Fréttatíminn - 03.12.2010, Síða 26
Þ
etta var alveg með ólíkindum,“
segir Helga Thorberg þar sem
við sitjum á Mímisbar á mánu-
degi, þremur vikum eftir brúð-
kaupið. „Ástæðan fyrir þessum
látum var sú að maðurinn minn, Cesar Za-
pata Garcia, var með 45 daga ferðamanna-
áritun hér og tíminn var að renna út. Ég
hafði rokið út um morguninn til að keyra
til móts við mann frá DHL sem var með þau
skjöl sem vantaði og því vannst enginn tími
til að klæða sig upp. Við fengum leyfi til að
fara til sýslumanns eftir lokun og láta gefa
okkur saman. Þetta var því hippabrúðkaup
og ég er alls ekki hippi! Ég er dama og því
kom ekki annað til greina en að láta blessa
sambandið og halda veislu.“
Ég var skræfa
En aðdragandinn var auðvitað lengri og
nokkuð ævintýralegur. Helga Thorberg,
þekkt leikkona og verslunarmaður
í Reykjavík, garðyrkjufræð-
ingur og gleðipinni, hafði ári áður hugsað
með sér hvort hún vildi virkilega lifa því lífi
að sitja í sófanum sínum og láta lífið renna
fram hjá sér.
„Ég var skræfa,“ segir hún hiklaust. „Ég
hafði verið gift í tuttugu ár, fráskilin í tíu,
og hafði selt íbúð og fyrirtækið mitt korteri
fyrir hrunið 2008. Ástæðan var sú að ég var
í áhugafélagi fólks um verðbréf – Virka fjár-
festa kölluðum við okkur – og við höfðum
skoðað reikninga bankanna um mitt árið og
sáum alveg í hvað stefndi. Verðbólgan var
komin á fullt, gengið var að hrapa, hlutabréf
öll að lækka og skuldastaða bankanna gígan-
tísk. Ég sá fram á að það væri ekki sniðugt
að eiga tvær íbúðir og vera með fyrirtæki og
halda í þetta svartnætti sem var fram und-
an. Ég hafði nokkrum sinnum áður á ævinni
staðið upp úr sófanum og farið nýjar leiðir,
og fannst kjörið að gera það sama í fyrra.“
Helga segist ekki hafa leikið mikið eftir
útskrift frá Leiklistarskólanum og því
hafi hún og Edda Björgvinsdótt-
ir, leikkona og vinkona hennar, ákveðið að
skrifa handrit að barnaþætti. „Við skrifuðum
„Hringekjuna“ fyrir barnatíma og síðar þátt-
inn „Á tali“ sem var sendur út á laugardags-
kvöldum. Sjáðu nú hugmyndaauðgina hjá
Ríkisútvarpinu: Hemmi Gunn byrjaði með
þátt. Hvað hét hann? „Á tali“! Og hvað heitir
þátturinn sem er nú á laugardagskvöldum?
„Hringekjan“! Ég var svo stjórnarmaður í
kvennahúsinu Hlaðvarpanum og þar var ég
með jólamarkað í kjallaranum og lék Grýlu –
gerði allt til að laða fólk að miðborginni. Svo
kom að því að ég gat ekki verið lengur þarna
í kjallaranum og þá vildi svo skemmtilega til
að blómabúðin Blómálfurinn var til sölu. Ég
vissi ekki hvað sneri upp eða niður á blómi
og var hrædd við plöntur, mér fannst mold-
in ógeðsleg og rætur – ohhhh, þær minntu
mig á kóngulær og ég sem hef
alltaf verið með kónguló-
afóbíu á hæsta stigi. En
auðvitað var ég með fólk
í vinnu sem vissi mikið
um blóm og svo lærði ég
á þau smátt og smátt og
fór að flytja inn blóm frá
Hollandi. Ég gleymi því
aldrei þegar kona sem
hafði rekið blómabúð í þrjá-
tíu ár sagði við mig: „Helga,
þú ert hafsjór af fróðleik!“ Ég tók svo garð-
yrkjufræði í fjarnámi við Garðyrkjuskólann í
Hveragerði og er menntaður garðyrkjufræð-
ingur. Ég rak Blómálfinn í fimmtán ár – en
seldi sem sagt rétt fyrir hrun. Næsta árið
gerði ég ekkert af viti, velti bara fyrir mér
hvernig lífi ég vildi lifa. Ég ákvað
Seldi allt korteri fyrir hrun
og fann þeldökka ást
Mánudagur, 8. nóvember 2010. Falleg ljóshærð kona og þeldökkur maður
flýttu sér inn á skrifstofu sýslumannsins í Reykjavík, nokkru eftir lokun. Hún var
ógreidd, klædd í gallabuxur og strigaskó – brúðarklæðnaður Helgu Thorberg
þann daginn. En hún átti eftir að bera brúðarkjólinn síðar – eftir að álfarnir höfðu
skilað honum.
Það er dásamlegt að upplifa
ástina aftur. Þetta er eins og
að fá unglingaveikina aftur,
maður er ýmist á bleiku skýi
eða barmi taugaáfalls.
Lj
ós
m
yn
d
H
ar
i
26 viðtal Helgin 3.-5. desember 2010