Læknablaðið - 15.03.1983, Page 34
84
LÆKNABLADID
6.11.1. Dæmi um venzlatengd atridisord í röntgen-
greiningarlykli (10).
6.12. Greiningarlykill var pví gerður á eftirfar-
andi hátt:
a) Tekin voru mið af heildarflokkum greining-
arlykla A.C.R. og Deutsche Röntgenge-
sellschaft (67, 68) og valin út pau atriðisorð
úr 1. og 2. stigi, sem sýnt pótti af reynslu og
samanburði við eldri lykla (sem um getur í
6.4.), að myndu ná yfir langmestan hluta
pess efniviðar, sem bærist til rannsókna.
b) Þessum atriðisorðum var síðan raðað í
einása (»monoaxial«) skrá, par sem leitazt
var við annars vegar að halda saman
greiningum, er höfðuðu sérstaklega til sér-
stakra líffærakerfa, hins vegar til ákveð-
innar tegundar sjúklegra breytinga.
c) í samræmi við petta var svo hverju atriðis-
orði gefið priggja tölustafa lykilsnúmer.
6.13. A upphaflegu skránni, sem lögð var til
grundvallar gagnavinnslunni frá 1. jan. 1967
ásamt rannsóknarlykli, sem lýst var í 6.5., eru
132 atriðisorð í 9 flokkum:
1. flokkur, upphafstala 0, inniheldur auk
atriðisorðsins »eðlilegt = 000« sjö orð sem
flest höfða til ófullnægjandi skilgreiningar á
rannsóknarniðurstöðu, ýmist vegna ófullnægj-
andi rannsóknar eða upplýsinga, sbr. atriðis-
orðið »sjúklegt, án nánari skilgreiningar =
008«.
2. flokkur, með upphafsstölu 1, höfðar til
ýmissa bólgueinkenna, og vísa tvær síðari
tölurnar til slíkra breytinga innan ákveðinna
líffæra eða kerfa. Dæmi: 100 = lungnabólga,
102 = gollurshúsbólga, 105 = slímhúðarbólga í
maga, o.s.frv.
Þar eð greiningar í pessum flokki höfða í
ríkum mæli til sjúkdóma í öndunarfærum,
pótti rétt að láta ýmsa algenga lungnakvilla
fylgja honum.
3. flokkur hefur upphafstölu 2. í pessum
flokki er safnað greiningum, sem einkum
höfða til beina og liða, enn fremur almenn
skilgreining á áverka látin fylgja pessum
flokki. Þar var ætlunin sú, eins og nánar verður
vikið að síðar, að atriðistalan (í pessu tilviki
»áverki = 200«), höfðaði aftur til rannsóknar-
aðferðar eða svæðis, (sbr. 6.5.). Dæmi:
70.10.200 = Áverki á kvið, lifrarsprunga.
í 4. flokki er raðað skráningum, sem beint
eða óbeint lýsa vanskapnaði, aflögun eða
starfrænni truflun líffæris eða líffærakerfis.
Hér er á sama hátt gert ráð fyrir, að greining-
artalan höfði til líffæris eða líffærakerfis í
sumum tilfellum, en ekki öllum. Dæmi: a)
72.00.312 = Diverticulum oesophagi, b)
75.00.312 = Diverticulosis coli.
í 5. flokki með upphafstöluna 4 eru atriðis-
orð, er greina ýmsar tegundir æxla, par með
talin meinvörp. Atriðisorð pessa flokks höfða
ávallt til líffæris, sem skilgreint hefur verið
með skráningartölu skv. 6.5. Dæmi:
73.00.402 = Cancer ventriculi, 63.00.403 =
Meinvörp í lungum.
6. flokkur, upphafstala 5, höfðar eingöngu til
meltingarfæra og parfnast ekki nánari skýr-
inga.
7. flokkur, með upphafstölu 6, höfðar til
hvers konar sjúkdómsástands, er hefur í för
með sér prengingu eða lokun á eðlilegu opi
eða leið í líffæri eða líffærakerfi. Hér er gerð
allnákvæm sundurliðun í einstakar greiningar
innan sjálfs atriðisflokksins, enda pótt í ein-
stökum tilvikum sé gert ráð fyrir, að vísað sé
til rannsóknarheitis.
8. flokkur, upphafstala 7, er sérstaklega
miðaður við sjúkdóma í hjarta og leyfir
talsverða sundurliðun í lokugalla, meðfædda
galla o.s.frv.
9. flokkur, með upphafstölu 8, inniheldur
ýmis atriðisorð, sem flest verða að höfða til
líffæris, sem skilgreint hefur verið með skrá-
ningartölu rannsóknar.
6.14. Enda pótt leitazt væri við að hafa
skilgreiningar skýrar, ótvíræðar og rökréttar
(sbr. 4.8.), pá leiðir gagnrýnin skoðun skráning-
ar í ljós, að hér eru notuð saman í einum lykli
atriðisorð, sem annars vegar geta táknað
ákveðinn sjúkdóm og hins vegar lýst meira
eða minna ljósu starfrænu sjúkdómsástandi.
Dæmi: a) 10.00.201 = Fractura cranii
b) 70.20.310 = Splenomegalia.