Innsýn - 01.03.1974, Page 12
Þar sem sjóoturinn á heima, en
það er aðallega við .Aleutaeyjar í
Beringshafi á milli Alaska og Sí-
beríu, er sjórinn kaldur. Þar
verða öldurnar stórar og miklar.
En sjóotrunum stendur alveg á sama
um það. Þeim þykir svo gaman að
leika sár í öldurótinu Þeir elta
hver annan og fara oft í kappsund,
og svo kafa þeir niður á hafsbotn
eftir skelfiski.
En þegar þeir koma upp á.yfir-
. borðið aftur, hafa þeir ekki aðeins
•skelfisk með sér. Þeir hafa alltaf
með sár flata steina líka. Við^
skulum virða fyrir okkur eirin sjo-
otur, sem veltir sár auðveldlega á
bakið, á sjónum, og leggur flata
steininn á brjóst sár. Síðan lemur
hann og lemur skelinni í steininn,
þar til skelin brotnar og hann get-
ur náð í mjukan, gómsætan skelfisk-
inn innan 1.