Innsýn - 01.03.1974, Qupperneq 8

Innsýn - 01.03.1974, Qupperneq 8
8 innsýn Áriö 1925 var stofnað útgerðar- félag um vélbátinn Hebron VE 10' tonná dekkbát, en hann var keyptur frá Isafirði af blásnauðum mönnum. Þeir voru Sveinbjörn Einarsson, sem varð formaður bátsins, Magnús Helgason, Stefán Erlendsson, mótoristi, Ingi Sigurðsson og Þorbjörn Arnbjörns- son. Er þeir félagar komu síðla hausts til ísafjarðar, til að sækja bátinn, fundu þeir hann morandi á kafi í sjó, svo óþéttur var hann og vélarvana að auki. En þetta voru hraustir og harðsnúnir menn, sem létu hraðar hendur standa vel fram úr ermum sínum. Bátnum var komið á þurrt, hann kalfattaður hátt og lágt, ný vél sett í hann, og svo vnr haldið heim á þorláksmessudag. Ferðin gekk vel þar til þeir félagar lentu £ miklum stormi í Eyrarbakkabugtinni. Ising hlóðst á bátinn og svo tók hann að leka svo mikið, að bátsverjar urðu að ausa upp á líf og dauða á meðan stormurinn stóð yfir. Þegar honum linnti og báturinn hóf sig upp úr hafrótinu, kom í ljós, að þeim hafði láðst að kalfatta dekkið og þess vegna lak hann á meðan dekkið var á kafi í sjó. Það var í þessum stormi að Magnús Helgason tók snöggvast út í Eyrarbakkabugtinni. Honum rétt tókst að góma lunninguna og vippa sér innfyrir áður en brotsjórinn sogaði hann með sér £ djúpið. Þar skall hurð nærri hælum. Á jóla- dag sigldi Hebron inn £ höfnina £ Vestmannaeyjum, og þar urðu miklir fagnaðarfundir með ástvinum, sem farnir voru að óttast um afdrif þeirra félaga. Sveinbjörn var með bátinn £ 4 ár, til 1929. Aðeins aðventistar mynduðu áhöfnina hjá honum þessi 4 ár. Byggt var salthús, þar sem Magnús Helgason og fleiri söltuðu aflann. Það var öðru sinni að báturinn var hætt kominn. Þeir voru þá staddir NV af Álsey með bátinn fullan af fiski, þegar ólag reið yfir hann. Það var með naumindum að hann hafði sig upp úr sjónum. Árið 1928 var áhöfnin á Hebron að leggja l£nu £ austan stormi og svartamyrkri austan við Bjarnarey. Einn bátsverja, Guðstein Þorbjörns son, tók þá út af bátnum. Það. var skorið £ skyndi á línuna og bátnum snúið við. 1 þá daga var fremur léleg lýsing um borð £ fiskibátum og engir ljóskastarar voru um borð £ Hebron til slikrar leitar. Það var heit og áköf bæn, sem steig upp frá brjósti Sveinbjarnar við stýrisvölinn. Hann fylgdi oliu- brákinni frá bátnum og brátt fundu þeir Guðstein á floti, og honum var bjargað meðvitundarlausum um borð. Það var keyrt á fullu £ land og björgunartilraunir hafnar á Guð- steini, sem drukkið hafði mikinn sjó. Eftir vikutima f landi varð hann aftur jafngóður til sjó- mennsku og áður. ðsjálfrátt hafði hann í fallinu gripið utan um hálsmál sjóstakksins, sem hann var klæddur i, og lokaði þannig loftið inni i stakknum. Á þennan hátt hélst hann sæmilega á floti. Ef ekki hefði tekist svo giftusamlega- um björgunina, væri ég ekki tengda- sonur Guðsteins, þvf það var ekki fyrr en 10 árum seinna, að dóttir hans fæddist, sem ég sfðar meir átti eftir að kvænast! Magnús Helgason tók við for- mennsku á Hebron árið 1930, og var með hann £ eitt ár. Þá var báturinn settur upp i Botni £ Eyjum og seldur nokkru s£ðar. Sveinbjörn segir um Hebron, að hann hafi verið úreltur og vara- samur'bátur, og hvorki sambæri- legur né sóknarfær á við aðra báta. Ekki vil ég skilja viö þátt Sveinbjarnar án þess að minnast ofurlitið á reynslu hans f bjarg- sigi. Bjargsig stundaði hann sem smástrákur f Vestmannaeyjum. Árum saman stundaði hann bjargsig £ flestum úteyjum þar um slóðir. Eitt sinn hrapaði hann á Dufþekju f Heimakletti, en var gómaður af öðrum manni rétt f þvi, að hann var að fara fram af bjargbrúninni. Var Sveinbjörn þá bæði handleggs- brotinn og rotaður. Hvorugur mannanna notaði reipi i þetta sinn. Sveinbjörn seig einnig £ Stórhella austan til £ Hellisey, en þangað sækja aðeins úrvals bjargsigsmenn, enda um að ræða langt og erfitt sig £ tvöföldum böndum, þar sem bjarg-- sigsmaðurinn er sífellt á lofti.

x

Innsýn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Innsýn
https://timarit.is/publication/992

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.