Fréttatíminn - 03.12.2010, Síða 34
Besta plötuumslag
ársins
Pólýfónía
Apparat Organ Quartet
„Ógeðslega flott skjaldarmerki, sérstakur
stíll sem er eitthvað svo töff.“ – Elsa María
Ólafsdóttir.
„Pólýfónía Apparats er alveg ofboðslega
skemmtilega innpökkuð, einhvers konar
samruni skjaldarmerkis og tölvuleiks, væri
til í að hafa flennistóra útgáfu uppi á vegg.
Ekkert meira um það að segja.“ – Halldór
Högurður.
„Flottasta umslagið er á plötunni Pólýfónía
með Apparati. Ég hef alltaf fílað þennan
hönnuð. Hann leikur sér að tölvugrafík og
alls konar minnum úr Mario Bros og þvíum-
líku. Alveg frábær og yndisleg hönnum. Og
alveg hrikalega töff. Sigurður Eggertsson
er alveg sér á parti og nýtur þegar alþjóð-
legrar viðurkenningar fyrir hönnun. Það er
ekki tilviljun.“ – Teitur Atlason.
2. sæti
Búum til börn
Moses Hightower
„Samspil titils og myndskreytingar dansar
á einhverri undarlegri og skemmtilegri
línu hvað varðar sakleysi og fegurð, líkt og
titillag plötunnar. Minna er meira og þessi
einfalda útfærsla hittir beint í mark hjá
mér.“ – Elín Ester Magnúsdóttir.
„Svo kjút og viðeigandi. Platan heitir Búum
til börn og framan á er ungt par sem er
án ef að fara að búa til börn :)“ – Elsa María
Ólafsdóttir.
„Virkilega vel heppnað umslag. Lekkerir
litir og laust við alla tilgerð. Umslag sem
kallar á athygli á einstaklega hæverskan
hátt. Óvæntur glaðningur á bakhliðinni,
alltaf gaman að lúmskum eðalhúmor.“ –
Bergþóra Jónsdóttir.
3. sæti
Electric Ladyboy Land
Helgi Valur & The Shemales
„Tilvísun í Sticky fingers en samt svo mikið
Helgi Valur, sem er máske óþekkur en
aldrei vúlgar. Veit ekki hvort maður getur
sagt smekklegt, en ég get sagt vel gert.“ –
Halldór Högurður.
„Nærmynd af níðþröngum gullbuxum
að framanverðu. Hversu spilltara getur
það eiginlega verið? Greinileg vísun í eitt
frægasta umslag sögunnar, Sticky fingers
með Rolling Stones. Einfalt, segir sögu og
grípur mann alveg um leið. Frábær hönnun
byggð á einfaldri hugmynd hjá Jónu Hildi
Sigurðardóttur.“ – Teitur Atlason.
4. sæti Black Box
XIII
„Frábært konsept sem er vel útfært. Með
betri hugmyndum sem ég hef séð nýlega.
Útlit og innihald mynda eina heild sem
býr til dulúðugt andrúmsloft í kringum
útgáfuna. Vinnslan á kóvermyndinni er
stílhrein, töff og viðeigandi. Snilld.“ – Elín
Ester Magnúsdóttir.
5. sæti
Í annan heim
Rökkurró
„Afskaplega fallegt umslag sem rímar vel
við innihaldið. Umslagið er listaverk eitt
og sér. Dökkt og drungalegt, hlaðið þögn
og stillu. Fær mig til að langa til að rýna í
hvert smáatriði og stækka svo upp á vegg.
Eitt fallegasta umslag sem ég hef séð.“ –
Bergþóra Jónsdóttir.
„Hvað er eiginlega langt síðan maður
sá kláf síðast? Þessi „annar heimur“ er
greinilega kláfsferð yfir í heim án farsíma
og mig langar þangað, alla vega yfir helgi
eða svo. Já, ég verð að viðurkenna það, ég
er kláfhundur.“ – Halldór Högurður.
Versta plötuumslag
ársins
Steinn úr djúpinu
Steinn Kárason og gestir
„Allt á sér þetta eflaust sínar ástæður en
brett upp á aðra skálmina, fiðla í sand-
inum, sverð standandi upp úr sandinum
... Vil ég vita ástæðuna? Geggjaðra en
umslagið á „All my friends are dead“ með
Freddie Gage. Þeir sem ekki hafa séð
það umslag ættu að gúggla það.“ – Halldór
Högurður.
„Ha? Ég viðurkenni það hér og nú að ég
skil ekki þetta umslag. Kannski skortir mig
húmorinn til að fatta þetta, eða að einhver
texti á plötunni leysi gátuna. Þetta umslag
vakti athygli mína og undrun, en því miður
ekki forvitni.“ – Elín Ester Magnúsdóttir.
Í síðustu viku fékk Fréttatíminn hóp álitsgjafa
til að velja bestu og verstu bókakápur ársins
og nú er komið að plötuumslögunum. Upp
að vissu marki gilda sömu lögmál um kápur
bóka og umslög á geislaplötum. Einum álits-
gjafanna kom nokkuð á óvart hversu mörg
umslög eru góð í ár og fá áberandi slæm.
„Sum umslögin eru alveg dúndur með fínum
pælingum að baki, full af húmor, dramatík
og vísunum í söguna.“ Þá gildir það sama um
bækur og plötur að það er fyrst og fremst
innihaldið sem fólk er að sækjast eftir en
eitthvað þarf að gera til þess að verkin skeri
sig úr í hillum og rekkum verslana. Og þá eru
umbúðirnar aðalmálið. Helgi Valur og The
Shemales hljóta að teljast eiga umdeildasta
umslagið þetta árið en það kemst bæði á
topp 5 yfir þau bestu og verstu. Sem fyrr er
rétt að hafa í huga að hér er fyrst og fremst
um samkvæmisleik að ræða og áfellisdómar
um umslög þurfa síður en svo að gilda um
innihaldið.
Skjaldar-
merki rennur
saman við
tölvuleik í
besta plötu-
umslaginu
Jólatilboð
100% dúnn
790 grömm dúnfylling
100% bómull
270 þráða Pima bómull
Áður 29.990 kr
Nú 19.990 kr
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Einnig í vef
verslun
www.lindes
ign.is
Ekkert send
ingargjald!
Dásamleg
dúnsæng
Stærð 140x200
Álitsgjafar:
Elsa María Ólafsdóttir verslunarstjóri hjá Eymundsson á Skólavörðustíg
Bergþóra Jónsdóttir nemi á lokaári í grafískri hönnun við LHÍ
Halldór Högurður
Elín Ester Magnúsdóttir umbrotsmaður á Morgunblaðinu
Teitur Atlason bloggari
34 úttekt Helgin 3.-5. desember 2010