Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Síða 17
DV Sport fimmtudagur 26. apríl 2007 17 ÍÞRÓTTAMOLAR Portsmouth byggir nýjan völl portsmouth hefur gefið út að félagið hyggist byggja nýjan 36 þúsund manna leikvang við hafnarsvæði borgarinnar. Völlurinn á að vera hluti af áætlun að andvirði 80 milljarða króna, en félagið hyggst einnig byggja um 1.500 íbúðir, veitingastaði, bari og útivistar- svæði á svæðinu. Ef áætlanir ganga eftir og leyfi munu framkvæmdir hefjast sumarið 2008 og portsmouth gæti hafið að spila á vellinum árið 2011. ball er allur alan Ball, fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins í knattspyrnu, lést á þriðjudaginn, 61 árs gamall. Ball lék á sínum tíma 72 landsleiki fyrir England og var yngsti leikmaður landsliðsins sem varð heimsmeist- ari árið 1966. Ball kom víða við á 22 ára ferli sínum sem leikmaður en hann lék lengst af með Everton, arsenal og Southampton. Eftir að hafa lagt skóna á hilluna starfaði Ball sem knattspyrnustjóri hjá nokkrum liðum með misgóðum árangri. Banamein hans var hjartaáfall sem hann fékk við að slökkva eld í garðinum sínum. mayweather hefur enga stjórn á sér mikil eftirvænting er fyrir bardaga þeirra Oscars de la Hoya og floyds mayweather sem fram fer 6. maí. mayweather, sem oft er sagður vera besti hnefaleika- maðurinn í dag pund fyrir pund, hefur verið duglegur að tala niður til de la Hoya og meðal annars sagt að hann sé kerling og tík. de la Hoya segir að ummæli mayweathers fari ekki í taugarnar á sér. „fram undan er stærsti bardagi okkar beggja og besti hnefaleika- maðurinn pund fyrir pund hagar sér eins og hann sé bilaður, hann hefur enga stjórn á sér. Ég er atvinnumað- ur, hef verið í þessu í mörg ár, hef boxað marga stóra bardaga og þetta er ekki að virka,“ sagði de la Hoya. styttist í endurkomu owens Svo gæti farið að michael Owen verði í leikmannahóp Newcastle sem mætir reading á útivelli á mánudag- inn. Owen hefur aðeins spilað 29 mínútur frá því að glenn roeder tók við stjórnartaum- unum hjá Newcastle. „Ég er ekki klár á því hvort hann verði tilbúinn á mánudaginn. En ég er mjög ánægður með endurhæfinguna hjá michael,“ sagði roeder. Scott parker er einnig óðum að jafna sig og hann gæti verið klár í slaginn gegn reading. „Ég tek bara einn dag fyrir í einu og er vongóður með mánudaginn,“ sagði parker. vill vera áfram hjá barca Kamerúninn Samuel Eto‘o segist vilja vera hjá Barcelona svo lengi sem stuðningsmenn félagsins vilji hafa hann. Eto‘o hefur verið orðaður við Chelsea, manchester united og arsenal að undanförnu. „Ég mun aðeins fara ef stuðnings- mennirnir segja mér að fara. Ég er með þrjá hópa stuðningsmanna nálægt hjarta mínu. Númer eitt Kamerún, númer tvö mallorca og númer þrjú Barcelona. í dag legg ég mig allan fram fyrir stuðningsmenn Barca,“ sagði Eto‘o. Úrslitakeppni Íslandsmótsins í ís- hokkí lauk með fimmta leik Skauta- félags Reykjavíkur og Skautafélags Akureyrar sem fram fór í Skautahöll- inni í Laugardal í gærkvöld. Leikur var frá upphafi til enda hnífjafn og endaði með framlenginu og víta- keppni en á endanum höfðu Skauta- félagsmenn úr Reykjavík sigur en þeir skoruðu sex mörk gegn fjórum mörkum norðanmanna. Fyrsta lotan var hnífjöfn og spenn- andi þar sem baráttan og marvarsla var í aðalhlutverki. Markverðirnir Birg- ir Örn Sveinsson SR og Ómar Smári Skúlasson SA vörðu eins og berserk- ir og var staðan 0-0 þegar fyrstu lotu lauk. Áfram hélt baráttan og stemm- ingin í húsinu var gríðarleg en um 700 manns sáu leikinn. Gauti Þormóðsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir SR-inga eftir stoð- sendingu frá Todd Simpson þegar skammt var eftir af annari lotu. Lengi vel leit út fyrir að þetta eina mark myndi duga SR-ingum til sigur því það var langt liðið á þriðju og síðustu lotu þegar SA-menn jöfnuðu metin og var þar að verki Jón B. Gíslason eftir stoð- sendingu frá Jóni Inga Hallgrímssyni. Gestirnir létu kné fylgja kviði og strax þremur mínútum síðar bættu SA-menn öðru marki við og var þar að verki Tomas Fiala. Margir héldu að norðanmenn væru að landa Ís- landsmeistaratitlinum. En heimamenn voru staðráðn- ir í að gefast ekkert upp og girtu sig í brók og þrjár mínútur voru eftir að leiknum jafnaði Guðmundur Björg- vinsson metin fyrir SR-inga eftir stoð- sendingu frá Gauta Þormóðssyni og því var staðan 2 -2 þegar venjulegum leiktíma lauk. Það var því gripið til framlenging- ar í tíu mínútur þar sem SR missti tvo leikmenn af velli en stóðu vörn- ina með miklum sóma og gestunum tókst ekki að finna glufur á fámennri vörn heimamanna. Því var gripið til vítakeppni þar sem hvort lið fékk 5 til- raunir. Þar var því gripið til vítakeppni í fyrsta sinn í sögunni. Þar var Birgir Örn Sveinsson hetja SR því hann varði tvö skot gestanna og tryggði sigurinn. Vítakeppnin SR: Gauti Þormóðsson mark Egill Þormóðsson mark Mirek Krivanek varið Petr Krivanek mark Daniel Kolar mark SA: Jón Gíslason mark Rúnar Rúnarsson mark Tomas Fiala varið Björn Már Jakobsson varið Síðasta víti ekki tekið þar sem SR hafði tryggt sér sigurinnn. Helgi Páll Þórisson fyrirliði SR var að vonum kátur eftir leikinn. „Þetta var náttúrulega ótrúlegur leikur og í raun hart í hart. Við náum að knýja fram framlenginu en stóðum vörn- ina rosalega vel þegar við vorum tveimur færri. Þetta var mikil dramantík, fyrsti leikurinn sem vinnst á heimavelli. Þetta var í raun fullkomið einvígi, við vinnum tvo og þeir tvo, úrslita- leikur og vítakeppni í fyrsta sinn. Þetta gerist ekki betra, þetta er gríð- arlega skemmtilegt og ánægjulegt. Fólk var illa haldið í stúkunni af stressi og brjáluð stemming.“ SR varð meistari annað árið í röð með sigrinum en Helgi hefur orðið meistari þrisvar sinnum alls. „Stemmingin er mjög góð, við erum núna að fara í veislu sem held- ur ábyggilega áfram fram á sunnu- dag,“ sagði Hjalti í léttum dúr. benni@dv.is SR og SA léku í gær úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí. Mikill fjöldi fólks fylgdist með leiknum sem endaði í fyrsta sinn í vítakeppni. Þar var það birgir örn sveinsson markvörður SR sem reyndist hetja liðsins því hann varði tvö skot. SR MeiSTARi Í hádRAMATÍSkuM Leik Deildarbikar karla í handbolta hófst í gær. Íslandsmeistarar Vals lenntu í vandræðum með bikarmeistara Stjörnunar. Timburmenn hjá Val Spennufall Valsmanna var greini- lega mikið þegar liðið mætti Stjörn- unni í fyrsta leik liðanna í deildarbik- arnum. Aðeins þrír dagar eru síðan Valur tryggði sér Íslandsmeistaratit- ilinn og voru Valsmenn ekki komnir niður á jörðina eftir fagnaðar lætin á sunnudag. Valsmenn héldu í við Garðbæinga til að byrja með en í stöðunni 9-9 skildu leiðir. Staðan í hálfleik var 11- 16 fyrir gestina úr Garðabæ og þeir unnu að lokum fimm marka sigur 23-27. Í hinum leik kvöldsins mættust HK og Fram. HK lenti í öðru sæti deildarinnar og hafa því heimavallar réttinn á Fram sem lentu í þriðja sæti deildarinnar. Leikurinn var hnífjafn og spennandi allan tíman. Liðin skiptust á að hafa forystuna en mun- urinn var þó aldrei mikill, eitt til tvö mörk. Staðan í leikhléi var 14-14 þar sem HK fékk aukakast undir lokinn og gerðist þá umdeilt atvik. Valdi- mar Þórsson þrumaði þá í andslitið á Brjáni Brjánssyni varnartrölli Fram en fékk ekki gult eða rautt spald, hvað þá tiltal frá dómurum leiksins. Voru Framarar afar ósáttir við Valdi- mar og hans hegðun. Síðari hálfleikur var áfram jafn og spennandi og leikurinn hnífjafn. Það fór svo að lokum að HK silgdi fram- úr undir lokinn og landaði sigri 28- 26. Þeir leiða því einvígið 1-0. Liðin mætast að nýju á morgun en þá verð- ur leikið í Safamýri. benni@dv.is Þrumaði í smettið Valdimar Þórsson þrumaði í andlitið á Brjáni Brjánssyni leikmanni fram úr aukakasti óskar bjarni Óskar Bjarni Óskarsson þrumar hér yfir sínum mönnum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.