Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1987, Qupperneq 24
11
[gG UNDIRFLOKKAR OG OPSONERING Á STR. PNEUMONIA EFTIR BÓLUSETNINGU HEILBRIGÐRA.
Elínborg Bárðardóttir, Steinunn Jónsson, Ingileif jónsdóttir, Ásbjörn Sigfússon
og Helgi Valdimarsson. Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræði, Landspitalanum.
Str. Pneumonia er algengasta orsök bakterial lungnabólgu og þrátt fyrir nutima
lyfja-og gjörgæslumeðferð er pneumokokka lungnabólga enn mikilvæg dánarorsök.
Vörn gegn pneumokokkum byggir fyrst og fremst á opsoninum í sermi. Bólusetning
með Pneumovaxi örvar mótefnamyndun og þar með opsoneringu pneumokokka. Samt
sem áður hafa rannsóknir sýnt að sumar geróir pneumokokka viróast lítt nasmar
fyrir opsonerandi áhrifum sermis þrátt fyrir hækkun á heildarmótefnum. Skýring
á þessu ósamræmi er ekki þekkt. Tilgangur þessarar rannsóknar var að bera saman
opsoneringu pneumokokka og magn af undirflokkum IgG fyrir og eftir bólusetningu
með Pneumovaxi. 10 heilbrigðir einstaklingar (23-26 ára) voru bólusettir með
23 gilda Pneumovaxi. Pneumokokkamótefni voru mæld með ELISU og opsonering með
upptöku kleifkjarna átfruma á geislamerktum pneumkokkum af gerð 8,9 og 19.
Niðurstöður benda til þess að opsonin virkni fylgi magni á heildarmótefnum en
endurspegli fyrst og fremst hækkun á IgG 1 og IgG 3. Skýring á lélegri
opsoneringu pneumokokka þrátt fyrir aukningu heidarmótefna gæti þannig legió í
hlutfallslegri aukningu IgG 2 á kostnað IgG 1 og IgG 3. Pessi vitneskja gæti
komið að gagni til þróunar mótefnavaka sem örva meira myndun undirflokka IgG 1
og IgG 3 og þannig hugsanlega hægt að ná betri árangri með bólusetningu.
12
SJÚKLINGAR MEÐ DERMATlTS HERPETIFORMIS HAFA MINNKAÐA EN COELIAC
SJÚKLINGAR EÐLILEGA PIP KOMPLlMENTVIRKNI. Helgi Valdimarsson, Carolyn
Hobdey og Lionel Fry. Rannsóknastofa Háskólans í ónæmisfræði, Reykjavík og
Departraent of Dermatology, St. Mary's Hospital, London.
Ofnæmi gegn gluten hveitiprótínum geta annars vegar orsakað Dermatitis
herpetiformis (DH) og hins vegar coeliac sjúkdóm (CD). Útbrotin í
dermatisis herpetiformis orsakast af IgA mótefnum sem hlaðast upp á mótum
yfirhúðar og undirhúðar. Coeliac sjúklingar hafa yfirleitt ekki slíkar IgA
útfellingar i húð og fá ekki útbrot. Sermi úr 10 DH sjúklingum og 10 CD
sjúklingum var rannsakað með PIP og SOL prófum, sem mæla hæfni komplíment
kerfisins til að koma í veg fyrir og leysa upp útfellingar af
mótefnafléttum. Sjúklingarnir voru allir á ströngu glutensnauðu fæði og
höfðu því verió einkennalausir á marga mánuði áður en þeir voru prófaðir.
DH sjúklingarnir reyndust allir hafa PIP virkni sem var langt fyrir neðan
normal mörk. CD sjúklingarnir höfðu hins vegar eðlilega PIP virkni. SOL
virkni var aðeins lítillega lækkuð í DH sjúklingunum, en eðlileg í CD
sjúklingunum. Þetta er í fyrsta skipti sem afgerandi munur finnst á
ónæmiskerfi DH og CD sjúklinga. Þessi munur getur skýrt, hvers vegna
glutenofnæmi tjáir sig klínískt á ólíkan hátt í þessum tveimur hópum
sjúklinga.
24