Læknablaðið - 15.09.1984, Qupperneq 24
224
LÆKNABLADID
Könnunartímabil. Erfitt er fyrirfram að áætla
hæfilega lengd könnunartímabils. Upphaflega
var gert ráð fyrir fjögurra mánaða innköllun-
artíma. Strax að loknum fyrstu tveim mánuð-
um var ljóst að pað yrði of stuttur tími og var
þá tímabilið lengt í 6 mánuði, að fengnu leyfi
ráðuneytis. Eins og sést á 1. mynd og töflu VI
er nýtingarhlutfall nýrra sjúklinga af heildar-
fjölda lyfseðla hvers mánaðar allhátt í lok
tímabilsins. Ef ferillinn á 1. mynd er framlengd-
ur má sjá að 8 mánuðir hefðu verið ákjósan-
legra tímabil. f>ar sem höfundum voru settar
nokkrar skorður varðandi lengd innköllunar-
tímabilsins og búist hafði verið við því fyrir-
fram, að glákusjúklingar fengju að jafnaði
lyfjabirgðir sínar endurnýjaðar á 2-4 mánaða
fresti var ákveðið að hafa tímabilið 6 mánuði.
í ljós kom aftur á móti að 56.7 % sjúklinga
fékk aðeins einn lyfseðil útgefinn á könnunar-
tímabilinu, sjá töflu VIII. Líklegt má því telja
að nokkuð sé um glákusjúklinga sem vitja
læknis sjaldnar en tvisvar á ári. Ef þeir
sjúklingar hafa fengið lyfjabirgðir sínar endur-
nýjaðar skömmu fyrir upphaf könnunartíma-
bilsins nær könnunin að sjálfsögðu ekki til
þeirra.
Markgildi upplýsingaöflunar. Samtímis úr-
vinnslu glákulyfseðla fór fram skráning
þeirra glákusjúklinga sem samkvæmt sjúkra-
skrám göngudeildar augndeildar Landakots-
spítala notuðu glákulyf á könnunartímabilinu.
Eins og sýnt er í töflu VII reyndust þeir 526 að
tölu. Af þeim komu af lyfseðlum upplýsingar
um 449 (85.4 %). Ekki komu því fram lyfseðl-
ar 77 sjúklinga eða 14.6 %. Á þeim forsend-
um að sama skilahlutfall hafi verið á lyfseðlum
þeirra glákusjúklinga, sem ekki eru á skrá- á
göngudeild augndeildar Landakotsspítala
mundi fjöldi glákusjúklinga er notar lyf, vera
1946, sjá töflu X. Bæta má við þann fjölda 30
sjúklingum, sem áætla má að hefðu komið í
leitirnar ef allir lyfsölustaðir hefðu skilað
upplýsingum allan tímann. Þegar þeim 368
sjúklingum, sem skornir hafa verið vegna
gláku og nota því ekki glákulyf er bætt við,
verður heildarfjöldi áætlaðra glákusjúklinga á
landinu 2044.
Könnunin nær til 1916 glákusjúklinga sem
eru 94 % af áætluðum heildarfjölda þekktra
glákusjúklinga.
SAMANTEKT
Til að öðlast vitneskju um fjölda glákusjúkl-
inga á íslandi var safnað saman öllum útgefn-
um glákulyfseðlum á tímabilinu frá 1. septem-
ber 1981 til 28. febrúar 1982. Alls bárust 2445
lyfseðlar. Frá apótekum bárust 95.4 % þeirra.
Á þennan hátt komu í leitirnar 1406 glákusjúkl-
ingar, langflestir á fyrstu mánuðum könnunar-
tímabilsins. Með því að yfirfara sjúkraskýrslur
glákudeildar Landakotsspítala kom í ljós að
lyfseðlaskil voru 85.4 %. Út frá því má reikna
út að á íslandi hafi á þessum tíma verið 1676
glákusjúklingar á lyfjameðferð. Einnig var í
könnuninni fengin vitneskja um alla sjúklinga
sem skornir höfðu verið vegna gláku frá 1970
alls 368. Samtals voru því 2044 þekktir gláku-
sjúklingar á landinu og náði könnunin til 94 %
þeirra.
SUMMARY
The main purpose of this study was to estimate the
prevalence of chronic simple glaucoma in Iceland by
the method of collecting prescriptions dispensed
during a 6 month period. With the permission of the
Icelandic Ministry of Health a total of 2445 pre-
scriptions for glaucoma drugs were collected from
pharmacies (95.4 %) and physician’s dispensaries
(4.6 %) from 1. September 1981 to 28 February
1982. The results of the survey are discussed.
A total of 1406 individuals used glaucoma medica-
tion during the period of investigation. The mean
number of prescriptions per patient during the
survey period was 1.72.
By comparing the number of patients given
prescriptions for glaucoma medication at the Uni-
versity Glaucoma Outpatient Clinic at St. Joseph’s
Hospital with the percentage of the same patients
recorded by the pharmacies, it was calculated that
the prescriptions collected came to 85.4 % of the
estimated 1676 individuals who were using glauco-
ma drugs the 6 months of the investigation. The
survey also included the 368 patients operated on
for glaucoma since 1970, and who were not using
medication. Therefore there were 2044 known
glaucoma cases in Iceland or 8.8 per 1000 inhab-
itants, and in the survey about 94 % of them were
followed.