Læknablaðið - 15.08.1983, Page 19
LÆKNABLADID
173
atvinnusjúkdóma skipt í fjóra megin flokka
eftir pví hvort þær eru eðlisfræðilegar, efna-
fræðilegar, líffræðilegar eða sálfræðilegar. 1
þeim tilkynningum sem hér er fjallað um var
enginn atvinnusjúkdómur talinn af geðrænum
toga. Endurteknar hreyfingar og einhæf vinna
skýrir allan fjöldann af þeim eðlisfræðilegu
orsökum sem tilkynntar eru. Hinar efnafræði-
legu orsakir dreifast á ýmis mismunandi efni
og er fyrst að telja olíur og leysiefni. Lífrænt
ryk svo sem mjöl, hey og viðarryk eru til
samans stærsti orsakaþáttur atvinnusjúkdóma
eftir þeim tilkynningum sem borist hafa. Auk
þessa eru ýmis plastefni talin valda atvinnu-
sjúkdómum, málmar og málmoxíð ásamt flúor
og samböndum þess. Undir líffræðilegar or-
sakir kemur sjúkdómsvaldur eins og myglugró
sem talin er vera orsök heymæði.
Tilkynningarnar hafa verið flokkaðar eftir
atvinnugreinum með hliðsjón af alþjóðlegum
staðli um atvinnugreinaflokkun (International
Standard Industrial Classification of all Econo-
mic Activites, New York, 1968). í töflu I er
sýnd tíðni tilkynninga um meintan atvinnu-
sjúkdóm á tímabilinu febrúar 1981 til janúar
1982 eftir atvinnugreinaflokkum á hverja
10.000 starfsmenn en jafnframt í sviga fjöldi
tilkynninga. Á töflunni sést að ál og járnblendi-
iðnaður hafa hæstu hlutfallstöluna en þess
ber að geta að þessar tölur hvíla á örfáum
tilkynntum tilfellum. Næstir komu málm og
skipasmíðar, landbúnaður, efnaiðnaður og mat-
vælaiðnaður. í flokkunum neðar á töflunni
eru tilkynningar sjaldgæfari og nokkru fleiri
meðal kvenna við störf er varða viðskipti,
samgöngur og banka en tilfellin eru fá í
hverjum flokki. Ályktanir um tíðni út frá
þessum fjölda eru óraunhæfar. Það kann að
koma á óvart að atvinnusjúkdómar eru til-
kynntir í atvinnugreinum svo sem heildverslun,
smásölu, veitinga- og hótelrekstri svo og í
Tafla II. Sjúkdómaflokkar sem tilkynntir eru sem
meintir atvinnusjúkdómar febr. 1981-jan. 1982.
Sjúkdómar Karlar Konur Alls
Nefangur, augnangur, ofnæmis og ekki ofnæmis 7 i 8
Astma 8 3 11
Bronchitis, lungnakvef 8 — 8
Heymæði 8 1 9
Dermatitis, húðbólga 8 2 10
Bein og Iiðbólga — I 1
Stoðvefjabólgur 2 1 3
Vöðvabólgur 6 4 10
Þursabit 1 — 1
Eitrun með alm. einkennum 5 — 5
Ofsakláði — 1 1
Höfuöverkur - 1 1
53 15 68
Tafla I. Tídni tilkynninga um meintan atvinnusjúkdóm febr. 1981-jan. 1982 eftir atvinnugreinaflokkum á
hverja 10.000 starfsmenn, tölurnar innan sviganna sýna fjölda tUfella.
Atvinnugrein Karlar Konur Alls
11 Landbúnaður .. 22.2(16) 2.2(1) 14.4(17)
13 Fiskveiðar .. 3.8 (3) — 3.6 (3)
30 Fiskiðnaður 6.8 (5) 8.0 (8) 7.5(13)
31 Matvælaiðnaður .. 16.8(5) 6.9(2) 12.0(7)
32 Vefjaiðnaður . . — —
33 Trjávöruiðnaður .. 10.9(2) — 9.6(2)
34 Pappírsvöruiðnaður .. 7.8(1) — 4.6(1)
35 Efnaiðnaður .. 19.4(1) — 13.6(1)
36 Steinefnaiðnaður . . — — —
37 Á1 og járnblendiiðnaður .. 34.9 (3) — 30.2 (3)
38 Málm og skipasmíðar .. 18.0(8) — 15.8 (8)
39 Ýmis iðnaður . . — — —
40 Rafmagns-, hita- og vatnsveitur . . — — —
50-52 Byggingar og viðgerðir .. 6.5 (8) — 5.7 (8)
61-63 Heildversl., smásala, veitinga og hótelrekstur . . — 0.8 0.5
71-72 Flutningastörf, póstur og sími .. 1.6(1) 4.3(1) 2.4 (2)
81-83 Peningastofnanir, tryggingar, fasteignarekstur og pjón. peirra ... 91-96 Opinber stjórnun, götu- og sorphreinsun, opinber pjónusta, 5.1 (2) 2.9 (2)
menningarmál, persónuleg pjónusta, varnarliðið • • — — -
Alls 6.4 (53) 2.3(15) 4.6 (68)