Læknablaðið - 15.03.1983, Síða 36
86
LÆKNABLADID
Skráin gefur fjölda sjúklinga og rannsókna
og hundraðshlutaskiptingu milli deilda og
annarra aðkomustaða.
3) Skrá um vinnuálag.
Sérstök forskrift er til að meta vinnuálag,
annars vegar á deildina í heild, hins vegar
vinnuálag á lækna, vegna hinna ýmsu
rannsókna. Þessi skrá er í grundvallaratrið-
um hin sama og 2), en deilir vinnuálags
»punktum« og hundraðshlutfalli peirra milli
deilda og annarra aðkomustaða.
4) Skrá um mismunandi rannsóknir.
Petta er talning á hinum ýmsu rannsókna-
tegundum, sundurliðuð eftir aðkomu sjúk-
linga. Samtímis felst í pessari skrá sund-
urliðun eftir kynjum.
5) Skrá um rannsóknir og greiningu.
Hér eru rannsóknakódi og greiningakódi
tengdir saman. Grunnupplýsingarnar eru
einstaklingsbundnar, en koma ekki fram
sem slíkar í pessari skýrslugerð.
Talningin er í grundvallaratriðum eins upp
byggð og í lið 3).
6) Aldursdreifingartöflur.
Hér eru tvenns konar töflur:
a) 5 ára aldurshópar, eftir kynjum og
aðkomu;
b) efnivið er skipt í prjá hópa, 0-14, 15-59,
og yfir 60 ára, einnig eftir kynjum og
aðkomu, en auk pess eftir tegund rann-
sókna.
7) Mánaðaruppgjör.
Mánaðarlegar talningar eru gerðar með
tilliti til tegunda rannsókna, ennfremur
álags á einstakar rannsóknastofur, aðkomu
sjúklinga og tíma sólarhrings.
8) Verðflokkun.
í úrvinnslunni er sérstök forskrift til verð-
flokkunar rannsókna í samræmi við ákvarð-
anir daggjaldanefndar hverju sinni. í peirri
forskrift, sem er pá bæði bundin rann-
sóknategund og einstaklingi, eru einnig
upplýsingar um búsetu, sem aftur auðveld-
ar alla reikningsgerð til einstakra sjúkrasam-
laga.
7.2. »Próunarris röntgengreininga á
íslandi«
Læknablaðið; Ásmundur Brekkan, 1972, 58:
225-237.
í pessari yfirlitsgrein um próun röntgenrann-
sókna á tímabilinu 1960-1971 eru tölvugeymd-
ar upplýsingar notaðar í fyrsta sinni til að
meta ákveðna pætti í skiptingu sjúklinga,
aðkomu peirra, tegund rannsókna og vinnuá-
lag. Ennfremur eru pessar upplýsingar, ásamt
sundurliðuðum heildartölum frá öðrum sjúkra-
húsum, notaðar til grundvallar forspár um
próun og parfir vegna röntgenrannsókna hér-
lendis á áttunda og fram á níunda áratug. Enda
pótt tölvugeymdar upplýsingar nái aðeins til
hluta efniviðarins, sem pessi rannsókn byggir
á, gefa pær samt ákveðna vísbendingu við
úrvinnsluna og matið.
7.3. »Impact of Demographic Studies on the
Planning of X-Ray Departments«
(bókarkafli)
Ásmundur Brekkan
í: »Planning of Radiological Departments«
Ed: F. E. Stieve, Thieme, Stuttgart 1974, bls.
52-54.
Kynja- og aldursdreifing allra rannsakaðra
sjúklinga á Röntgendeild Borgarspítalans 1971
er lögð til grundvallar við gerð á tölulegum og
hlutfallssamanburði við íbúa Reykjavíkursvæð-
isins, sundurliðað í samskonar 5 ára hópa.
Ennfremur eru aldurshóparnir 0-14, 15-59 og
eldri en 60 ára skoðaðir með tilliti til aðkomu
(vistun; göngudeild; acut). Niðurstöður pessar-
ar rannsóknar, sem byggist eingöngu á upp-
lýsingainnihaldi tölvugeymslunnar, sýna ótví-
rætt hlutfallslega mest álag, bæði í fjölda og
pyngd rannsókna vegna sjúklinga eldri en 60
ára. Lögð er áhersla á skoðun aldurs- og
álagsdreifingar við skipulag röntgendeilda,
ekki síður en annarra pátta heilbrigðispjón-
ustunnar.
7.4. »Kannanir á vinnuálagi á
Röntgendeild« (bókarkafli)
Heilbrigðismál 1, Ásmundur Brekkan (Fylgirit
við heilbrigðisskýrslur) Reykjavík, 1979, bls.
77-89.
í pessu yfirliti eru vinnsluferlar fyrir tölvu-
geymd gögn Röntgendeildar Borgarspítalans
tíundaðir og dæmi útskrifta sýnd í afritum og
töflum. Sérstaklega er lýst aðferð við að meta
vinnuálag, á lækna, á deildir, í heild, og á
einstökum vinnustöðum. Vinnuálagspunktar
peir, sem notaðir eru, gera pó ekki ráð fyrir
»acut« aðkomu né aldri sjúklings, og er pað
Ijóður, pegar endanlega skal meta vinnuálag.