Læknablaðið - 15.12.1984, Blaðsíða 26
Címetidín.
Fyrirbyggjandi langtíma meöferö:
Fin 400 me tafla fvrir svefn.
Ábendingar:
Sársjúkdómur í skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis (reflux oesophagitis).
Zollinger-Ellison syndrome. Æskilegt er, að þessar greiningar séu staðfestar með speglun.
Fyrirbyggjandi gegn sársjúkdómi í skeifugöm og maga (langtíma meðferð).
Frábendingar:
Ekki er ráðlegt að gefa lyfið vanfærum eða mjólkandi konum nema brýn ástæða sé til.
Aukaverkanir:
Niðurgangur, vöðvaverkir, svimi, útþot. Gynaecomastia. Transaminasar í serum hafa fundist
hækkaðir hjá nokkrum sjúklingum.
Miliiverkanir:
Címetidín eykur verkun nokkurra lyfja, t.d. díkúmaróls, benzódíazepínlyfja, flogaveikilyfja,
teófýUíns og betablokkara (própranólóís og metóprólóls en ekki atenólóls).
Eiturverkanir:
Eftir mjög stóra skammta geta sést eitrunareinkenni: Sljóleiki, meðvitundarleysi, bradycardia,
munnþurrkur, ógleði. Meðferð: Magatæming. Lyfjakol. Symptómatísk meðferð.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Við sársjúkdómi í skeifugörn og maga: 200 mg þrisvar sinnum á dag með máltíðum og 400 mg
fyrir svefn. Má auka í 400 mg fjórum sinnum á dag. Meðferðin á að standa í a.m.k. 4 vikur,
jafnvel þótt einkenni hverfi fyrr. Við reflux oesophagitis: Mælt er með því að gefa 400 mg
fjórum sinnum á dag. Við Zollinger-Ellison syndrome: Skammtastærð getur orðið allt að 2 gá
dag. Fyrirbyggjandi gegn sársjúkdómi ískeifugörn og maga (langtíma meðferð): 400 mgfyrir
svefn eða ef þörf krefur 400 mg að morgni og fyrir svefn.
Athugjð:
Skammtastærðir verður að minnka, ef um skerta nýrnastarfsemi er að ræða.
Lyflð er ekki ætlað börnum.
Pakkningar:
Töflur200 mg: 50 stk., 100 stk.
Töflur 400 mg: 50 stk., 100 stk.
DELTA'
REYKJAVIKURVEGI 78
221 HAFNARFJÖRÐUR