Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Qupperneq 20
LífsstíLL Reglulegt nudd Nudd verður aldrei nógsamlega lofað en það er ótrúlegt hversu margir fara aldrei í nudd fyrr en þeir eru orðnir svo stífir af vöðva- bólgu að þeir geta varla keyrt til nuddarans. Betra er að nota nudd sem fyrirbyggjandi aðgerð á stífan háls og aumt bak og heimsækja nuddarann áður en allt fer í óefni. Ég er þessi erlendur! nýiR viniR á netinu Nýr samskiptavefur hefur verið opnaður á slóðinni netvinir.is. Vefurinn er einfaldur í uppbygg- ingu og minnir um margt á gamla Ircið sem margir muna vel eftir. Notendur skrá sig til þátttöku með ósk um eftirlætis viðmælanda, karl eða konu. Á vefnum getur fólk komist í spjallsamband við annað fólk og tekið bæði þátt í einka- spjalli eða hópsamræðum. Þá er líka hægt að blogga, vista myndir og margt fleira á vefnum. Aðstand- endur vefsins hafa einnig í hyggju að helga sér stað á veitingahúsi til að auka félagslegt gildi vefsins. Það er um að gera fyrir þá sem vilja stytta sér stundir með spjalli að kíkja þarna inn. Hjálp við ikea- innRÉttingaRnaR Þótt innréttingarnar frá Ikea séu álitnar afar auðveldar í uppsetn- ingu þá er til sérstakt fyrirtæki sem sérhæfir sig í uppsetningum á þeim. Það heitir Betri híbýli og starfsfólk þess skrúfar bæði innréttingar og fataskápa hratt og fljótt saman. Þar fyrir utan mæla starfsmennirnir einnig fyrir innréttingunum og hjálpa til við val á þeim. Auk þessa er einnig boðið upp á aðra þjónustu á borð við uppsetningu á milliveggjum, parketlögn og milligöngu um útvegun á öðrum iðnaðarmönnum. Einfaldara getur það vart orðið. Alþjóðahúsið hefur sölu á flottum bolum: Alþjóðahúsið mun á morgun, föstudag, hefja sölu á stórskemmtilegum bolum sem vekja eiga fólk til umhugsunar um stöðu innflytjenda á Íslandi. Sölunni verður formlega startað milli kl.17 og 19 á Café Cultura en þá verð- ur einnig tvennutilboð á barnum. Bolirnir, sem eru aðsniðnir og úr góðu efni, fást með fjórum mismunandi áletrunum: „Ég er þetta fólk“, „Ég er vinnuafl“, „Ég er af erlendum uppruna“ og „Ég er þessi Erlendur!“ Hugmyndin er komin frá starfsfólki Alþjóðahússins sem finnst innflytj- endur alltof oft settir undir einn hatt sem „þetta fólk“, þegar staðreyndin er sú að hér býr fólk af 120 þjóðernum sem er svo sannarlega ólíkt innbyrðis. „Við vildum gera eitthvað til að vekja fólk til umhugsunar um þá neikvæðu umræðu sem hefur verið í gangi um innflytjendur og þann neikvæða stimpil sem margir Íslendingar gefa fólki af erlendum uppruna,“ segir Helga Ólafs- dóttir, upplýsingafulltrúi Alþjóðahússins. Hún segir að bolirnir hafi nú þeg- ar vakið mikla athygli því starfsmenn Alþjóðahússins klæddust fyrstu ein- tökunum í síðustu viku á ráðstefnu sem var haldin í Ráðhúsinu og í kjölfar hennar hafa fjölmargar fyrirspurnir borist Alþjóðahúsinu svo starfsfólkið býst við góðri sölu. Einnig hafa verið búin til barmmerki með sömu setning- um sem dreift verður frítt. Þeir sem ekki komast á morgun á sælustundina á Café Cultura geta nálgast bolina seinna í Alþjóðahúsinu, á Kaffi Hljómalind og á Múltí Kúltí við Ingólfsstræti en verðið á þeim er 2.000 krónur. Allir með eitthvAð á prjónunum „Það er mikið verið að prjóna stutt vesti sem eru kringd í hálsin og svo eru skokkar sem ná niður á hné einnig vinsælir en við þá nota þær breið belti,“ segir Auður Kristinsdótt- ir, aðspurð að því hvað konur lands- ins séu helst með á prjónunum þessa stundina. Auður er eigandi heildsöl- unnar Tinnu í Kópavogi sem selur garn til sextíu verslana vítt og breitt um landið og gefur tvisvar á ári út prjónablaðið Ýr og ungbarnablaðið Tinnu. Aldrei hefur verið eins vin- sælt að prjóna og eru prjónaklúbb- ar reknir víða um land. Þannig hef- ur lengi verið rekinn prjónaklúbbur í bókabúðinni Eski á Eskifirði og hvern þriðjudagsmorgun hittast ak- ureyrskar prjónakonur í prjónakaffi í Samkaup úrval í Hrísalundi. Í vet- ur hafa prjónakonur í Reykjavík hist á prjónakvöldum á vegum Heimil- isiðnaðarsambandsins í Iðuhúsinu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar. „Tinna er líka með ókeypis prjóna- klúbb sem fólk skráir sig í á heima- síðunni okkar tinna.is. Í gegnum klúbbinn fá meðlimir reglulega sendar nýjar prjónauppskriftir sem virka mjög hvetjandi á prjónaskap- inn,“ segir Auður. Þegar hún er spurð að því hvaða efni séu vinsælust nefnir hún tvær garntegundir. Annars vegar Alpakka-ull sem kemur úr lama- dýrum í Bólivíu. „Hún er sérlega létt og mjúk um leið og hún er slit- sterk og heldur vel formi.“ Hins veg- ar er það gróft garn sem kallast Easy. „Það er bæði auðvelt og fljótlegt að prjóna úr því en við það eru notað- ir prjónar í stærð 8 til 9,“ segir Auð- ur. Þæfð ull var afar vinsæl í fyrra en að sögn Auðar virðist hún ekki eins mikið í tísku í ár. „Þæfingin er vissu- lega komin til að vera en í stað þess að vera notuð í stærri flíkur er ver- ið að gera meira af smærri hlutum til heimilisins, töskur og aðra fylgi- hluti,“ segir Auður og bætir við að fólk fái útrás fyrir sköpunargáfuna í þæfingunni en mjög auðvelt er að þæfa, það er gert í þvottavél við 40 til 60 gráðu hita . „Meira að segja þótt prjónaskapurinn sé ekki 100% þá samlagast allt og fellur í formfagrar línur,“ segir hún. Aðspurð að því hvort prjónun- um sé ekki pakkað niður með hækk- andi sól segir Auður svo ekki endi- lega vera. Á sumrin sé vinsælt að prjóna á ungviðið því í kringum 15. maí kemur ungbarnablaðið út. „Fólk vill halda í þessa hefð að prjóna á ný- bura. Með því gefur það miklu meira af sér heldur en að hlaupa bara út í næsta stórmarkað og kaupa sængur- gjöf,“ segir Auður að lokum. Flott FyRiR stRákana Við herralínu L´Occitane, hafa nú bæst við fjórar vörutegundir sem eru sérsniðnar að húðgerð karlmanna og allir strákar sem áhuga hafa á því að hugsa vel um útlit sitt ættu að hafa gaman af að prófa. Fyrst ber að telja sápulausan andlistskrúbb, Juniper Bark scrub, sem kemur í veg fyrir inngróin hár og undirbýr húðina fyrir rakstur. Youth concentrate er fyrsta hrukkukremið fyrir herra sem L´Occitane setur á markað en kremið sléttir, stinnir og eykur teygjanleika húðarinnar og gefur henni raka eftir rakstur. Shaving oil er raksturolía sem mýkir húð og brodda og inniheldur vörn sem minnkar roða og pirring. Olían hentar vel á ferðalögum, fyrir flýtirakstur og fyrir nákvæman rakstur eins og hökutopp og barta. Fjórða nýjungin er svo Anti-fatigue gel sem er olíulaust rakagel sem dregur úr sjáanlegum þreytu og streitumerkj- um. Gefur teygjanleika,styrk og vörn. efni og styrkir hana með því að endurbyggja og samræma yfirborð hennar. FImmtudAGur 26. ApríL 200720 Lífstíll DV Gegn neikvæðri umræðu Hér má sjá nokkra starfsmenn Alþjóðahússins íklædda bolunum sem fást með fjórum mismunandi áletrunum sem vonandi vekja fólk til umhugsunar um stöðu innflytjenda á íslandi. Hnésíðir skokkar og stutt vesti eru það sem íslenskar konur eru helst að prjóna þessa dagana að sögn Auðar Kristinsdóttur eiganda prjónavöruverslunarinnar Tinnu. Gott byrjendaverkefni Þessi bolero-jakki er prjónaður úr Easy-garni. Hann er prjónaður frá ermi, yfir bakið og yfir í seinni ermina. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur í gatinu sem þá hefur myndast og kragi og framstykki prjónuð í einu. Stutt vesti vinsæl Vesti sem þetta hafa verið vinsæl verkefni prjónakvenna landsins. Hægt er að nálgast uppskriftina í prjónablaðinu Ýr. Nokkur prjónaráð n Veldu bambusprjóna fyrir hljóðlátari og léttari prjóna- skap. Þeir eru líka umhverf- isvænir. n Slakaðu á við prjónaskap- inn og njóttu þess að prjóna. Röng líkamsbeiting við prjónaskapinn getur valdið vöðvabólgu. n Það er gott fyrir byrjendur að velja gróft garn og breiða prjóna. Árangurinn kemur þá fyrr í ljós. n Ókeypis prjónauppskriftir má fá á heimasíðunum tinna.is, alafoss.is og istex.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.