Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2007, Page 25
Reese Witherspoon Er ósátt við Jake en hún er nýskilin sökum framhjáhalds. DV Sviðsljós fimmtudagur 26. apríl 2007 25 Rappmógúlinn Russell Simm- ons vill banna orðin bitch (tík), ho (hóra) og nigger (niggari) úr öllum rapplögum. Russell er atkvæðamik- il persóna í tónlistarlífi Bandaríkj- anna en hann er stofnandi Def Jam útgáfufyrirtækisins og eigandi fata- merkjanna Baby Phat og Phat Farm. Mikil umræða hefur verið um boð- skap rapptónlistar í Bandaríkjun- um upp á síðkastið og var það sjón- varpskonan Oprah Winfrey sem hóf umræðuna skömmu eftir ómerkileg ummæli sjónvarpsmannsins Don Imus, en í Imus var lýsandi í körfu- boltaleik kvenna og lét þar falla orð, uppfull af kvenfyrirlitningu og for- dómum. Russell segir að rapptónlist í dag sé ritskoðuð að því leyti að mjög dónaleg orð eru tekin úr þeim útgáf- um laga sem hljóma í útvarpi. Hann vill herða reglurnar enn meira og ennfremur fá á hreint hvaða orð það eru sem eru mjög dónaleg. Hingað til hafa orðin ho og bitch ekki ver- ið klippt úr útvarpsútgáfum laga en segir Russell að helst ætti að banna þessi orð algjörlega. „Það sem ég legg til er að þessum orðum verði sleppt alveg. Þetta er fyrsta skrefið í baráttunni. Þetta eru skýr skilaboð til tónlistarmanna um að þeir eigi að vera ábyrgir þjóðfélagsþegnar og fyrirmyndir,“ segir Russell, en engin svör hafa enn borist við óskum hans frá útgefendum. Þó er ekki allir sam- mála Russell og hefur rapparinn T.I, sem var söluhæsti rappari Banda- ríkjanna í fyrra gagnrýnt uppástung- una harðlega. „Ég held að banda- ríska þjóðin ætti að hafa áhyggjur af einhverju öðru en þessu. Ef við vilj- um bæta Bandaríkin, þá verðum við að fjarlægja George Bush úr embætti fyrst og taka svo á hinum vandamál- unum, ekki öfugt,“ segir T.I sem hef- ur ekki farið leynt með álit sitt á for- setanum. Þá segir hann að foreldrar þurfi líka að einbeita sér að uppeldi barna sinna og að þau eigi ekki að skella skuldinni á rapptónlist. „Ég á börn sjálfur og ég er með þeim á hverjum degi. Ef ég gríp þau við að nota þessu dónalegu orð sem heyra meðal annars í textum föður síns, þá skamma ég þau og segi þeim að svona segi maður ekki. Því það er ábyrgð mín sem faðir þeirra. Það er eins og margir foreldrar vilji skella skuldinni á hip-hop og það er rót vandamálsins. Rapptónlist skal ekki verða blóraböggull vanhæfra for- eldra,“ segir hinn málefnanlegi T.I. Rappmógúllinn og milljónamæringurinn Russell Simmons vill banna orðin bitch, ho og nigger úr rapptónlist. Hann segir orðin senda röng skilaboð til barna og unglinga um allan heim og að nú sé kominn tími til að sýna ábyrgð. Rapparinn T.I er honum ekki sammála og segir vanhæfa foreldra vera rót vand- ans og að það eigi ekki að nota rapptónlist sem blóraböggul. Málefnanlegir deila uM ókvæðisorð rapparar RuSSell SImmonS Vill láta banna orðin nigger, ho og bitch úr rapptónlist. RappaRInn T.I Skammar sín eigin börn fyrir að apa upp dónaskapinn í textunum sínum. Reese Witherspoon er sögð hafa varað starfssystir sína Jennifer An- iston við og sagt henni að halda sig fjarri Jake Gyllenhaal eftir að nánar myndir af þeim birtust fyrir stuttu. Reese og Jake hafa verið saman í tvo mánuði og segir vinkona stjörnunn- ar að hún sé brjáluð yfir þeim mynd- um sem birtust af Jake og Jennifer þegar þau voru að kynna hin árlegu GLAAD-fjölmiðlaverðlaun á sunnu- dagin var. Reese skildi nýlega við íslands- vininn Ryan Phillippe sökum fram- hjáhalds og er því mjög viðkvæm fyrir. Myndirnar sína það sem virð- ist þónokkra nánd og ástúð. Jake lék með Jennifer í myndinni The Good Girl og hefur Friends- stjarnan alltaf látið vel að kappan- um. Það spurning hvort að Jenni- fer leiki sama leik og Angelina Jolie lék á hana og steli elskhuga Reese Witherspoon. Reese varar Aniston við Reese Witherspoon er brjáluð eftir að myndir birtust af Jennifer aniston og Jake Gyllenhaal að láta vel hvort að öðru. nei sjáðu! Jake hefur greinilega mikinn áhuga á kjólnum hennar Jennifer. má þetta? Það fer vel á með Jake og Jennifer. meira en vinakoss reese sárnaði mikið við að sjá myndirnar. Svikari fangelsaður Svikahrappurinn sem sveik pen- ing út úr Nicolas Cage hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi. Mað- urinn sem var fornbílasali og tókst að hafa út úr leikaranum tæpar 20 milljónir króna. Svikarinn sem heitir Peter Brotman og er 47 ár var þekkt- ur í þeim geira en missti tökin á fjár- málum sínum og reyndi að svíkja sér leið út úr því. Cage varð fyrir barðinu á Brotman í apríl 2004 þegar hann sá um kaup fyrir hann á þremur Ferr- arium og einni Cobru. Breyta nafni Pax Angelina Jolie og Brad Pitt hafa sótt um að fá að breyta nafni sonar síns Pax, sem Jolie ættleiddi í síð- asta mánuði. Þau vilja fá að breyta eftirnafni hans en hans nýja nafn mun vera Pax Thien Jolie-Pitt. Þá hafa sögusmettur í Hollywood tek- ið fregnunum sem teikn um að allt sé í himnalagi í sambandi þeirra, en sögur um að skötuhjúin væru á barmi sambandsslita hafa verið áberandi í slúðurblöðum. Fær aðstoð frá Jay-Z Söngkonan Amy Winehouse hefur nú fengið aðstoð frá rapp- aranum Jay-Z við að komast inn á Bandaríkjamarkaðinn. Rapparinn segist vera mikill aðdáandi seiðandi söngkonunnar og hafði samband við hana til að leggja undir hana nokkrar ferskar hugmyndir til að breyta laginu Rehab. Að sögn vinar Amy Winehouse trúði hún því varla að Jay-z hefði haft samband við sig með svona flotta útfærslu á laginu hennar. Winehouse hefur nú þegar náð einhverjum árangri á Banda- ríkjamarkaði eftir að platan hennar Back To Black komst í sjöunda sæti á Billboard listanum fyrr á árinu. Mandy Moore Mandy Morre var lítið máluð á góðgerðarsamkomu í febrúar en mætti svo á Brick-verðlaunin fyrir skömmu með þessa smoky- förðun. Beyoncé Knowls Hefur skartað mörgum hár- greiðslum um ævina enda með mikið og fallegt hár. Það deila þó margir um hvort fari henni betur að vera með slétt hár eða krull- urnar góðu. sophia Bush One Tree Hill-stjarnan losaði sig nýlega við hárlengingarnar og klippti á sig topp þegar þáttunum lauk núna í apríl. sarah Jessica parKer Tískugyðjan hefur bæði verið mikið með slegið hár sem og í tagli. Hún er glæsileg í báðum til- vikum, sitt sýnist hverjum hvað. Hvort fer þeiM betur? rihanna Ungstyrnið glæsilega losaði sig nýlega við löngu liðuðu lokkana og splæst í þessar níundaáratugs styttur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.