Fréttatíminn - 03.12.2010, Blaðsíða 86

Fréttatíminn - 03.12.2010, Blaðsíða 86
86 dægurmál Helgin 3.-5. desember 2010 Minnum á teiknisamkeppni Skólamjólkurdagsins fyrir 4. bekkinga Hægt er að skila inn myndum fram að jólafríi til Mjólkursamsölunnar, Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík. Nánari upplýsingar á www.ms.is Mjólk er góð! É g hef starfað á Indlandi og ferðast mikið um landið og ákvað að senda Rikku til þess að skoða þetta heillandi land í bók númer tvö,“ segir Hendrikka en í fyrstu bókinni kynnti Rikka Ísland fyrir ungum lesendum. Rikka á töfrahring sem hún notar til þess að ferðast í tíma og rúmi þannig að hana munar lítið um að skjót- ast af hálendi Íslands til Indlands. Á Indlandi hittir Rikka vin sinn Rahul sem fer með hana í spennandi ferð um landið og sýnir henni fallega og fram- andi staði. Þau koma við í Delí, Goa, Kasmír, Bombay og öllum þessum helstu stöðum á Indlandi og þar kynnist Rikka menningunni, matnum og sér alls konar fallegar hallir, meðal annars Taj Mahal. Bókin er því mjög fræðandi, bæði sögulega og landfræðilega.“ Hendrikka er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í alþjóðlegum við- skiptum og hefur búið og starfað víða um heim, þar á meðal á Indlandi, í Japan, Rússlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem hún býr núna og unir hag sínum vel í sveitinni. „Ég hef búið og starfað mjög víða og mig langar að kynna löndin, sögu þeirra og menn- ingu, fyrir börnunum.“ Hendrikka hefur búið erlendis síðast- liðin sautján ár og segist aðspurð ekki sakna þess sérstaklega að búa á Íslandi. „Nei, ekki þannig. Stórfjölskyldan er auðvitað hérna og ég sakna mömmu og pabba en ég er hérna oft og nú til dags skiptir ekki öllu hvar maður býr. Heimurinn er orðinn svo lítill.“ Hendrikka segir ævintýrum Rikku hvergi nærri lokið og hún er nú þegar byrjuð á tveimur nýjum bókum en vill ekkert gefa upp um hvert töfrahring- urinn leiðir Rikku næst. „Það verður bara að koma í ljós en ég ætla að gefa þessar tvær bækur út á næsta ári,“ segir Hendrikka sem gefur höfundar- laun sín til góðra málefna sem varða börn. „Ritlaunin fyrir fyrstu bókina gef ég Reykjadal, sem er dvalarheimili fyrir fötluð börn, en ég á eftir að ákveða hvert launin fyrir Rikku og töfrahring- inn á Indlandi renna. En ég læt þetta alltaf ganga til góðra mála.“  hendrika Waage: Sendir ferðalanginn rikku til indlandS  þórdíS JóhannSdóttir hefur þróað alíSlenSkt barnamauk áSamt vinkonu Sinni Styðst við eigið heimshornaflakk Hendrikka Waage, skartgripahönnuður og rithöfundur með meiru, er í ör- stuttri heimsókn á Íslandi þessa dagana til þess að fylgja úr hlaði nýju barna- bókinni sinni, Rikka og töfrahringurinn á Indlandi. Bókin er sjálfstætt fram- hald af Rikka og töfrahringurinn á Íslandi sem kom út ekki alls fyrir löngu. þ órdís Jóhannsdóttir og vinkona hennar Guðrún Stefánsdóttir dóttir hafa unnið að þróun á alíslensku mauki fyrir ung- börn um nokkurt skeið. Þær leggja fyrst og fremst áherslu á hollt íslenskt hráefni og af- urðin er væntanleg í verslanir strax eftir helgi undir nafninu Kátir kroppar. Þórdís segir að hugmyndin hafi kviknað í símtali milli þeirra vinkvenna. Hún sat þá á veitingastað og var á kafi í nýsköpunarpæling- um í tengslum við meistaraverkefni sitt í verk- fræði en Guðrún, sem er hjúkrunarfræðingur, var heima að gefa barninu sínu að borða. „Við eigum báðar tvö börn hvor og höfum lagt mikla áherslu á að útbúa hollan og góðan mat handa þeim. Í framhaldi af því fengum við þá hugmynd að flytja þessa viðleitni okkar út fyrir veggi heimilisins með því að framleiða hollt mauk. Það varð svo úr að ég fékk gerð við- skiptaáætlunar og markaðssetningar vörunnar viðurkennda sem lokaverkefni í verkfærðinni og nú styttist í að maukið komi í hillur versl- ana,“ segir Þórdís. Markmið Þórdísar og Guðrúnar er tvíþætt; annars vegar að tryggja komandi kynslóðum besta hráefni sem völ er á í barnamat og að hægt verði að nálgast slíkan mat allan ársins hring, og hins vegar að efla íslenskt atvinnu- líf. „Ef þetta gengur vel skapast ýmis störf við framleiðsluna og bændurnir okkar fá tilefni til að rækta enn meira.“ Vinkonurnar leggja mikið upp úr því að allt hráefni í mauk Kátra kroppa sé íslenskt og þrátt fyrir miklar gæðakröfur segir Þórdís þær geta boðið íslenska maukið á verði sem sé vel samkeppnisfært við innflutt ungbarnamauk. Maukið er fryst sem er heppilegra en niður- suða þeagr kemur að ferskleika og varðveislu næringarefna. „Það eru engin aukefni í mauk- inu og við ætlum að fara af stað með fjórar tegundir til að byrja með og notum gulrætur, rófur, spergilkál, blómkál og steinselju.“ Íslenskt grænmeti maukað ofan í káta kroppa Nærri lá að einn hinna tilnefndu höfunda til Íslensku bók- menntaverðlaunanna í flokki fagurbókmennta fengi ekki að vita um heiðurinn fyrr en formlegri og hátíðlegri tilkynningu var lokið. Ekki náðist í Sigurð Guð- mundsson, myndlistarmann og höfund skáldverksins Dýrin í Saigon, hvernig sem reynt var í síma og með tölvupósti fyrr en á síðustu stundu. Þá kom í ljós að hann hafði lent í hrakningum á leiðinni frá Hollandi til Kína. Flugvél hans hafði þurft að nauðlenda í Kasakstan og eftir 48 klukkustunda vosbúð í háloftunum og á jörðu niðri komst Sigurður loks til konu sinnar í Kína og frétti þá af tilnefningunni. Enginn tími var þá til að komast heim til Íslands svo að hann sendi Sólveigu Birnu dóttur sína til að taka á móti viðurkenningunni. Sjálfur kemur hann væntanlega heim í janúar í tengslum við viðamikla sýningu á verkum hans í Kaupmannahöfn. Nauðlenti utan þjónustusvæðis í Kasakstan Stuðmaður í stað Jóns Ásgeirs Fjölmiðlafyrirtækið 365 miðlar hélt starfsfólki sínu jólahlaðborð í Vodafone- höllinni á föstudaginn í síðustu viku. Eigandi fyrirtækisins, Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir, heiðraði samkomuna með nærveru sinni en athygli vakti að Jakob Frímann Magnússon var borðherra hennar en ekki eiginmaður- inn, Jón Ásgeir Jóhannes- son. Stuðmaðurinn Jakob gekk vasklega til verks við hlaðborðið en hljóp þó ekki lengi í skarðið fyrir Jón Ásgeir sem mætti á svæðið þegar líða tók á kvöldið. Bjarni málar með geðlækni Bjarni Bernharður Bjarnason er eitt afkastamesta ljóðskáld síðari ára á Íslandi. Hann sendir alla jafna ekki frá sér færri en eina ljóðabók á ári og stendur sjálfur í ströngu við markaðssetninguna og oft má ganga að honum vísum í Austurstræti þar sem hann selur bækur sínar. Bjarni er einnig liðtækur listmálari og nú herma fregnir að á næstunni ætli hann að hvíla sig á ljóðum og einbeita sér að málningu og striga. Hann hefur fengið Magnús Skúlason, fyrrverandi geðlækni á Sogni, til liðs við sig en þeir félagar ætla að sinna myndlistinni í sameiningu. Ég hef búið og starfað mjög víða og mig lang- ar að kynna löndin, sögu þeirra og menningu, fyrir börn- unum. Hendrikka Waage hefur búið víða um lönd á síðustu 17 árum og notar nú upplifun sína af Indlandi í aðra barnabókina um ferðalanginn Rikku. Ljósmynd/Hari. Maukið mun fást í Fjarðarkaupum og víðar strax eftir helgi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.