seinni hálfleikurinn var öðruvísi.
Liverpool lagði meiri áherslu á sóknina og Petr
(Cech) kom í veg fyrir að þeir jöfnuðu,“ sagði
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, en
hann vildi fá vítaspyrnu þegar knötturinn fór
greinilega í hendi Alvaro Arbeloa snemma í
seinni hálfleik.
„Ég held að enginn geti haldið því fram að
þetta hafi ekki verið vítaspyrna. Þetta er að ger-
ast aftur og aftur í sífellu. Það var gott færi á 2-0
sigri og 2-0 hefði þýtt allt öðruvísi leik. Ég vona
það svo sannarlega að eftir seinni leikinn þurfi
menn ekki að svekkja sig yfir vafasömum dómi
eins og fyrir tveimur árum. Ég ætla að vona það
að við munum gera nóg til að þurfa ekki að
horfa til baka.“
Drogba erfiður
Mourinho segist hafa verið ósáttur við nýt-
ingu sókna í fyrri hálfleik. „Við skoruðum bara
úr færi númer sex. Leikaðferð Liverpool í seinni
hálfleik kom mér ekkert á óvart en þó var erfitt
að verjast henni. Þeir léku upp á langa og háa
bolta á Peter Crouch. Ég reikna með að Liver-
pool hafi trú á því að geta snúið þessum úrslit-
um við. En við höfum frábært varnarlið og erum
með 1-0 forystu. Við skorum venjulega í öllum
okkar leikjum og ef við náum því á Anfield erum
við í góðum málum,“ sagði Mourinho.
Chelsea var öllu sterkara liðið í fyrri hálf-
leik í gær og þar var það Didier Drogba sem
var í aðahlutverki og gerði varnarmönnum
Liverpool lífið leitt. Miðjumenn Liverpool áttu
margar misheppnaðar sendingar snemma í
leiknum og fyrsta hættulega færið kom eftir að
Javier Mascherano gaf á Drogba. En í stað þess
að gefa á Andriy Shevchenko sem var í góðu
hlaupi að marki kaus Drogba að reyna sjálfur
og sóknin rann út í sandinn.
Eftir sjö mínútna leik átti Pepe Reina, mark-
vörður Liverpool, frábæra markvörslu þegar
hann varði skot frá Frank Lampard snilldarlega.
Chelsea hafði völdin á vellinum og það skilaði
marki eftir 29. mínútna leik. Joe Cole var í byrj-
unarliði Chelsea og þakkaði traustið með því
að skora. Ricardo Carvalho átti góða sendingu
úr vörninni á Drogba sem lék á danska varnar-
manninn Daniel Agger áður en hann átti hnit-
miðaða fyrirgjöf á Cole sem sýndi ákveðni og
skoraði af stuttu færi.
Stemningin á Anfield gæti ráðið
úrslitum
Steven Gerrard átti eina færi Liverpool í
fyrri hálfleik þegar hann skallaði yfir markið og
heimamenn verðskuldað með forystuna í hálf-
leik. Craig Bellamy var tekinn af velli í upphafi
seinni hálfleiks sem var skiljanleg ákvörðun
enda hafði hann ekkert sést fram að því. Pet-
er Crouch kom inn sem varamaður og var ekki
búinn að vera lengi inni á vellinum þegar hann
lét Petr Cech taka á honum stóra sínum. Liver-
pool var betra liðið í seinni hálfleik og það fór
um áhorfendur á Stamford Bridge.
Lampard var þó nálægt því að koma Chel-
sea í tveggja marka forystu seint í leiknum þeg-
ar Reina sýndi hve öflugur markvörður hann er
og varði vel. Fleiri urðu mörkin hinsvegar ekki
og spurning hversu langt þetta mark frá Cole
fleytir Chelsea. Segja má að aðeins fyrri hálf-
leikurinn sé búinn og sá síðari verður á Anfield
Road í næstu viku. Liverpool náði ekki útivall-
armarki sem gerir það að verkum að Lundúna-
liðið er óneitanlega í aðeins betri stöðu enda
með magnaða vörn og einn besta markvörð
heims þar fyrir aftan.
„Við lékum einfaldlega illa í fyrri hálfleik.
Chelsea fékk sín færi en það var ekki vegna
þess að þeir voru að spila vel, við vorum að
gefa þeim boltann,“ sagði Rafael Benítez,
þjálfari Liverpool. „Fyrir leikinn ákváðum við
að fara varlega enda vitum við það að þeir
eru hættulegir í skyndisóknum. Í fyrri hálfleik
vorum við þó að taka rangar ákvarðanir og allt
gekk á afturfótunum. Það verður gaman að
leika fyrir framan okkar stuðningsmenn á An-
field. Við erum bjartsýnir því við vitum að við
erum gott lið, getum skorað mörk og getum
unnið Chelsea.“ Rétt eins og Benítez þá hefur
sóknarmaðurinn Dirk Kuyt fulla trú á því að
Liverpool geti náð í úrslitaleik Meistaradeild-
arinnar sem fram fer í Aþenu með því að knýja
fram rétt úrslit á Anfield í næstu viku. „Það er
alveg augljóst að þetta eru ekki úrslitin sem
við vildum. En þessi viðureign er bara hálfn-
uð. Við hefðum viljað ná að stela sigri hérna
eða ná jafntefli en það verður ekki horft til
baka núna. Þetta eru úrslitin sem við þurfum
að yfirvinna,“ sagði Kuyt.
„Við þurfum bara að sjá til þess að við skor-
um fyrstir á Anfield. Stuðningurinn sem við
munum fá þar er einstakur. Evrópukvöld á An-
field eru engu lík. Með þeim stuðningi mun-
um við eiga möguleika á að snúa þessu okkur
í hag.“ elvargeir@dv.is
Naum forysta Chelsea
Stóri og sá litli
peter Crouch gnæfir hér
yfir Claude makelele
Stál í stál
gríðarleg
barátta var í
leiknum í gær
Skrefi á eftir Steven gerrard var slakur í leiknum í
gær og var iðulega skrefi á eftir
Chelsea - Liverpool 1-0
1-0 Joe Cole (29.)