Fréttatíminn - 03.12.2010, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 03.12.2010, Blaðsíða 60
60 jólakræsingar Helgin 3.-5. desember 2010 Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson matur@frettatiminn.is Ilmandi jól í bolla Fréttatíminn fékk fjóra sælkera til að dæma jólakaffið í ár. Rúbín Jólakaffi frá Nýju kaffi­ brennslunni Malað, 500 g Ummæli dómnefndar: Mild lykt en flöt. Hálf karakterlaust og flatt kaffi, minnir á gulan Braga hjá ömmu. Það örlar á möndlum og negul og jafnvel lakkrís en eftirbragðið er í beiskara lagi. Hátíðarkaffi frá Te & Kaffi Kaffibaunir, 500 g Ummæli dómnefndar: Pínulítið reykt lykt með jarðartóni, mold og tóbaki. Þó ekki mikil sýra, meira út í beiskt. Gott kvöldkaffi með ágætri fyllingu og votti af dökku súkkulaði. Hátíðarkaffi frá Kaffitári Kaffibaunir, 500 g Ummæli dómnefndar: Lyktar eins og brenndar smákökur. Klárlega sætt með ávexti og súkkulaði. Smá hey- og birkilykt þegar það blotnar og mikil sýra. Mikill karakter í þessu kaffi og bragð af ljósu súkkulaði, nánast mjólkur- eða rjóma- súkkulaði. Ekta kaffi í piparkökugerðina eða með kökum þar sem sýran sker í gegnum allt jukkið. Jólakaffi frá Te og Kaffi Kaffibaunir, 500 g: Ummæli dómnefndar: Þetta er spennandi kaffi, mikið krydd í byrjun og jólalegt. Lyktar af svörtum pipar og pínulítið eins og inni í kartöflu- geymslu. Þetta er kryddaður bolli en samt ekki ágengur. Smakkast eins og óristaðar möndlur, milt og mjúkt, og það örlar á bláberjum og súkkulaði. 55% DómnefnD 75% DómnefnD 80% DómnefnD 70% DómnefnD Þ að er hefð fyrir því að íslensku kaffi­fyrirtækin sendi frá sér til hátíða­brigða nýja kaffiblöndu fulla af jólastemningu ár hvert. Fréttatímanum lék forvitni á að vita hvernig til tókst og fékk við það hjálp fjögurra sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum matar­ og drykkjargerðar. Fólk með bragðlaukana í lagi sem er vant því að smakka á hinum ýmsu kræsingum daginn út og inn. Með hjálp kaffihússins Kaffismiðju Íslands við Kárastíg var sett upp blindsmökk­ un á þeim fjórum tegundum af jólakaffi sem í boði eru þetta árið. Hver bolli var metinn á þremur stigum; fyrst þurrt kaffið út frá lykt af möluðum kaffibaunum, því næst út frá lykt eftir að heitu vatni hafði verið blandað við og loks eftir bragði. Hverjum bolla var gefin einkunn frá einum og upp í tíu. Gunnar Karl Gíslason er annar eigandi og yfirkokkur á hinu frábæra nýnorræna veitingahúsi Dilli í Norræna húsinu. Gunnar Karl hefur staðið við hlóðirnar í sautján ár á öllum helstu veitingahúsum Íslands og fleiri Norðurlanda og er sannkallaður töframaður í matargerð. Hann er í kokkalandsliðinu sem nýverið kom heim af heimsmeistaramótinu í matargerð þar sem Ísland náði frábærum árangri og lenti í sjöunda sæti. Gunnar drekkur helst kaffið sitt vel sterkt og með slettu af mjólk út í. Eirný Ósk Sigurðardóttir er eigandi ljúf- metis- og gúmmelaðiverslunarinnar Búrsins í Nóatúni þar sem hún rekur líka ostaskóla og er, að eigin sögn, allsherjar matar- og hráefnisnörd enda veit hún flestallt það um osta sem vert er að vita. Eirný kom heim til Íslands fyrir þremur árum eftir sautján ára dvöl í Skotlandi þar sem hún rak meðal annars veisluþjónustu og kenndi við kokka- skóla. Eirný drekkur helst kaffið sitt með rjóma og sykri. Sonja Björk Grant er annar eigandi kaffi- hússins Kaffismiðju Íslands við Kárastíg sem opnað var í lok árs 2008. Sonja er húsasmið- ur að mennt en sneri sér alfarið að kaffi fyrir mörgum árum og er einn helsti sérfræðingur Íslendinga í þeim ágæta drykk. Sonja er alþjóðlegur kaffidómari og fer einu sinni til tvisvar í mánuði til útlanda í kaffierindum auk þess sem hún rekur kaffiskóla á milli þess sem hún ristar, malar og hellir upp á fyrir viðskiptavini sína á kaffihúsinu. Sonja drekkur helst espressó og gamla góða uppáhellinginn. Valgeir Valgeirsson er lífefnafræðingur og bruggmeistari í Brugghúsinu Ölvisholti. Valgeir er með mastersgráðu í bruggun frá Skotlandi þar sem hann starfaði í litlu brugg- húsi. Valgeir bruggaði fjórar tegundir af kaffibjór fyrir kaffibarþjónakeppni Norður- landanna í fyrra auk þess sem hann hefur hlotið verðlaun fyrir bjórinn sinn, Lava, sem einmitt var notaður í kaffidrykkinn Lava Java. Valgeir drekkur helst kaffið sitt svart og sterkt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.