Fréttatíminn - 03.12.2010, Síða 65
Gonzalez Byass
Jerez Xeres Sherry
15,5%
Verð fyrir 375 ml 1.998 kr.
Þetta er bragðmikið og dísætt
desertvín framleitt úr þrúgu sem
oft er notuð í sérrí eða Pedro
Ximenez Dulce. Þetta er allt annars
konar vín en hin
sætvínin hér, sem
öll eru framleidd
úr hvítvíns
þrúgum. Það er
kaffilitað, þungt
og með sterku
rúsínu og fíkju
bragði og miklu
eftirbragði. Ekta
piparkökuvín
og gott með
sætum
kökum
og fullri
skál af
möndlum
og hnetum.
jólakræsingar 65Helgin 3.5. desember 2010
Teitur Jónasson og Kristinn Grétarsson
matur@frettatiminn.is
Nú þegar hátíð-
arnar nálgast
og margir gefa
sér meiri tíma
við matargerð
er vissulega til-
efni til að íhuga
þessi vín því sum
þeirra eru vægast
sagt meiriháttar.
Ekki spillir heldur
fyrir að sum
þeirra smellpassa
við hinar ýmsu
kökur og eru frá-
bær með ís, sér í
lagi möndluís, og
geta verið frábær
með mygluost-
um.
Bragðbætt biscotti er frábært með kaffi og sætum
vínum í eftirmat. Nafnið er dregið af biscoctus sem þýðir
tvíbaka. Ítalir voru iðnir við að baka slíkt brauð þar sem
það geymdist vel og var afar vinsælt á tímum Rómaveldis
í nestistösku hermanna. Þetta tvíbakaða brauð er afar
einfalt að búa til. Hér er uppskrift með jólalegu ívafi:
Ítalskar biscotti tvíbökur
2/3 bolli sykur
2 stór egg
1 tsk. vanilludropar
1 tsk. lyftiduft (baking
powder)
¼ tsk. salt
1¾ bolli hveiti
½ bolli pistasíuhnetur
½ bolli trönuber
(cranberries)
Hitið ofninn í 175 gráður.
Þeytið eggin og sykurinn
saman þar til þau verða
létt og ljósgul, ca 5 mín.,
bætið vanilludropum í.
Blandið þurrefnum saman
og hrærið saman við
deigið. Bætið þar næst
hnetunum og berjunum út
í og blandið saman.
Setjið á bökunarplötu og
formið hleif sem er ca 30
cm langur og 8 cm breiður.
Bakið í 25 mín. Takið úr
ofninum og látið standa í
10 mín., lækkið ofnhitann í
165 gráður.
Skerið brauðið í
sneiðar sem eru
ca 2 cm þykkar og
leggið sneiðarnar
aftur á plötuna.
Bakið í 10 mín. Snúið
sneiðunum og bakið í
aðrar 10 mínútur.
Látið kólna og geymið á
þurrum stað. Dugar í 1620
sneiðar.
Það er tilvalið að breyta
til og bragðbæta með því
sem manni þykir best, t.d.
pecanhnetum, súkkulaði,
rús
ínum
eða öðru góðgæti. Þar
sem jólin nálgast er einnig
tilvalið að dýfa sneiðunum
í bráðið súkkulaði.