Læknablaðið - 15.09.1984, Blaðsíða 37
LÆKNABLADID
229
Ath. Skyggðu fletirnir sýna heilsugæslustöðvar og sjúklingamóttökur á 31 heilsugæslusvæði sem mynda rannsóknarsvæðið.
Mynd 3. Rannsóknarsvædi könnunarínnar 16.-22. október 1981.
vitjana var svipað hjá báðum kynjum. Til
samanburðar eru einnig birtar í töflu III tölur
um fjölda og hlutfallslega skiptingu samskipta
í landskönnuninni frá árinu 1974.
4.2 Meginástæður samskipta
í töflu IV kemur fram að algengustu ástæður
samskipta við heilsugæslu voru heilsuvernd
13,3% öndunarfærasjúkdómar 11,4%, og
stoðvefja- og hreyfingarfærasjúkdómar 9,2 %.
Fátíðustu orsakir voru æxli 0,7 %, blóð- og
blóðmyndunarsjúkdómar 0,7 % og félagslegar
ástæður 0,5 %. Meðal barna 0-14 ára voru
helstu ástæður samskipta heilsuvernd 29,9 %,
öndunarfærasjúkdómar 15,3 %, og smitsjúk-
dómar 9,5 %, eða alls 54,7 %. Á aldrinum 15-
44 ára bar hæst stoðvefja- og hreyfingarfæra-
sjúkdóma 10,9%, slys, eitranir og áverka
10,7%, og öndunarfærasjúkdóma 10,0%. í
næsta aldurshóp voru algengastir hjarta- og
æðasjúkdómar 16,6%, stoðvefja- og hreyf-
ingarfærasjúkdómar 14,9 %, og öndunarfæra-
sjúkdómar 10,1 %. Á aldrinum 65-74 ára voru
hjarta- og æða sjúkdómar 20,3 %, stoðvefja
og hreyfingarfærasjúkdómar 13,3 %, og önd-
unarfærasjúkdómar 9,8 %. Meðal 75 ára og
eldri voru algengustu ástæður hjarta- og
æðasjúkdómar 17,9 %, ýmis einkenni og elli-
Mynd 3. Samskipti vid heilsugæslu eftir aldursflokk-
um á rannsóknarsvædinu 16.-22. október 1981.