Læknablaðið - 15.03.1983, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ 69,65-93,1983
65
1. FORMÁLI
1.1. Rit petta fjallar einkum um forsendur fyrir
gagnasöfnun þeirri, sem gerð hefur verið á
Röntgendeild Borgarspítalans, markmið
hennar, forskriftargerð og nokkrar lýsingar á
nothæfum niðurstöðum starfseminnar, á sviði
stjórnunar og læknisfræði. Pað skiptist í prjá
hluta:
A. Fræðilegt yfirlit yfir upplýsingakerfi og
kerfisgreiningu og um upplýsingakerfi
röntgengreininga (3. og 4. kafli).
B. Lýsing skráningarkerfis fyrir röntgenrann-
sóknir (5. og 6. kafli).
C. Samantekt nokkurra tímaritsgreina, sem
lýsa notkun skráningarkerfisins við eftirleit
(retrieval) vinnuálagsathuganir og efnisúr-
töku til rannsókna (7. kafli).
1.2. Eins og síðar verður gerð grein fyrir, (í 5.
kafla), hóf Röntgendeildin fyrst deilda starf-
semi sína í nýju húsnæði Borgarspítalans árið
1966. Var pá ákveðið að gera tilraun til pess
að beita nýjum aðferðum við starfsskipan,
gagnasöfnun og skýrslugerð. Var söfnun og
skráningu gagna hagað pannig, að pau væru
nothæf til gerðar forskrifta og vinnuferla fyrir
tölvur.
1.3. Átta árum síðar tók til starfa í Borgarspít-
alanum sérstök tölvudeild. Tilgangur hennar
er að vinna úr hvers konar gögnum og efniviði
á sviði stjórnunar, rekstrar og læknisfræði,
sem til falla við sjúkrahúsið og undirbúa
tengingu peirra gagna, eftir pví sem við á, við
læknisfræðilegan gagnabanka fyrir allt landið.
í tilefni pessara tímamóta pótti mér rétt að
taka saman nokkurt yfirlit yfir söfnun og
tölvuúrvinnslu gagna við Röntgendeild Borg-
arspítalans og á öndverðu ári 1975 lauk ég að
mestu frágangi á handriti að riti pví, sem hér
birtist. Akvikin höguðu pví svo, að nokkur tími
leið, áður en tímabært pætti að gefa pað út.
1.4. Á pessum tíma var hér talsverð umræða
um læknisfræðilegan gagnabanka (National
Health Data Bank). Voru gerðar forkannanir á
pví máli af heilbrigðisyfirvöldum í samvinnu
við WHO og UNDP.
Að mörgu leyti er aðstaða hérlendis mun
betri til að hafa raunhæf not af læknisfræði-
legum gagnabanka en víða annars staðar. Má
par nefna mannfæð, mjög gott pjóðskrárkerfi
og ekki sízt tiltölulega greið stjórnsýslu-
sambönd, sem aftur eiga rætur að rekja til
smæðar pjóðfélagsins. Pað er pví hald margra,
er um pessi mál hafa hugsað, að hérlendis séu
að mörgu leyti einkar góðar forsendur til
ýmissa forrannsókna og tilrauna, er koma
megi almennri pekkingu um læknisfræðilega
gagnabanka að notum. Niðurstöður fyrr-
greindrar forkönnunar munu hins vegar hafa
orðið pær, að á peim tíma væri ekki hag-
kvæmt að leggja út í svo stórt verkefni, sem
tölvuskráning allra íslendinga í læknisfræði-
legum upplýsingabanka er.
1..5. En afturkippur varð einnig í verkefnum,
sem minni eru í sniðum. Óleyst verkefni og
fjársvelti sjúkrahúsanna, hér í Reykjavík og
annars staðar, hefur valdið pví, að hagnýting
tölvutækni fyrir rekstur deilda og við ýmsar
úrlausnir, bæði hagrænar og læknisfræðilegar,
hefur orðið mun hægari, en margur hefur
kosið. Er hér átt við próun sérstakra verkefna
fyrir einstakar deildir eða skipulagsheildir
(Dedicated Computer Programs).
1.6. Skipulag pað, sem hér er lýst, var upphaf-
lega hannað með pað fyrir augum, að pað yrði
grunnur að samhæfðu »röntgengreiningar-
kerfi«, fyrir allar sérhæfðar deildir hérlendis.
Breytingarogpróuníverksviðumröntgengrein-
ingardeildar með tilkomu nýrrar tækni og
myndgerðarkerfa breyta engu í peirri grund-
vallandi aðför að myndgreiningu og sjúk-
dómsgreiningu, sem hér er beitt. Prátt fyrir
geysilegar tækniframfarir tel ég, að kerfisgrein-
ingargildi pessa rits hafi ekki rýrnað frá
hönnun kerfisins og í meðförum undanfarinn
áratug.