Fréttatíminn - 03.12.2010, Síða 14
Á
sta Knútsdóttir vinn-
ur sem þroskaþjálfi
og er með einhverfan
dreng í sinni umsjá.
Hún á f jögur börn
og barnabarn. Hún segir að mis-
notkun í æsku af hendi náins fjöl-
skyldumeðlims hafi veitt henni
reynslu af því að standa andspænis
gerandanum og, eins og hún orðar
það, afhenda honum skömmina sem
hann kallaði inn í sál hennar. Ólöf
er gift, tveggja barna móðir. Hún
er doktor í stofnerfðafræði frá há-
skólanum í Björgvin og kennir á
menntaskóla- og háskólastigi. Hún
birti frásögn sína á fréttavefnum
Pressunni síðasta þriðjudag í kjöl-
far þess að fjórar konur höfðu stigið
fram undir nafni og ásakað Gunnar
um ósæmilega hegðun í þeirra garð.
Meðal þeirra eru fyrrum mágkonur
Gunnars, systurnar Sólveig og Sig-
ríður Guðnadætur. Frásögn Ólafar
vakti mikla athygli vegna dagbókar
sem hún geymir um reynslu sína en
það sem færri vita er að áður en hún
ákvað að stíga fram hafði náinn fjöl-
skyldumeðlimur Gunnars samband
við hana.
„Sú vildi ræða við mig áður en ég
hafði hugsað mitt skref í málinu,“
segir hún. Hún hafði þá ekki hitt
konurnar sem stóðu fyrir bréfa-
skriftum til stjórnar Krossins. Í
vitnisburði hennar má lesa: „Áreiti
af Gunnars hálfu hófst þegar ég var
nýorðin fimmtán ára. Ég hafði verið
erlendis þá um sumarið og tekið út
töluverðan þroska þann tíma. Þegar
Gunnar sá mig hafði hann orð á því
hve mikið ég hafði breyst á svo óvið-
eigandi hátt að ég man enn stund
og stað þessa atburðar. [...] Líkam-
legt áreiti af Gunnars hálfu hófst í
upphafi árs 1986, þegar ég var 19
ára og stóð yfir mánuðum saman.
Hann nýtti sér flest þau tækifæri
sem gáfust til að strjúka brjóst mín
og lendar auk þess sem hann kyssti
mig ítrekað á munninn og renndi
fingrum sínum inn undir nærbuxur
mínar. Vilji hans var einbeittur og
hann hagaði sér í samræmi við það.“
Síhringjandi til að stöðva
málið
Sex kvennanna, sem allar voru með-
limir í Krossinum, hittust á fundi á
miðvikudagskvöld ásamt Thelmu
Ásdísardóttur, ráðgjafa á Dreka-
slóð, þjónustumiðstöð fyrir þol-
endur ofbeldis, og Ástu sem hefur
fengið sess sem talskona hópsins.
Sumar sáust þar í fyrsta sinn og Ólöf
segir að hún hafi ekki hitt aðrar í
áraraðir. Konurnar ræddu hvernig
það orsakaðist að þær segðu sögu
sína nú. Þær ræddu líka viðbrögð
Gunnars Þorsteinssonar í fjölmiðl-
um við bréfi með vitnisburði fimm
þeirra, þriggja undir nafni, sem
stjórn Krossins fékk.
„Við ræddum líka hvernig hann
veittist að sumum kvennanna með
ásökunum um að þær hefðu verið
í óreglu. Það átti ekki við rök að
styðjast í öllum tilfellum. En auðvi-
tað eigum við öll okkar fortíð og það
breytir því ekki að þessi brot voru
framin. Þau voru framin áður en
fólk fór í óreglu og því spyr maður
sig hver sé orsökin,“ segir Ásta. „Ég
vona að almenningur sjái í gegn-
um það.“ Konurnar ætla að hittast
áfram einu sinni í viku og segir Ásta
að þær trúi því að fleiri konur bæt-
ist í hópinn. „Í það minnsta þrjár,
sem komust ekki í gær og hafa ekki
komið fram áður, hafa haft sam-
band við okkur og vilja vera með,“
segir hún. „Allar eiga þessar kon-
ur það sammerkt að þær hafa borið
gífurlega sektarkennd og skömm
og í ljós kemur að allar héldu þær
að þær væru sú eina.“
Forsaga málsins er sú að ein
kvennanna sem ekki hafa treyst sér
til að koma fram undir nafni leitaði
með sögu sína til Ástu. „Hún segir
mér að hún viti um aðra konu sem
lent hafi í Gunnari. Ég sagði því við
hana að við skyldum heyra í henni.
Við gerðum okkur grein fyrir því
að þarna úti væru unglingsstúlkur
og ungar konur í hættu. Það er bara
þannig,“ segir hún.
„Við ákváðum að skrifa bréf til
stjórnarinnar, sem ég ritaði og við
sendum á alla stjórnarmeðlimi
Krossins. En áður en það gerðist
lak vitneskjan um bréfið út til barna
Gunnars. Það veit ég að gert var af
velvilja því viðkomandi vildi vara
börnin við og fannst hræðilegt að
þau fengju þetta mál yfir sig,“ segir
Ásta og bætir við að Gunnar hafi
frétt af málinu þar sem hann hafi
verið ásamt eiginkonu sinni í Nor-
egi.
„Þau byrjuðu að hringja í fólk
vegna þess að nöfn þessara þriggja
Borgartúni 29 | S. 585 6500 | www.audur.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
03
08
8
Bókaðu tíma hjá ráðgjöfum
okkar í síma 585-6500
eða á radgjof@audur.is
Er þinn
auður
í góðum
höndum?
Auður býður
trausta og
árangursríka
eignastýringu
Framhald á bls. 16
Óttumst ekki Gunnar í Krossinum
Ólöf Dóra Bartels Jóns-
dóttir (til vinstri) og Ása
Knútsdóttir.
„Við óttumst ekki að
Gunnar í Krossinum
kæri okkur fyrir að stíga
fram og greina frá því
hvernig hann beitti konur
kynferðislegri valdníðslu.
Alls ekki, því geri hann
það er málið komið inn í
dómskerfið og þá getum
við gefið vitnisburð
okkar,“ segja þær Ólöf
Dóra Bartels Jónsdóttir
og Ásta Knútsdóttir. Ólöf
er meðal kvennanna sem
hafa stigið fram og greint
frá reynslu sinni af Gunn-
ari Þorsteinssyni í Kross-
inum, en til Ástu leitaði
sú fyrsta með sögu sína
og boltinn fór að rúlla.
Þær segja Fréttatímanum
sögu sína.
Við höfum birt þessa vitnisburði og jú, það er
sárt, en hann braut á þessum konum og sárs-
aukinn sem börnin hans og barnabörn og hans
nánustu eru að upplifa eru af hans völdum en
ekki vegna þess að konurnar stíga fram.
14 viðtal Helgin 3.-5. desember 2010