Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.1983, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 15.05.1983, Blaðsíða 13
Tagamet REYNSLA OG GOTT GENGI UM ALLAN HEIM. MEIRA EN 20.000.000 SJÚKLINGAR í 115 LÖNDUM HAFA NOTAÐ LYFIÐ. SANNAST HEFUR LÆKNINGAMÁTTUR LYFSINS OG ÖRYGGI í NOTKUN. Upplýsingar um notkun Lyfíaform: Fölgrænar filmuhúöaöar töflur, áletraöar TAGAMET öðru megin og SK&F 200 hinum megin, innihalda 200 mg cimetidine. Lykjur (ampullur) sem innihalda 200 mg ömetidine í 2ja ml lausn. Notkun: Tagamet er Histamin Hí-viötækja blokkari sem hindrar bæöi grunn(basal) og ön/aö magasafaflæði af sýru og minnkar pepsin útskilnaö. Abendingan Meðferð skeifugamarsára, góökynja magasáramyndun, endurtekin sáramyndun, stoma- sár, bakflæöis vélindabólga (reflux oesophagitis), aörar kringumstæöur þarsem liklegt er að minnkuö magasafamyndun só heppileg. Þaö er einnig ráðlagt viö meðferð á Zollinger-Ellison syndrome. Skömmtun og gjöf: Fullorðnin Gjöf í meltingarveg: Vanalegur skammtur er 200 mg 3svar á dag með mat og 400 mg viö háttumál (1,0 g/dag). Ef ófullnægjandi symptomatisk svörun fæst eða merki eru um áframhaldandi sáramyndun má auka skammta í 400 mg 4 sinnum á dag (1,6 g/dag) einnig með mat og við háttumál. Þennan skammt ætti i upphafi að gefa í a.m.k. 4 vikur (6 vikur sé um að ræöa góökynja magasár), jafnvel þótt symptomatisk bót hafi fengist fyrr. Meðferð má halda áfram i lengri tíma hjá sjúklingum sem kunna að fá bót af minnkun magasafaframleiöslu og minnka má skammta hjá þeim sem svarað hafa meöferð t.d. i 400 mg að morgni og við háttumál. Hjá sjúklingum með skeifugamarsár sem svarað hafa upphafsmeðferð má hindra endur- myndun sárs með áframhaldandi meðferð með 400 mg við háttumál, eða 400 mg að morgni og 400 mg við háttumál í a/n.k. 6 mánuði (sjá frekari upplýsingar). Við bakflasðis vélindabólgu er ráðlagt að gefa 400 mg 4 sinnum á dag með máltiðum og við háttumál í 4-8 vikur. Hjá sjúklingum með mjög mikla magasýruframleiðslu (t.d. Zollinger-Ellison syndrome) getur verið nauðsynlegt að auka skammtinn í 400 mg 4 sinnum á dag eða I einstaka tilfellum i 2 g/dag. Við blæðingar frá sári eða fleiðrum (erosion) í efri hluta meltingarvegar og við meðferð sjúklinga sem útsettir eru fyrir blæöingu frá efri hluta meltingarvegarervanalegurskammt- ur 200 mg 3svar á dag með máltíð og 400 mg við háttumál. Nauðsynlegt getur verið að auka skammtinn í 400 mg 4 sinnum á dag. Þar eð ekki víst að Tagamet veiti samstundis symptomatiska bót, ættu sjúklingar að hafa aðgang að sýrubindandi lyf jum þar til einkenni hverfa. Stungulyfsnotkun: Tagamet er hægt að gefa I æð eða vöðva. Skammtur*! vöðva er vanalega 200 mg sem endurtaka má á 4-6 klst. fresti. Skammtur við gjöf I æð er vanalega 200 mg sem gefa á hægt og má endurtaka á 4-6 klst. fresti. Ef sjúklingur hefur skerta hjarta eða æðakerfisstarfsemi eða ef gefa þarf stærri skariimt ætti að þynna skammtinn og gefa á a.m.k. 10 m(n. I sllkum tilfellum er innrennsli (infusion) hentugra. Skammtur við innrennslisgjöf er 100 mg/klst. I 2 klst. endurtekið á 4-6 klst. fresti. Hámarksrennslishraði ætti ekki að fara fram úr 150 mg/klst. (eða 2 mg/kg líkamsþunga/ klst.). Með samfelldri innrennslisgjöf ætti meðalrennslishraði allt að 75 mg/klst. á 24 klst. að nægja. Heildardagskammtur með hvaða lyfjaformi sem er ætti vanalega ekki að yfirstiga 2 g. N.B. Skammtastærð ætti að minnka hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi (sjá varúð). Böm: Reynsla af Tagamet hjá bömum er takmörkuð og hefur ekki verið metin í klíniskum rannsóknum (sjá frekari upplýsingar). Frábendingar, viðvaranir o.fl. Engar þekktar frábendingar. Vamð: Skammta ætti að minnka hjá sjúklingum með skerta nýmastarfsemi í samræmi við creatinine clearance. Eftirfarandi skammtar eru ráðlagðir: Creat. clearance 0-15 ml/min. 200 mg x 2/dag, 30-50 ml/mín. 200 mg x 3/dag, yfir 50 ml/mín. venjulegur skammtur. Hægt er að fjariægja cimetidine með hemodialysis. Mælt er með tíðu eftirliti með sjúklingum sem samtímis eru á meðferð með blóðþynningar- töflum þar eð cimetidine lengir frekar prothrombin tíma hjá sjúklingum á þessum lyfjum. Tagamet getur einnig haft áhrif á lyfjaferli klórdíazepoxiðs og díazepam (en ekki lóraz- epam og oxazepam) og þannig aukið klínisk áhrif þeirra. Þótt klíniskar tilraunir i allt að eitt ár hafi ekki sýnt markverðar óvæntar hjáverkanir, ætti að halda áfram að fylgjast reglulega með sjúklingum á langtímameðferð. Áður en hafin er meðferð með Tagamet við magasári, ætti að útiloka illkynja vöxt, þar eð meðferð getur dregið úr einkennum og tafið greiningu. Hafa ber í huga hjá sjúklingum með sjúkdóma, eða á lyfjum, sem stuðlað geta að blóðkomafæð, möguleika H?-viðtækjablokkara til að magna slík áhrif. Notkun i meðgöngu og við brjöstagjöf: Þótt tilraunir i dýrum hafi ekki sýnt hættu af gjöf Tagamet á meðgöngu eða við brjóstagjöf, hafa bæði þessar rannsóknir og rannsóknir á konum sýnt að það fer yfir fylgjuþröskuld og skilst út í mjólk. Því ætti eins og við flest lyf að forðast notkun Tagamet á meðgöngu og meðan brjóstagjöf stendur nema nauðsyn beri til. Aukaverkanir: Niðurgangur, svimakennd eða útbrot, vanalega væg og sem ganga yfir og þreyta hafa verið tilkynnt. Væg brjóstastækkun virðist sjaldgæf. Lifrarskaði sem gengið hefur til baka og sannaður með blóðrannsóknum eða sýnatöku, hefur einstaka sinnum verið skráður. Ruglástand sem gengið hefur yfir, hefur einnig komið fyrir, vanalega hjá öldruðum eða þegar mjög veikum sjúklingum (t.d. sjúklingum með nýmabilun). Interstitial nephritis eða bráð briskirtilsbólga sem gengið hefur til baka þegar Tagamet meðferð var hætt hefur sést mjög sjaldan. Hækkanir á plasma creatinine gildi án annarra einkenna hafa ekki haft kliniska þýðingu. Eitrunarskammtar: Inntaka allt að 100 taflna í einu hafa verið skráðar nokkrum sinnum án nokkurs markverðs skaða. Framköllun uppkasta og/eða magaskolun má nota ásamt symptomatiskri- og stuðningsmeðferð. Lyf jafræðileg aðgát: Geymist á köldum stað og fjarri Ijósi. Frekari upplýsingar: Rannsóknir sem staðið hafa allt að einu ári hafa sýnt að allt að 80-85% sjúklinga hverra skeifugamarsár greru á upphafsmeðferð með Tagamet í fullum skömmtum, hóldust f afturbata á annað hvort 400 mg Tagamet við háttumál eða 400 mg 2svar á dag. Tagamet samrýmist jóna- og sykurinnrennslislausnum sem vanalega eru notaðar. Tagamet hefur ekki verið metið I kllniskum tilraunum hjá bömum. Samt sem áður hefur Tagamet verið gefið þar sem minnkun magasafaflæðis var talin nauðsynleg. Tagamet I skammtastærð 20-40 mg/kg/dag vargefið (dreifðum skömmtum I æð eða meltingarveg. Tilvitnanir: 1. Pounder, R.E. (1981) Lancet, i, 29. 2. Bodemar, G. and Walan, A. (1978) Lancet, i, 403. 3. Hansky, J and Korman, M.G. (1979) Digest. Dis. Sci., 4,465. 4. Sonnenberg, A. et al (1979) Dtsch. Med. Wschr., 104,725. 5. Hetzel, D.J. et al (1979) Med.J.Aust.. 1, 529. 6. Mekel, R.C.P.M. (1978) S.Afr.Med.J., 54, 1089. 7. Venables, C.W. et al (1978) Cimetidine. The Westminster Hospital Symposium, Churchill Livingstone P13. SK&F a SmithKline company Tagamet er skrásett vörumerki. SMITH KLINE & FRENCH CANADA LTD. MISSISSAUGA, ONTARIO, CANADA EINKAUMBOÐ Á iSLANDI: STEFÁN THORARENSEN HF. SIÐUMÚLA 32 - SÍMI 86044 - ICELAND

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.