Læknablaðið - 15.08.1983, Page 42
188
LÆK.NABLAÐIÐ
Að kanna sjónskerpu og samsjón fjögurra
ára barna á skipulegan hátt eins og gert er í
Reykjavík, nágrenni Reykjavíkur og á Akur-
eyri er mjög mikilvægt atriði í sjónvernd og
einn stærsti páttur heilsuverndar meðal barna.
Á pessum aldri er auðvelt að kanna sjónskerpu
og hvort augun vinni eðlilega saman. Þó að
börn hafi allmikla sjóngalla kvarta pau ekki.
Foreldrar eru pví grunlausir, því að hegðun
barnsins getur verið eðlileg. Til þess að
fullvissa sig um hvort börn hafi eðlilega sjón
eða að augun vinni rétt saman þarf sérstak-
lega og á skipulegan hátt að kanna sjónskerpu
og samsjón. Sjón barna er í mótun allt til 5-6
ára aldurs. Á þessum fyrstu aldursárum er
oftast hægt að lækna starfræna sjóndepru og
oft hægt að þjálfa augun til samstarfs, ef sam-
sjón er ábótavant.
Eftir að barn er komið á skólaskyldualdur er
slík lækning lítt vænleg til árangurs og oft
óframkvæmanleg. Par sem a.m.k. 7-8 %
fjögurra ára barna hafa sjóngalla, sem í
flestum tilfellum er hægt að lagfæra á þann
hátt að sjón og samsjón þroskast á eðlilegan
hátt fái þau lækningu í tæka tíð, þarf að hlúa
að þeirri starfsemi, sem þegar er hafin, en er
ennþá ófullnægjandi og þarfnast skipulagn-
ingar. Skipuleggja þarf betur sjónprófun fjög-
urra ára barna á heilsugæslustöðvum landsins
og greiða betur fyrir þeim börnum, sem
finnast með meiriháttar sjóngalla og unnt er
að lækna, hvar svo sem þau eiga heima á
landinu.
SUMMARY
A vision screening program was included in the
general health control of four-year old children in
Reykjavík 1974. The screening was done by public
health nurses. During the years 1980 and 1981 a
vision screening was done on 2128 children born
1976 and 1977, living in Reykjavík. The total
population was 2580.
The criteria for referral was a visual acuity of 5/6
or less and/or muscular imbalance. 306 children
(14.4 %) were referred and professionally examined
at St. Joseph’s Orthoptic Clinic. 130 children had
significant eye disorders or 6.1 %. By including
children already under professional care the preva-
lence of eye disorders of the agegroup was found to
be 7.8 % i.e. the proportion of those in need of
ophtalmological treatment and/or observation.
Functional amblyopia was found in 1.3 % and
manifest strabismus in 2.8 %. The need for correcti-
ve glasses was around 3.3 %. Determination of the
refractive state in 372 children was done by
retinoscopy 30 minutes after installation of Cyclogyl
1 %. The main refraction was hyperopia (>2.0 D)
diagnosed in 57.6 %, while myopia (> 0.5 D) was only
4.1 %. No sex difference was found in any of the
results.
The results in Sweden and U.K.. of vision scre-
ening of all preschool children is a goal to be aimed
at in Iceland and visual examination should be
repeated in the first schoolyear.
HEIMILDIR
1) Heilbrigðisráð Reykjavíkur. Ársskýrsla 1980.
2) Köhler L og Stigmar G. Vision screening of four-
year-old children. Acta Pædiat Scand 1973; 62:
17-27.
3) Graham PA. Epidemiology of strabismus Brit J
Ophthalmol 1974;58:224-31.
4) Kaivonen M og Koskenoja M. Visual screening
for children aged four years and preliminary
experience from its application in practice. Acta
Ophthalmol 1963; 41: 785-86.
Fyrir mistök birtist grein þessi í maí-blaðinu áður en hún var fullfrágengin og
leiðréttingar frá síðustu próförk komust því ekki til skila. Eru höfundar og
iesendur beðnir velvirðingar á því.