Læknablaðið - 15.01.1989, Side 11
LÆKNABLAÐIÐ 1989; 75: 5-9
5
Guðmundur Oddsson, Jakob Kristinsson, Þórarinn H. Harðarson, Finnbogi Jakobsson
LYFJAEITRANIR Á BRÁÐAMÓTTÖKU
BORGARSPÍTALANS Á SEX MÁNAÐA TÍMABILI
1983-1984
INNGANGUR
Borgarspítalinn hefur nokkra sérstöðu meðal
sjúkrahúsanna í Reykjavík vegna
slysadeildarinnar, sem er einasta bráðamóttakan
á höfuðborgarsvæðinu. Þangað koma flestir þeir
sem þurfa á læknismeðferð eða rannsókn að
halda vegna lyfjaeitrana eða gruns um eitranir.
Þegar hafa verið gerðar tvær rannsóknir á
sjúklingum sem innlagðir voru á lyflækningadeild
Borgarspítalans vegna lyfjaeitrana árin 1971-1975
(1) og 1976-1981 (2). Rannsókn sú, sem hér
greinir frá, er frábrugðin hinum fyrri að því leyti,
að hún er framsýn (prospektiv) og nær til allra
sjúklinga, sem komu á slysadeild Borgarspítalans
á 6 mánaða tímabili vegna gruns um eitrun.
Stuðst var við lyfjamælingar í mun fleiri tilfellum
en áður og rannsóknin gefur því miklu
nákvæmari mynd af hlutdeild einstakra lyfja og
eiturefna en fyrri athuganir, sem styðjast að
mestu leyti við lyfjasögu.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Rannsóknin náði til allra einstaklinga, sem komu
á slysadeild Borgarspítalans á 6 mánaða
tímabilinu 1. desember 1983 til 30. júní 1984 og
grunaðir voru um eitrun af eigin völdum. Skráðar
voru upplýsingar um aldur, kyn, hjúskaparstétt,
komutíma, samfylgd, ástand við komu á
slysadeild, meðferð og afdrif sjúklingana. Einnig
var skráð lyfjasaga. Meðvitundarástand var
metið og skráð eftir einföldu kerfi sem notað
hefur verið í hliðstæðum rannsóknum erlendis
(3).
Dástig 0: Sjúklingur er vakandi en getur verið
ruglaður eða með ofskynjanir.
Dástig 1: Sjúklingur er syfjaður en hægt að vekja
hann með tiltali.
Dástig 2: Stúpor, ekki hægt að halda sjúklingi
vakandi en hann svarar sársauka og getur svarað
með einsatkvæðisorðum.
Barst 06/06/1988. Samþykkt 10/11/1988.
Dástig 3: Kóma, ekki hægt að ná sambandi við
sjúkling, en hann getur svarað sársauka og
taugaviðbrögð framkallanleg.
Dástig 4: Djúpt kóma, sjúklingur svarar ekki
sársauka og taugaviðbrögð eru ekki
framkallanleg.
Lyfjamælingar voru gerðar á Rannsóknarstofu
Háskóla íslands i lyfjafræði. Lyf í blóði (sermi)
voru í flestum tilvikum ákvörðuð ýmist með
gasgreiningu á súlu (4, 5) eða vökvagreiningu á
súlu (6). í flestum tilvikum var leitað að etanóli,
barbitúrsýrusamböndum,
benzódíazepínsamböndum eða
geðdeyfðarlyfjum. Ekki var leitað að öðrum
lyfjum eða lyfjaflokkum nema lyfjasaga eða
ástand sjúklings gæfi sérstakt tilefni til. Dregin
voru blóðsýni úr öllum sjúklingum með áberandi
eitrunareinkenni við komu (dástig 2-4). Úr öðrum
sjúklingum voru dregin blóðsýni ef tildrög
eitrunar voru óljós. Alls voru dregin blóðsýni hjá
67% þeirra sjúklinga sem rannsóknin nær til.
145 sjúklingar: 71 karl/74konur
50-i
40-
30-
20-
10-
12-19 20-29 30-39 40-49 50-59 60-69 70-79
Aldur
Mynd 1. Aldurs- og kyndreifing sjúklinga sem
innlagðir voru vegna eilrana á slysadeild
Borgarspítalans á sex mánaða tímabili 1983-1984.